Leita í fréttum mbl.is

35 ár frá Vestmannaeyjagosi

Í dag er þess minnst að 35 ár eru frá upphafi Vestmannaeyjagossins. Fréttatímar allra miðla hafa verið fullir af upprifjun um þennan magnaða atburð sem svo rækilega situr í þeim sem komnir voru á skólaaldur þegar gosið hófst. Ég man vel eftir gosinu, það var bæði spennandi og ógnvekjandi í senn og ég man vel eftir mörgum ferðum austur á Kambabrún til að sjá gosið úr fjarska. Svo var líka bein útsending í sjónvarpinu frá gosinu og ég minnist þess að hafa setið löngum stundum og horft á svart hvíta útsendingu frá Eyjum.

Ríkissjónvarpið gerði gosinu góð skil í kvöld. Dagskráin var mjög metnaðarfull og greinilegt að þar hefur ekkert verið til sparað svo útsendingin úr Eyjum yrði sem best. Enda engin furða þar sem sjónvarpsstjórinn er enginn venjulegur Eyjamaður frá þeim tíma, heldur bæjarstjórasonurinn sjálfur.  Ég tek hatt minn ofan fyrir Páli Magnússyni að hafa heimilað þessa útsendingu, ég veit ekki hvort hann hafi átt frumkvæðið að henni en ef svo er þá hneigi ég mig einnig. Þau Þórhallur og Ragnhildur stóðu sig frábærlega í beinni útsendingu, umfjöllunin um gosið var að mér fannst á álíka æðrulausum nótum og íbúar Vestmannaeyja sýndu á gosnóttina sjálfa. Margoft hef ég heyrt lýsingar af því hvernig íbúum Eyjanna var innanbrjósts þegar þeir héldu niður á bryggju og jafnoft hef ég furðað mig á því af hverju það ríkti svona mikil þögn í göngu þeirra. Ég fékk enga skýringu á því í kvöld og reikna svo sem ekki með að fá skýringu, en ég furða mig samt á því.

Við Þórhallur Gunnarsson vorum bekkjarsystkin í Digranesskóla hér forðum daga. Fljótlega eftir að gosið hófst bættust nokkrir krakkar í árganginn okkar og ekki bara það, heldur fengum við líka kennara úr Vestmannaeyjum þegar við vorum í 11 ára bekk, Ólöfu Margréti Magnúsdóttur. Hún var góður kennari, ákveðin en þó mátulega ströng. Ólöf flutti aftur út til Eyja og ég fékk ekki betur séð en að hún hafi verið mætt í Höllina og verið í salnum á meðan á útsendingu stóð.

Eyjamönnum óska ég til hamingju með daginn, þetta er klárlega dagur til að gleðjast yfir.

19_deild

Á myndinni hér til hliðar, sem er úr 19. deild Digranesskóla (12 ára bekk) má sjá þáverandi kennara okkar Guðbjörgu Emilsdóttur og þrjá nemendur hennar: Þórhall Gunnarsson, Ingibjörgu Hinriksdóttur og Valtý Björn Valtýsson ... allt ákaflega vel þekkt fjölmiðlafólk hvert á sínu sviði! Wink

 


Svo gott sem fullkominn dagur

Ef ekki hefði verið fyrir slæmar fréttir úr Reykjavík hefði þessi dagur verið fullkominn. Eftir að hafa sinnt skyldum mínum í vinnunni (og kastað m.a. kveðju á bloggvin minn Árna Þór) þá fór ég í heitsteinanudd hjá Comfort snyrtistofu í Álfheimum. Ég hef ekki áður prufað svona nudd, er reyndar lítið fyrir nudd nema í sundlauginni í Versölum, og það var nánast himneskt!

Nuddið fékk ég að gjöf frá samstarfskonum mínum hjá sambandinu er ég bauð þeim í heimsókn til mín skömmu fyrir jól. Í 75 mínútur var dekrað við mig, nokkrir lítrar af olíu fóru í að þekja kroppinn sem hreinlega drakk í sig vökvann. Svo fékk ég slakandi nudd allt frá hvirfli til táar ... algjörlega ótrúlega meiriháttar gott! Kissing.  Þegar ég kom úr nuddinu tóku við fréttir af meirihlutaslitum í Reykjavík, en ég var svo afslöppuð eftir nuddið að það kom mér ekki úr neinu einasta jafnvægi. Ég lít enda svo á að verðandi meirihluti sé andvana fæddur og bíð í raun aðeins eftir jarðaförinni.

Eftir að hafa hlustað nægju mína af flestum stjórnmálaskýrendum landsins fara yfir mál dagsins (þar sem Sigríður Andersen var áberandi verst) fór ég í Salinn til að fylgjast með verðlaunaafhendingu fyrir Ljóðstaf Jóns úr Vör. Sigurvegari var Jónína Leósdóttir, sem sendi inn ljóðið „Miðbæjarmynd“. Ákaflega fallegt og stutt en hnitmiðað ljóð. Einnig fengu viðurkenningu þau Helgi Ingólfsson rithöfundur fyrir ljóðið „Menn hlæja bara að þeim“, sem er bráðskemmtilegur prósi um Fjölnismenn í kóngsins Kaupinhöfn og Davíð Hjálmar Haraldsson ljóðskáld fyrir „Hann blæs“ en samkvæmt útlistun dómnefndar er þar um að ræða ítalska sonnettu.

Til að toppa daginn þá flutti Ragnheiður Gröndar fjögur lög í Salnum, fyrst Táraborg eftir Megas, þá Hvert örstutt spor eftir Halldór Laxness og eftir verðlaunaafhendingu lék hún lagið Landgangur eftir Hallgrím Helgason og endaði svo á einu fallegasta ástarljóði sem samið hefur verið á íslenska tungu, Ást við texta Sigurðar Norðdals og lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar. Ég bíð enn eftir því að einhver lagahöfundurinn hafi sig til og semji lag við fallegasta ástarljóð íslenskrar tungu Ferðalok Jónasar Hallgrímssonar...

Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg;
en anda sem unnast
fær aldregi
eilífð að skilið! 
Það er ekkert sem toppar þetta!

Það var hreint yndislegt að sitja í Salnum algjörlega afslöppuð eftir magnað nudd og í góðra vina hópi og hlusta á þessa frábæru listamenn. Ég óska vinningshöfum í ljóðakeppninni innilega til hamingju með viðurkenningarnar og þakka fyrir mig.


Bara hringja í mömmu ...

Um daginn átti ég leið framhjá fjölbýlishúsi í Kópavogi þegar ég sé þrjá unga pilta lyfta hægri hönd og miða á bílinn minn. Bíllinn minn er nýleg Toyota Corolla, draumabíllinn sem ég hef lagt mikið á mig til að eignast (eða þannig ... Lýsing er skráður eigandi!).  Að minnsta kosti tveir boltar hittu bílinn og ég snöggreiddist, snögghemlaði og snögglagðist á flautuna á bílnum. Þar sem strákarnir sáu mig ekki, ruku þeir af stað og hlupu í skjól. Ég hefði aldrei náð þeim á hlaupum og datt það reyndar ekki í hug!

Þegar ég ek síðan í burtu minnist ég þess að ég kannast við eina ágæta konu sem býr einmitt í þessu húsi. Ég var með símanúmerið hennar í símanum mínum og hringi.

- „Halló“
- „Já blessuð, þetta er Ingibjörg, hvað segir þú? Meira hvað það hefur snjóað.“
- „Sæl, jú ótrúlegt magn af snjó. En þetta er bara gaman. Krakkarnir úti að leika sér og rólegt inni hjá mér.“
-„Já einmitt, en ég ætlaði einmitt að benda þér á að ég var að keyra framhjá húsinu þínu og þá stóðu þrír piltar þar fyrir utan og voru að kasta snjóboltum í bílana sem aka framhjá. Ég vona að það hafi ekki verið þinn drengur!“
- „Varst þú að kasta snjóboltum í bíla fyrir utan áðan ....“
Þögn ... svo heyrist svarað lágum rómi. „Já, en ég kom bara inn til að pissa!“ 
- „Ertu alveg brjálaður drengur, þú mátt ekki vera að kasta snjóboltum í bílana, þú getur truflað bílstjórana og þeir geta lent í árekstri. ... Heyrðu, jú þetta var minn strákur, ég er búin að lesa yfir honum. Þakka þér fyrir að láta mig vita!“


mbl.is Reiddist þegar snjó var kastað í bílinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreyttur á framsókn

Á vefsíðu Vísis, www.visir.is, þann 19. janúar sl. birtist frétt um að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi, væri að gefast upp á Framsóknarflokknum. Í fréttinni segir m.a.: „Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins er orðinn svo þreyttur á innbyrðis deilum og leiðindum innan flokksins að hann er að gefast upp á að starfa innan hans.

Ástæða leiðans hjá Birni Inga er trúnaðarbréf sem Guðjón Ólafur Jónsson fyrrverandi þingmaður flokksins skrifaði til 2000 flokksfélaga, að eigin sögn í stað jólakorta. Í bréfinu ræðir Guðjón Ólafur um vanda framsóknarflokksins. Hann segir meðal annars að fyrir síðustu kosningar hafi frambjóðendur keypt sér föt fyrir hundruð þúsunda króna allt á reikning Framsóknarflokksins.

Í sjónvarpsfréttum í gær beitti Björn Ingi fyrir sig gömlum töktum úr íþróttafréttamennskunni og sagðist vera orðinn leiður á því að verja eigið mark fyrir ásókn eigin leikmanna. Björn Ingi sagði eitthvað á þá leið að það væri „erfitt að vinna leik ef maður kemst ekki í sókn vegna þess að maður er upptekinn við að verja eigið mark fyrir sjálfsmörkum samherja sinna.“

Hann lauk síðan spjallinu í sjónvarpinu með því að segja að hann ætlaði að íhuga stöðu sína innan flokksins enda væri hann að gefast upp á að starfa innan hans.

Hvernig sem á þetta er litið þá er málið allt hið versta fyrir Framsóknarflokksins. Undanfarin ár hefur allt logað í illdeilum innan flokksins, enda fór það svo að flokkurinn stórtapaði fylgi bæði í sveitarstjórnarkosningunum 2006 og í alþingiskosningunum 2007. Hér í Kópavogi fara framsóknarmenn fínt með ágreining sinn, það er þó greinilegt hverjum þeim sem leggur við hlustir að ekki eru allir hér á bæ sáttir við framgöngu oddvita flokksins og fylgispekt hans við Gunnar Birgisson. Þar hafa þó ekki verið send trúnaðarbréf í 2000 eintökum ... sem er náttúrulega bara grín, svona út af fyrir sig.


Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!

Ó þér unglingafjöld og Íslands fullorðni synir
Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!
 

Fischer var stórkostlegur skákmaður, sennilega einn sá mesti sem uppi hefur verið. Ég man eftir einvíginu 1972 og furðaði mig oft á fréttum um undarlega hætti þessa bandaríkjamanns. Hann mætti jafnvel ekki til leiks og tapaði skákum viljandi. En ég man líka eftir hrifningunni sem greip hina íslensku þjóð þegar hann sýndi nokkur af sínum mögnuðu tilþrifum og stórkostlegu leikjum á reitunum 64. Fyrir það verður hans minnst, en hans verður einnig minnst fyrir þá hegðan sem hann sýndi á síðari árum, hatrið, brjálæðið, sérviskuna og annað sem gerði það að verkum að menn hálfpartinn óttuðust hann enda aldrei að vita uppá hverjum hann gat tekið. Að grafa Bobby Fischer í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum er fáránleg hugmynd sem ég vona sannarlega að komi aldrei til framkvæmda.

Í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum liggja mætir menn, stórhugar, eldhugar, framsýnir menn, stórkostlegir menn hver á sínu sviði. Þeir Jónas Hallgrímsson og Einar Benediktsson eiga það sameiginlegt að hafa viljað Íslandi allt. Ísland var alltaf í forgrunni ævi þeirra þó hvor þeirra um sig hafi sett það fram á mismunandi hátt. Hugmynd Einars að sölu norðurljósanna er alls ekki eins galin og hún leit út í fyrstu og segja má að vetrarferðir erlendra ferðamanna til Íslands blandist í og með þeirri hugmynd að selja norðurljósin. 

Veit duftsins son nokkra dýrlegri sýn
en drottnanna hásal í rafurloga?
Sjá grundu og vog undir gullhvelfdum boga! –
Hver getur nú unað við spil og vín?
Sjálf moldin er hrein eins og mær við lín,
mókar í haustsins visnu rósum.
Hvert sandkorn í loftsins litum skín,
og lækirnir kyssast í silfurósum.
Við útheimsins skaut er allt eldur og skraut
af iðandi norðurljósum.
  

Jónas vildi sjá Ísland sem fullstöndugt, sjálfstætt ríki. Draumar hans lutu að því og hann skilaði þjóðinni hugsunum sínum í einhverjum fegurstu ljóðum sem ort hafa verið.

Ísland! farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir!
Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?
Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama
lýsir sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld.
Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,
himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.
Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu
austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit.
Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti;
ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt.
Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð.
Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði.
Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll.
Þá riðu hetjur um héröð og skrautbúin skip fyrir landi
flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim.
Það er svo bágt að standa’ í stað, og mönnunum munar
annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.
Hvað er þá orðið okkart starf í sex hundruð sumur?
Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?
Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,
himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart.
En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.
Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga
blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik.
Ó, þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir!
Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!


mbl.is Fischer grafinn á Þingvöllum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband