Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Til hamingju með daginn Ingibjörg Sólrún

Ég vil óska foringjanum, og nöfnu minni, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til hamingju með daginn, en eins og alþjóð veit þá á hún afmæli í dag. Er að horfa á hana í Kryddsíldinni núna og það geislar af henni hamingjan. Það er gott og ég er ánægð með hana nú sem endranær.

Henni og öllu öðru Samfylkingarfólki, sem og landsmönnum öllum óska ég farsældar á komandi ári og þakka samfylgdina á því sem nú er að renna sitt skeið.

Ingibjörg Hinriksdóttir


Ríkis- og borgarstjórn halda velli segir Dollý

Dollý dulræna, vinkona mín, hefur spáð fyrir um árið 2008. Hún veður úr einu í annað eins og henni er lagið en hún er alls ekki sammála Völvu vikunnar um stjórnarslit. Dollý segir m.a. í spá sinni: „Það eru líka margir sem vilja ríkisstjórninni illt, pirringurinn í minnihlutaflokkunum gengur út í öfgar í vor. Framsóknarmenn munu berjast hatrammri baráttu innbyrðis, þeir viðurkenna það þó aldrei en lýðnum verður það ljóst að öllu leyti. Þeir munu gjalda fyrir það víða bæði í landsstjórninni og í bæjarstjórnum víða um land. En ríkisstjórnin mun halda velli, það verða sannarlega deilur innan hennar en ekki í þeim mæli sem verður til þess að hún falli. Deilur geta verið hreyfiafl til góðs, deilur innan ríkisstjórnar þurfa ekki alltaf að vera ill tíðindi, þær geta orðið til góðs. Margir eiga þó eftir að eiga erfitt með að skilja það.

Spáin öll er á heimasíðu minni http://www.ingibjorg.net/frettir-og-pistlar/nr/720/

 


Dollý biður menn um þolinmæði

Vinkona mín, Dollý dulræna, hefur spáð fyrir komandi ári. Hún fer víða eins og henni er lagið en meginlínan í spádómum hennar er að menn eigi að sýna þolinmæði. Hægt er að sjá allan spádóminn á www.ingibjorg.net

GLEÐILEGT ÁR!


Horfið á veðurfréttir og verslið við björgunarsveitirnar

Það er alveg makalaust hversu illa sumt fólk virðist búa sig undir jökla- og fjallaferðir. Síðustu 5 daga hefur verið varað við stormi og illviðri á landinu í dag og á morgun. Vissulega getur verið að fólkið sem um ræðir í þessari frétt hafi undirbúið sig af kostgæfni, horft á veðurfréttir og farið varlega í hvívetna, ég gef mér það a.m.k.. Ég tek undir með mörgum þeirra sem hafa tjáð sig um þessa frétt að það er lágmark að umræddir ferðalangar og fjölskyldur þeirra styðji við björgunarsveitirnar fyrir þessi áramót og öll áramót hér eftir.  Björgunarsveitirnar byggja sitt starf að miklu leyti á flugeldasölu og njóti hennar ekki við þá geta fjallaferðir eins og þessar farið illa, afar illa!
mbl.is Jeppaferðalangar komnir til byggða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð vísa verður ekki of oft kveðin

Eftir að hafa lesið þessa frétt og horft á fréttir í sjónvarpinu í kvöld, þá skil ég einfaldlega ekki fólk sem leggur í það að vera í samkeppni við björgunarsveitirnar á flugeldamarkaði. Verslum við björgunarsveitirnar.


mbl.is Yfir 220 útköllum sinnt í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styðjum hjálparsveitirnar

Hvað er þinn flugeldasali tilbúinn að leggja á sig fyrir þig? Björgunarsveitirnar fjármagna starf sitt með margvíslegum hætti en flugeldasalan er langmikilvægasti tekjupóstur þeirra og skiptir sköpum í rekstri þeirra. Þar með skiptir flugeldasala björgunarsveitanna sköpum hvað varðar öryggi almennings. Meðlimir björgunarsveitanna fara í útkall á hvaða tíma sólarhringsins sem er, hvenær sem er ársins. Þeir fara í útköll vegna óveðurs, ófærðar, sjóslysa, flóða, skipsstranda, björgunar búpenings og leitar að týndu fólki innan bæjar sem utan.

Björgunarsveitirnar eiga það skilið að fá öflugan stuðning frá Íslendingum. Þeir eiga það ekki skilið að einkaaðilar, sem virðast ekki hafa annað að markmiði en að efla sinn persónulega hag, seilist inná flugeldamarkaðinn og geri með því rekstur björgunarsveitanna erfiðari og komi í veg fyrir að þeir geti skipt út tækjum og búnaði með eðlilegum hætti.

Áskorunin á náttúran.is er ekki sanngjörn á nokkurn hátt. Björgunarsveitirnar búa við stöðugt harðnandi samkeppni á flugeldamarkaðinum og það er einfaldlega skammsýni þeirra náttúrumanna að beina áskorun sinni til björgunarsveitanna. Það væri nær að beina þeirri áskorun til þeirra sem skjóta upp flugeldum á gamlárskvöld og dagana þar í kring að þeir hirði upp ruslið eftir sig. Þar hljóta björgunarsveitirnar að draga mörkin og í ruslatínslu verður hver og einn að bjarga sér sjálfur.


mbl.is Út í hött að hjálparsveitir taki við flugeldarusli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margrét Lára íþróttamaður ársins 2007

Í kvöld var Margrét Lára Viðarsdóttir útnefnd íþróttamaður ársins 2007. Þetta er sannarlega mikill heiður fyrir þessa frábæru knattspyrnukonu sem hefur nú unnið flesta ef ekki alla titla sem hægt er að vinna í íslenskri knattspyrnu. Margrét Lára átti gott sumar í sumar. Hún bætti sitt eigið markamet, varð Íslandsmeistari með liði sínu Val og var lykilleikmaður íslenska landsliðsins eins og svo oft áður. Á æfingamóti á Algarve í vor bætti hún markamet landsliðsins og hefur nú skorað 29 mörk í 35 landsleikjum.

Útnefningin í kvöld er ekki aðeins heiður fyrir Margéti Láru heldur og fyrir íslenska kvennaknattspyrnu sem hefur farið stigvaxandi á undanförnum árum og þá ekki síst fyrir tilstilli kraftaverkakonunnar Margrétar Láru Viðarsdóttur. Ég óska Margréti Láru og hennar fólki öllu innilega til hamingju með titilinn, þetta var verðskuldað.

MLV


Þvílík della

Hvaða bull er þetta í völvu Vikunnar. Hún veit ekkert hvað hún er að spá fyrir um. Dollý dulræna, sem er góð vinkona mín, hefur sagt mér undan og ofan af næsta ári og miðað við hennar spá þá fara hlutirnir alls ekki á þennan veg.

Dollý spáði fyrir um árið 2007 og hún hafði rétt fyrir sér þegar hún sagði „Fólk mun strengja áramótaheit á miðnætti, lofa því að hætta að borða um leið og það dýfir snakkinu í Voga ídýfuna, hætta að reykja um leið og það kveikir í „síðustu“ rettunni og hætta að drekka um leið og það hrópar „okkar skál“. Já ekki er öll vitleysan eins!“

Reyndar rættist ekki allur spádómur Dollýjar í fyrra, en hún hitti naglann á höfuðið í nokkur skipti:

  • Það verður þó jákvæð þróun í umferðarslysum. Þeim mun fækka. 
  • Rætt verður af fullri alvöru um að byggja innanhúss skíðabrekkur. Röksemdir fyrir slíku eru ærnar en þegar snjóar á Íslandi hefur oftar en ekki verið ómögulegt fyrir venjulegt fólk að vera úti.
  • Náttúran mun ekki láta mikið á sér bæra á árinu en það styttist þó í það, og þá er ég ekki bara að tala um sjálfa mig. Katla gamla mun eitthvað hrista sig, en það er bara aðvörun. Hún mun samt örugglega hreinsa sig fyrir árið 2010. Ef menn horfa á hætturnar með bæði augun opin mun verða komið í veg fyrir stórtjón en það má enginn líta undan, enginn, þá er voðinn vís.
  • Það verða krýndir nýir Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla.
  • Hillary fer í framboð.

Allt annað var einhversskonar bull. En það er þá álíka mikið bull og hjá völvu vikunnar, reyndar skemmtilegra bull, sbr.: „Karl tekur loksins við af Elísabetu móður sinni. Loksins, loksins mun heimurinn segja en það gerist eitthvað óvænt sem verður til þess að Vilhjálmur sonur hans mun þurfa að gegna enn fleiri opinberum verkefnum en áður. Hann verður faðir á árinu [nei ekki Karl ... Vilhjálmur!] en það mun samt ekki uppgötvast fyrr en árið 2008 þegar hann verður neyddur til að kvænast stúlkunni sem hann eignast barnið með. Þetta mun vekja upp mikla ólgu innan bresku krúnunnar og meðal þegna hennar en þegar í ljós kemur að stúlkan er í raun laundóttir Alberts prins af Mónakó mun öldurnar lægja enda saman komnar einhverjar bestu aðalsættir sögunnar.“ Ég held að Elísabet Brekkan og Hið konunglega fjelag muni kætast rætist þessi spádómur!

Bloggsíðan mun setja inn tengil á áramótaspá Dollýjar dulrænu þegar líður að áramótum.


mbl.is Völvan spáir stjórnarslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hvað stendur visir.is?

Ég var að vafra um netið og rak augun í það á www.visir.is að Tarantino ætli að eyða áramótunum hér. Fréttin er ágætlega unnin, sagt frá því hvern Tarantinu ætlar að hitta og hver sé með honum í för. Einnig var sagt frá því að kappinn hafi heimsótt land og þjóð nokkrum sinnum áður og sé hrifinn af því sem hér er að finna.

Síðar í fréttinni segir að hann og Eli Roth, sem er með honum í för, hafi jafnvel í hyggju að kaupa hús hér á landi og þá sé Kópavogur efst á lista. Það kemur mér ekki á óvart enda veit ég vel eftir 44 ára dvöl í bænum að hér er best að búa. Það veit líka Eyþór Guðjónsson, sem Tarantino er að heimsækja, enda er kappinn sá Kópavogsbúi frá fornu fari.

En svo fór fréttin algjörlega út um þúfur: "Fyrir þá sem hafa áhuga þá verða þeir á skemmtistaðnum b5 í Bankastræti annað kvöld. Munu þeir vera opnir fyrir öllu og eru spenntir fyrir því að kíkja á kvenfólkið sem þeir eru mjög heillaðir af." Hér finnst mér Breki Logason blaðamaður vísis.is skjóta yfir markið og eyðileggja annars ágætlega unna frétt. Er Breki að "redda" stórstjörnunum kvenfólki? Hver er tilgangur hans með þessum upplýsingum? Hvaða hagsmunum er blaðamaðurinn að þjóna? Samræmist þessi blaðamennska ritstjórnarstefnu vísis.is? 

Er nema von að maður spyrji!

http://www.visir.is/article/20071227/LIFID01/71227054


Næsta síða »

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband