Leita í fréttum mbl.is

Hálsinn er að fyllast!

Staðan er þannig núna, að ég er kominn með uppí háls af aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart þeim tímum sem við stöndum nú frammi fyrir. Ok, látum það liggja milli hluta að benda á sökudólga, en elskulegu samflokksmenn og íhaldsfólk farið nú að bera PÓLITÍSKA ÁBYRGÐ. Ef þið berið ekki persónulega ábyrgð á ástandinu, axlið þá pólitíska ábyrgð, bankarnir féllu á ykkar vakt. Víkið úr stólum ykkar og leyfið öðrum að sýna fram á hverjir bera persónulega ábyrgð, ef það voruð ekki þið þá hafið þið ekkert að óttast!

Eiginlega er ég orðin svo reið og sár á aðgerðarleysinu að ég kem ekki hugsunum mínum á blað. Ég les hins vegar reglulega bloggið hjá Jenný Önnu og Láru Hönnu sem tekst með ólíkum hætti að orða vonbrigði mín gagnvart mínum flokksmönnum og þeirri ríkisstjórn sem ég var svo ánægð með vorið 2007.

Austurvöllur á á eftir, mótmæli fá vonandi ríkjandi stjórnvöld á endanum til þess að axla ábyrgð, til að byrja með pólitíska ábyrgð. Sökudólgana getum við fundið þegar um hægist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Urrrrrrrrrrrrrrrrr

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.1.2009 kl. 23:17

2 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Það verður að halda kosningar í vor, hjá því verður vart komist. - Stærsta ástæðan er að þessi samsetning á ríkisstjórn getur ekki tekið þær ákvarðanir sem þarf. Auk þess skortir ríkisstjórninna því miður  tiltrú, hugmyndir, frumkvæði, frumleika, þor og umboð til þeirra stóru verkefna sem við blasa.

- Þá er ég ekki að gleyma að Jóhanna á félagsmála-vaktinni hefur ekki klikkað á sínu svo langt sem það nær innan þessarar gerðar ríkisstjórnar.

Helgi Jóhann Hauksson, 11.1.2009 kl. 07:31

3 identicon

Gott að sjá einhvern gagnrýna "sitt" fólk, það versta sem við getum gert er að flykkja okkur í skotgrafirnar, deila okkur upp í nokkra hópa sem allir eru blindir á "eigin" fólk en sjá allt hjá "hinum".

Staðan er nefnilega einfaldari, það eru tveir hópar, annarsvegar eru það flest okkar, og þar á meðal e.t.v. einhverjir þingmenn, svo eru það örfáir áhugamenn um vald hinna fáu yfir mörgum.

Þannig get ég bent þér á að ríkisstjórnin var ekki aðgerðalaus, hún byggði upp óeirðalögreglu, reynsluók henni við Rauðavatn, er að þjálfa stóra viðbót við sérsveitina, og síðast en ekki síst, Geir Haarde lagði mikla áherslu á að nú væri ekki tíminn til að benda fingrum, og flestir stjórnmálamenn hafa svo sannarlega heyrt skilaboð leiðtoga síns með það.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 11:57

4 Smámynd: Guðrún S Hilmisdóttir

Já það er í raun ótrúlegt hvað stjórnmálamönnum okkar finnast þeir vera algjörlega lausir við að bera nokkra einustu ábyrgð á því ástandi sem við erum komin í.  Hvar ætla þeir síðan að finna þessa 80 milljarða sem ríkið þarf að borga í vexti?  Jú í heilbriðisgeiranum, þar virðist vera hægt að skera niður um einhverja milljarða án þess að það komi niður á þjónustunni! 

Guðrún S Hilmisdóttir, 11.1.2009 kl. 12:15

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Jenný ... grrrrrr

Helgi, sammála kosningar í vor og ekkert kjaftæði. Jóhanna er best og gerir það sem í hennar valdi er.

Gullvang, það versta sem nokkur stjórnmálamaður í valdastöðu gerir er að safna í kringum sig já-fólki. Það er því mikilvægt fyrir samflokksmenn að horfa gagnrýnum augum á gjörðir þeirra. Ég efast ekki um það eitt augnablik að stjórnmálamennirnir telja sig vera að gera sitt besta, stundum er það ekki nóg. Oft er það ekki það sem almenningur vill. Í dag snýst krafan held ég fyrst og fremst um að menn axli sína pólitísku ábyrgð en séu ekki eins og strútar, búnir að stinga höfðinu í sandinn.

Guðrún, 80 milljarðar segir þú, Gulli heilbrigði segist spara 1,3 milljarða á ári. Sú spurning hefur stundum skotist upp í kollinn á mér hvort staðan sé ekki einfaldlega sú að Íslendingar hafi ekki efni á þeirri velferðarþjónustu sem búið var að byggja upp? Þá þarf að forgangsraða og segja sannleikann en ekki setja allt í einhvern hagræðingarfasa sem allir eru búnir að fá nóg af!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 11.1.2009 kl. 17:13

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Slagorðið er því:"Háls í Kjós",    ég bæði veit,vil og skil,ég á ekkert eftir nema aulafyndni.  Ætlarðu að hirta gömlu.

Helga Kristjánsdóttir, 15.1.2009 kl. 03:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 129515

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband