23.10.2009
Ætli það sé óhætt
að skrifa hér færslu sem gæti verið höfðingjunum í Hádegismóum á móti skapi?
Í hinu skelfilega dagblaði DV er því haldið fram að moggabloggara hafi verið hent út af mbl.is vegna þess að hann skrifaði færslu um fyrrverandi ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu (eða er hann kannski fráfarandi?). Nú veit ég ekki hvað stóð í bloggi litla Landsímamannsins en kannski var þar eitthvað um það að farið hafi fé betra úr embættismannakerfi stjórnsýslunnar? Ekki veit ég það.
En af hverju kýs ráðuneytisstjórinn að hverfa af vettvangi nú, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa skrifað bréf þar sem hann furðar sig á að mál hans hafi verið tekið upp hjá sérstökum saksóknara. Hann hafi jú verið hreinsaður af öllum grun!!
Persónulega veit ég ekkert um þetta mál annað en það sem fjölmiðlar hafa greint frá en öllu hugsandi fólki hlýtur að vera ljóst að maður sem átti fund með fjármálaráðherra Bretlands og hafði auk þess aðgang að upplýsingum frá sérfræðingum í ... hvað var það ... "fjármálahruni" - hann bjó yfir meiri vitneskju en allur almenningur hér í landi. Ég furða mig í sjálfu sér ekki á því að hann hafi selt hlut sinn í Landsbankanum og hugsa að ég hefði gert það sama hefði ég verið í hans sporum. En ég er allt eins viss um að ég hefði talið það siðferðilega rangt að eiga hlut í fjármálafyrirtæki, eða öðru því fyrirtæki sem var skráð í Kauphöllina, væri ég ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu!!!
Það er ekki mikil reisn yfir aumlegu yfirklóri ráðuneytisstjórans um að hann hafi ekki búið yfir öðrum upplýsingum en almenningur hér á landi. Nú er mál hans í höndum sérstaks saksóknara og þá mun sannleikurinn koma í ljós. Mín tilfinning er að hann muni ekki eiga sjö dagana sæla, en hans huggun er þó að margir vinir hans sitja í sætum dómara. Ætli það verði honum ekki til bjargar þegar á hólminn er komið!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Nei þér er örugglega ekki óhætt að segja skoðanir þínar hér á blogginu. Þú gæti átt það á hættu að vera sett á klakann eins og Ögmundur, þegar hann var ekki nógu hlýðinn við Jóhönnu. í ríkisstjórninni eiga jú allir að hafa sömu skoðun, og mér sýnist að það sé línan í Samfylkingunni, SKOÐUNIN og hirðin jarmar með.
Sigurður Þorsteinsson, 23.10.2009 kl. 21:53
Siggi, Siggi, Siggi ... ég hélt þú þekktir mig! Ertu að reyna að halda því fram að ég fari eftir því sem aðrir segi mér og hafi eina skoðun bara vegna þess að einhverjir aðrir hafa hana? Þú þekkir mig greinilega ekki rétt ef þú heldur þessu fram!
Eina sem getur stutt við þessa skoðun þína er að þú haldir að Samfylkingin sé undir sömu sök seld og Sjálfstæðisflokkur, þar sem ein skoðun ríkir, og ein skoðun aðeins!
Ingibjörg Hinriksdóttir, 23.10.2009 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.