Leita í fréttum mbl.is

Heiftarleg fráhvarfseinkenni á Alþingi

Yfir morgunkaffinu geta landsmenn lesið yfirlýsingar formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins um „fullnaðarsigur“ flokksins í stjórnarskrármálinu. En þegar þjóðin fer að rýna í eðli þessa svokallaða sigurs er hætt við að kaffið fari öfugt ofan í mannskapinn. Þau atriði sem sjálfstæðismönnum á þingi tókst að taka af dagskrá með málþófi og yfirgangi gengur út á þrennt eins Samfylkingin hefur bent á.
  1. Að afnema varanlega vald til að gefa eða selja einkaaðilum sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar.
  2. Færa almenningi vald til að geta haft bein áhrif á mál milli kosninga með ákvæðum um þjóðaratkvæðagreiðslur.
  3. Færa almenningi beinna vald til breytinga á stjórnarskrá með ákvæði um hvernig stjórnarskrá er breytt milli kosninga.

Þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins hamast gegn þessum sjálfsögðu breytingum með þeim rökum að verið sé að svipta Alþingi hulta verkefna sinna eða valda er klárlega litið framhjá því að þar verður valdið ekki til. Valdið á uppruna sinn hjá almenningi, í kosningum. Helst mætti halda að Sjálfstæðismenn hafi ákveðið að sjá hvorki né heyra því fólkið, almenningur, hefur frá því í október sett fram kröfu um að meirihlutavald á Alþingi verði tekið frá Sjálfstæðisflokknum. Þessi krafa hefur einnig komið skýrt fram í skoðanakönnunum að undanförnu þar sem fylgi við íhaldsflokkinn, sem allt eins gæti kallast valdsýkisFLokkur, miðað við það hversu heiftarleg fráhvarfseinkenni þeir hafa sýnt í þinginu undanfarna daga.

Ein afleiðing þess að hafna því að stjórnarskrá megi breyta í samræmi við þjóðarvilja á miðju kjörtímabili í stað þess að aðeins Alþingi geti gert slíkt á tvennum þingum, er sú að tefja lyktir mögulegra samninga við Evrópusambandið um aðild óháð vilja kjósenda eða stöðu á þeim tíma. Það þarf mjög sérstakan hugsunarhátt til að kalla framtíðarhindranir í vegi þess að skýlaus þjóðarvilji nái fram að ganga „fullnaðarsigur.“

Laugardaginn 25. apríl fær almenningur, fólkið í landinu, kjósendur tækifæri til að sýna hug sin í verki, losa Ísland við sérhagsmunapólitík Sjálfstæðisflokksins og koma á samfélagi þar sem jöfnuður, jafnrétti og bræðralag ræður för.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Það á ekki að gera sjálfstæðismönnum það til geðs að slíta þingi núna. Leyfum þeim að tala fram að kjördegi. Fylgið reytist af þeim á meðan.

Ef meirihluti Alþingis lúffar fyrir Sjálfstæðisflokknum í þessu máli koma sjallarnir út sem sigurvegarar og sá flokkur sem hafði rétt fyrir sér.

Sigurður Haukur Gíslason, 17.4.2009 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband