Leita í fréttum mbl.is

Klofin þjóð á ábyrgð hvers

Mikið er ég sammála fyrirsögninni á þessari frétt. Íslensk þjóð er klofin í herðar niður vegna fjármálasamnings milli þriggja þjóða. Samnings sem 75% þingmanna á Alþingi Íslendinga samþykkti. Samnings sem hefur verið lengur í smíðum en margir aðrir. Samnings sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga mörgum sinnum. Samnings sem fróðir menn segja að ekki verði hægt að gera betur úr garði en nú er.

Hver ber ábyrgð á sundrungu þjóðarinnar. Hver ber ábyrgð á því að menn slást næstum því opinberlega. Hver ber ábyrgð á vinaslitum manna í millum. Hver ber ábyrgð á því að þjóðin stendur nú frammi fyrir tveimur mjög slæmum kostum. Kostum sem engin þjóð á að þurfa að standa frammi fyrir. Ákvörðun um hvorn kostinn eigi að taka á að vera á herðum kjörinna fulltrúa þjóðarinnar, 75% þeirra samþykktu samninginn.

Þið vitið alveg við hvern ég á. Aldrei, aldrei nokkru sinni, hef ég séð jafn miklu eftir neinu af því sem ég hef kosið um á ævinni eins og því að bera ábyrgð á því að sameiningartákn þjóðarinnar, forsetinn, er nú holdgervingur sundrungar og haturs.

Ég skammast mín fyrir að hafa kosið hann til þess að leiða þjóðina og biðst afsökunar fyrir mína hönd. En ég kemst ekki hjá því að velta því fyrir mér hvort hann skammist sín nokkuð fyrir gjörðir sínar?

 


mbl.is Hörmulegt að þjóðin sé svo klofin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Libertad

„Ég er farinn að halda það að margir kjósi um traust sitt á ríkisstjórninni í komandi kosningum á laugardag.“, segir svikarinn Bjarni Ben.

Hann ætti að athuga, að þeir sem munu kjósa Nei eru einnig að lýsa vantrausti á Bjarna og kumpána hans. Alþjóð veit hvernig þessi þorpari lét Steingrím múta sér með loforð um friðhelgi allra glæpamannanna, þ.e.a.s. niðurfellingu 8. gr. IceSave-samningsins.

IceSave? Nei, takk!

Libertad, 7.4.2011 kl. 14:10

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er engin ástæða fyrir hann að biðjast afsökunar. 'Eg verð honum ævinlega þakklát fyrir innkomu hans að Icesavemálinu bæði núna og áður.  Eina sem hann gerið var að vísa þessu til þjóðarinnar.  Ertu ef til vill hrædd við dóm hennar?  ertu ekki lýðræðissinni?  Kona spyr sig, þetta er sorglegur málflutningur. Það ættu aðrir að skammast sín en hann.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.4.2011 kl. 18:57

3 Smámynd: Magnús Ágústsson

og ad radamenn landsins eru bunir ad vedsetja allar eigur Islensku thjodarinnar og gera allt til ad leyna thvi er svo mikil svivirda ad madur a ekki ord

Magnús Ágústsson, 8.4.2011 kl. 06:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband