29.12.2008
Dollý er búin að spá
Um helgina kíkti ég í heimsókn til Dollýar vinkonu minnar. Hún var búin að lofa að spá fyrir um árið 2009 og ekki stóð á spádómum hjá henni síðla á laugardagskvöldið. Nú rétt áðan hafði hún hins vegar samband við mig, algjörlega brjáluð og spurði hvort ég væri búin að birta spánna (en það má alls ekki gera fyrr en síðla annað kvöld eða á gamlársdag). Ég neitaði því vitaskuld, enda hefur spáin hvergi birst ennþá og mun ekki koma fyrir almenningssjónir fyrr en síðla annað kvöld (eða á gamlársdag).
Þegar ég fór að ganga á vinkonuna kom í ljós að hún hafði hlustað á Bylgjuna skömmu fyrir klukkan sex og þá heyrði hún viðtal við Gunnlaug stjörnuspeking. Ég hlustaði reyndar líka á þáttinn og hugsaði með mér að Dollý hafi heldur betur verið spekingsleg á laugardag, því allt sem Gunnlaugur sagði var það sama og Dollý sagði mér. Það tók mig langan tíma og loforð um koníaksflösku að róa Dollý og vona ég að hún trúi mér þegar ég segi að spáin hennar hefur hvergi birst ennþá. Reyndar sagði ég Sigrúnu systur frá spánni í gær, en ég hef enga trú á því að hún sé í neinu sambandi við stjörnuspekinginn. Ég vona a.m.k. ekki.
Hvað um það, spáin birtist annað kvöld eða á gamlársdag. Verið bara dugleg að kíkja inn svo spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2009 fari örugglega ekki framhjá ykkur.
27.12.2008
Sækjast sér um líkir
Seint hefði ég trúað því á mig að vitna í orð Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra en ætla að gera það engu að síður. Á bloggi sínu í dag skammast hann út í Pál Magnússon, bæjarritara og formannsefni Framsóknarflokksins og segir:
Nú fimm árum síðar virðast forystumenn í Samfylkingu og Framsóknarflokki enn vera komnir í hár saman vegna Evrópumála og enn bíða þeir eftir því, hvað Sjálfstæðisflokkurinn segir. Páll Magnússon segir, að hafi Framsóknarflokkurinn verið hækja Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn sé Samfylkingin skækja Sjálfstæðisflokksins í núverandi ríkisstjórn.
Þetta orðbragð Páls er líklega til marks um nýja tíma í stjórnmálum. Ég tel það ekki til neinna bóta og ekki auðvelda neinum að gera upp hug sinn.
Það er helst næst síðasta setning Björns sem vekur mig til umhugsunar. Manni sem starfar í skjóli bæjarstjórans í Kópavogi er vorkunn, bregði hann fyrir sig orðbragði sem þessu. Slíkt er alkunna í bæjarstjórn Kópavogs og fer þar bæjarstjórinn jafnan fremstur meðal jafningja. Oft hefur verið sagt að menn smitist af því umhverfi sem þeir starfa í og þeim háttum sem þar eru hafðir í hávegum. Orðbragð Páls Magnússonar í garð Samfylkingarinnar kemur mér því engan veginn á óvart. Björn Bjarnason ætti kannski frekar að beina umvöndunum sínum til yfirboðara Páls í Kópavogi og biðja hann um að gæta orða sinna. Það er þaðan sem Páll fær munnsöfnuðinn og sjálfsagt kannast hann vel við það að vera skækja eða hækja Sjálfstæðisflokksins, þann starfa hafa Páll og félagar hans í Framsóknarflokknum í Kópavogi haft frá árinu 1990.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.12.2008 kl. 01:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.12.2008
Hangikjötið tilbúið fyrir jóladag
Eftir að hafa pirrað mig ögn með Sigrúnu systur minni yfir formanni eða framkvæmdastjóra Húseigendafélagsins og skötuönugheitum hans, og eftir að hafa etið mig á hliðina með rétti dagsins þá kom ég heim og setti hangikjötið í pott. Ég, rétt eins og Sævar Karl, hef einfaldan smekk og vil væna flís af feitum sauð að bíta í á jólunum ... kertaljós (ok þið þekkið framhaldið) það er því mitt val að fá mér frekar frampart en læri þegar kemur að hangikjöti. Í ár fékk ég mér Fjallahangikjöt að norðan og ég fann það þegar suðan kom upp í pottinum að það er verkað á gamla góða mátann! Meiri reyklykt en salt og lyktin auk þess þéttari. Þetta er því pottþétt kjöt til að yfirgnæfa skötulyktina sem fer svona óskaplega mikið í taugarnar á húseigendafélagsformanninum (framkvæmdastjóranum).
Ef eigendum íbúða í fjölbýli verður bannað að sjóða skötu á þeirra eigin heimili þá krefst ég þess að þeim verði einnig meinað að reykja innandyra eða utan eða í næsta nágrenni við hýbýli sín ... sígarettufnykur er viðbjóður og það er læknisfræðilega sannað að hann er heilsuspillandi, ekki aðeins fyrir þá sem reykja, heldur einnig hina sem verða fyrir honum. Annars er ég komið í slíkt jólaskap að ég nenni alls ekki að pirra mig lengur á þessu og óska formanninum/framkvæmdastjóranum og öllum þeim sem eta skötu eða ekki gleðilegra jóla. Verið góð við hvert annað og umburðarlynd ... Knús!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2008
Skata er góð
Á Þorláksmessu get ég ekki látið hjá líða að skýra frá dálæti mínu á skötu. Þessi dýrindis matur var á æskuárum mínum á boðstólum í hádeginu á laugardögum ásamt saltfiski, þótti þá herramannsmatur og þykir enn. Í hádeginu í dag fór ég í Höfðakaffi og fékk mér smakk af skötunni en í kvöld liggur leiðin í foreldrahús þar sem önnur veisla bíður. Ummmmm ... yndislegt! Jólin koma, jólin koma!
17.12.2008
Gleðileg jól
Kæru vinir nær og fjær,
ég sendi ykkur mínar bestu óskir um gleðiríka jólahátíð og farsæld á komanda ári. Það verður lítið bloggað fram að áramótum enda hefur Dollý dulræna sótt fast að mér undanfarna daga. Áramótaspá hennar verður hér á blogginu að kvöldi 30. desember eða síðdegis þann 31.
Spánna fyrir árið 2008 má lesa í skjalinu sem fylgir neðst í þessari færslu.
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson