Leita í fréttum mbl.is

Verður lengi í minnum haft

Mig langar til að segja ykkur frá stórkoslegri skemmtun sem ég tók þátt í  á föstudag en það er erfitt að átta sig á hvar á að byrja. Á föstudagskvöld var nefnilega haldið kvennakvöld Breiðabliks, en það hefur ekki verið haldið í 2 ár eftir að hafa verið fastur liður á hverju vori.

Undirbúningur tók ekki sérlega langan tíma því þegar ákvörðun hafði verið tekin og 10 kvenna undirbúningshópur settur saman var eins og allar konurnar ynnu saman sem einn hugur. Allt var keyrt af stað, orð látið út berast og reynt að draga eins margar konur í Smárann og unnt var.

Það verður að segjast eins og er að kvöldið heppnaðist fullkomlega. Fullt hús, frábær matur, skemmtiatriði við allra hæfi og gleðin var allsráðandi. Hvað er hægt að biðja um betra?

Öllum þeim sem lögðu hönd á plóg til að gera kvöldið svona vel úr garði þakka ég fyrir þeirra þátt, skemmtikröftum kvöldsins þakka ég þeirra framlag og konunum öllum sem mætti þakka ég stuðninginn við meistaraflokk Breiðabliks. Þetta kvöld verður lengi í minnum haft.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég skil vel að þú nefnir ekki skemmtiatriði þitt,þú ert stórkostleg sem dönsk madam eða hvað kallast hún. Ekki ætla ég að gera lítið úr öðrum en þetta atriði var svo sprenghlægilegt að þú myndir sóma þér vel með bestu gaman leikurum.        Gott að sjá þingkonur okkar kjördæmis mæta,Þorgerði (d) Katrínu (s) og Siv(b),þér fórst veislustjórnin vel úr hendi , Heyrðu ég er búin að hæla þér í hástert,nú hætti ég.En þú átt það allt skilið takk fyrir mig,JA hilsen.

Helga Kristjánsdóttir, 19.4.2009 kl. 02:35

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Glæsilegt hjá ykkur Breiðablikskonum

Hilmar Gunnlaugsson, 19.4.2009 kl. 03:58

3 Smámynd: TARA

Er ferlega spæld yfir að hafa ekki komist, hlakkaði svo til...en það kemur annað kvennakvöld.

TARA, 19.4.2009 kl. 17:30

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Helga, kærar þakkir ... maður er nú ekki að trana sér sérstaklega fram, en þegar einhver annar ákveður fyrir mig hvað ég á að gera, þá er eins gott að gera það almennilega! Takk fyrir hrósið.

Hilmar, takk takk, þetta var sannarlega vel gert (þó ég segi sjálf frá)

Tara, þú ert bara eins og egg!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 19.4.2009 kl. 18:18

5 Smámynd: TARA

   Question Mark 













TARA, 19.4.2009 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 129508

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband