Leita í fréttum mbl.is

Að loknum 1. maí

Þá er 1. maí frá þetta árið. Ég hef aldrei gert mikið úr þessum degi, hef nokkrum sinnum þrammað í kröfugöngu en í dag hélt mig að mestu leyti heima. Hlýddi þó á fréttir af fundahöldum hér og þar um landið.

En nú undir kvöld leit ég við á YouTube, rétt eins og ég geri alloft og rakst þar að nýju á myndband sem Fésbókarvinur minn benti mér á fyrir nokkru síðan. Er þetta lagið Amsterdam, sem ég heyrði fyrst í flutningi David Bowie uppá enska tungu. Strax við fyrstu hlustun gjörsamlega féll ég fyrir laginu. En myndbandið sem ég rakst á á YouTube var að ég held með upprunalega flytjandanum, Jacques Brel. Það er alveg ljóst að lagið hlaut dýpri og meiri merkingu við að heyra þann flutning, jafnvel þó ég skilji varla orð í frönsku.

Og fyrst ég er farin að dreifa tónlistarmyndböndum á framandi tungu hér, er þá ekki rétt að benda á þetta hérna líka. Flytjandinn, sem jafnframt er höfundur lags og texta, er Anne Linnet og lagið er Tusind stykker. Eintóm snilld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

MÆ,MÆ,  meina mai, fuglarnir mínir líta ekki við mér lengur,það er gott.    Það þýðir þeir eru ekki svangir lengur. Þeir eru í tilhugalífinu sé þá sækja efni í bústað fyrir ungana sína. Þeir ganga að því án suldbindinga,frjálsir,fallegir.      Þeir syngja, fögur er hlíðin,himneskum tónum,héðan fer ég aldri.

Helga Kristjánsdóttir, 2.5.2009 kl. 05:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 129480

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband