15.2.2008
Fylgiskönnun Plússins
Var að lesa frétt inná www.dv.is þar sem fram kemur að Sjálfstæðisflokkurinn nýtur minna fylgis en nokkru sinni áður, eða 22 prósenta, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Plússins. Hins vegar segjast um 42 prósent styðja Samfylkinguna. Um 14 prósent styðja Vinstri græna. Aðrir flokkar fá minna fylgi.
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar treystir einungis fimmti hver kjósandi samanlagt Ólafi F. Magnússyni og Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni til að gegna embætti borgarstjóra. Níu prósent segjast treysta Vilhjálmi best til að verða borgarstjóra. Núverandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon, nýtur ellefu prósenta fylgis. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, hlýtur aftur á móti stuðning 79 prósenta aðspurðra. Könnunin var gerð eftir Kastljósþáttinn fræga þar sem Vilhjálmur vísaði til þess að hann hefði ráðfært sig við borgarlögmann vegna umboðs síns í REI-málinu svokallaða.
Alls tóku rúmlega 4000 manns þátt í skoðanakönnuninni og voru þeir búsettir víðsvegar um landið. Taka verður mið af því að 72 prósent þátttakenda í könnuninni eru konur. Þá er einungis fimmtungur svarenda yfir fimmtugu.
Þessi könnun verður að teljast marktækari en könnun Heims um daginn þar sem aðeins nokkur hundruð svöruðu. Fyrirvarinn sem settur er aftast í könnunina bendir hins vegar til að sá sem skrifar fréttina vilji draga úr vægi hennar og tiltekur því kynjahlutfall og aldursbil þeirra sem svöruðu. Má þá draga þá ályktun að ungar konur styðji Samfylkinguna meira en aðra flokka og sé í sama mæli ekki eins hallar undir Sjálfstæðifslokkinn?
15.2.2008
Hann er alltaf svo málefnalegur
Tilvitnunin í Gunnar í fréttinni er stórskemmtileg og sýnir hvað hann er alltaf málefnalegur:
Það segir Samfylkingin en við tökum ekki mark á því, þeir eru á móti öllum skipulagsmálum hér og hafa alltaf verið. Við kippum okkur ekkert upp við það og höldum okkar striki,"
Hann sagði líka á umræddum bæjarstjórnarfundi að það væri ekki að marka Samfylkinguna af því að bæjarfulltrúar hennar hefðu ekki til þess neina menntun. Það er gott fyrir kjósendur Gunnars og stuðningsmenn að vita að hans mati skiptir menntun öllu máli þegar kemur að ákvarðanatöku. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi, rétt eins og Kópavogsbúar almennt, eru ákaflega vel menntaðir og skynsamt fólk með víðtæka reynslu. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar eru fullfærir um að taka skynsama ákvörðun í skipulagsmálum Kópavogsbæjar. Það eru ekki bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar sem hafa verið í endalausum deilum við íbúa bæjarins vegna skipulagsmála, um það hefur meirihluti bæjarstjórnar undir forystu Gunnars Birgissonar og Ómars Stefánssonar séð.
Það er ljóst, af deilum undanfarinna ára um skipulagsmál í Kópavogi, að það er ekki aðeins Samfylkingin sem Gunnar Birgisson tekur ekki mark á, hann tekur heldur ekki mark á íbúum bæjarins og skoðunum þeirra, enda hafa þeir sjálfsagt ekki til þess menntun að hans mati.
![]() |
Gunnar Birgisson: Höldum okkar striki" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2008
Er í lagi að Mogginn segi ósatt?
Eftirfarandi grein eftir Dag B. Eggertsson birtist á Vísi.is í dag.
Morgunblaðið sagði vísvitandi ósatt í leiðara eftir nýjustu meirihlutaskiptin í borgarstjórn og hélt því fram að ég hefði krafið Ólaf F. Magnússon borgarstjóra um vottorð. Þetta hefur ítrekað verið borið til baka af Gunnari Eydal skrifstofustjóra borgarstjórnar og síðast Ólafi F. Magnússyni sjálfum. En aldrei hefur Morgunblaðið leiðrétt rangfærslu sína. Hvað þá beðið hlutaðeigandi afsökunar.
Í Staksteinum í dag gerir Morgunblaðið Samfylkinguna ábyrga fyrir kaupréttarsamningum REI sem samþykktir voru í stjórn REI og hvergi annars staðar - þar sem enginn Samfylkingarmaður átti sæti. Morgunblaðið segir vísvitandi ósatt um þetta.
Morgunblaðið veit líka að minnihluti stjórnar Orkuveitunnar og meðeigendur Reykvíkinga voru leyndir því af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og forystu Sjálfstæðisflokksins að "þjónustusamningur" sem lagður var fram á stjórnarfundi OR í REI-málinu á ensku var ranglega kynntur og var í raun 20 ára einkaréttarsamningur á nafni, þekkingu og starfskröftum Orkuveitunnar.
Um ábyrgð Sjálfstæðisflokksins á þessu vitna fréttir og leiðara Morgunblaðsins síðustu daga. Staksteinar kjósa engu að síður að gera framgöngu fulltrúa Samfylkingarinnar á stjórnarfundinum tortryggilega. Af hverju biður Morgunblaðið ekki allt eins fulltrúa Akraness sem var jafngróflega blekktur og aðrir í þessu máli að segja af sér?
Morgunblaðið hefur mér að vitandi aldrei haldið því fram að það sé í lagi að stjórnmálamenn segi ósatt heldur þvert á móti að þeir þurfi að axla ábyrgð ef þeir eru staðnir að því. Hvernig má það vera að Morgunblaðið segi ítrekað ósatt, birti ekki leiðréttingar eða afsökunarbeiðni og að enginn, hvorki ábyrgðarmaður né eigendur geri sig líklega til að axla ábyrgð á því?
Er Morgunblaðið svo djúpt sokkið að það skeytir ekki lengur um skömm eða heiður? Lenti Morgunblaðið ef til vill bara í þessu? Eða er jafnilla komið fyrir Morgunblaðinu og Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík að það hafi ekki styrk til að taka á sínum innri vandamálum og kjósi því frekar að afneita þeim og reyna að beina sjónum almennings annað?
Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, hefur ritað ítarlega færslu á bloggi sínu um hreint ótrúlegar teikningar sem nú liggja á borði bæjarskipulags Kópavogsbæjar. Í þeim teikningum er allt að því ómanneskjuleg þétting byggðar í nágrenni Smáralindar sem gerir ráð fyrir áttfaldri Reykjanesbraut (fjórar akreinar í hvora átt) auk tveggja hliðarreina sitt hvoru megin við brautina, alls 12 akreinar.
Kópavogsbúum og reyndar öllum þeim sem eiga erindi í Smáralind og næsta nágrenni er fullljóst að nú þegar er gatnakerfið þar um kring sprungið. Vegabætur eru vissulega í farvatninu en það á líka við um annað. Turninn við Smáratorg fer að komast í gagnið og þá mun umferð aukast til mikilla muna. Þeir sem hafa lagt leið sína í World Class í Laugum gera sér væntanlega fulla grein fyrir þeirri umferð sem fylgir þeirri starfsemi og þó World Class í Turninum sé ekki nærri því eins stór og í Laugum þá mun sú starfsemi hafa talsverð áhrif á umferð. Líkamsræktin er þó aðeins á einni hæð af 20 í Turninum.
En hér er ekki öll sagan sögð. Í byggingu er nú 15 hæða turn norðan Smáralindar, í Lindum IV er verið að byggja tvö stór verslunar- og skrifstofurými, þegar hefur verið samþykkt að byggja 13 hæða turn við Bæjarlind og atvinnuhúsnæði við Dalveg 32. Þessar byggingar eru samtals ríflega 90.000 fermetrar.
Til viðbótar þessu, sem þegar er samþykkt, er ljóst að á teikniborði bæjarstjórans eru skipulagsbreytingar á Glaðheimasvæðinu sem gera ráð fyrir tæplega 200.000 fermetra verslunar- og þjónustusvæði og sunnan Smáralindar er gert ráð fyrir 140.000 fermetra húsnæði í sama tilgangi. Samtals er því verið að tala um rúmlega 430.000 fermetra af verslunar- og þjónusturými á svæðinu. Grófa skilgreiningu af svæðinu má sjá á myndinni hér til hliðar, ef þú smellir á myndina þá stækkar hún.
Þetta mál varðar alla íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þetta getur ekki verið einkamál bæjarstjórans í Kópavogi og fylgisveina hans í meirihlutanum. Meirihlutinn ætlar sér að lauma þessu skipulagi í gegn í bútasaumi, setja einn turn inn í einu. Á bæjarskipulagi Kópavogs er búið að gera líkan sem ég hef heyrt að líti út eins og Huston í Texas sem mun vera einhver ómanneskjulegasta borg í heimi. Þar er ekki gert ráð fyrir því að gangandi vegfarandi fari nokkursstaðar um. Þetta er kannski framtíðarsýn Ómars Stefánssonar um borgina sem hann langar svo til að búa í. Ég veit það ekki en þetta er a.m.k. ekki sá Kópavogur sem ég vil byggja.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2008
Hvað kostar svona björgun?
![]() |
Lögðu á lokaða Holtavörðuheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson