6.11.2009
... útvegaði lán hjá Landsbankanum!
Á síðasta ári stöðvuðust framkvæmdir við hið nýja íþróttahús þar sem laust fé akademíunnar var uppurið. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri dó ekki ráðalaus og útvegaði Knattspyrnuakademíunni lán hjá Landsbankanum til að ljúka við byggingu hússins.
Ofanrituð setning kemur fyrir í frétt á visir.is þar sem fjallað er um deilur Knattspyrnuakademíu Íslands og Kópavogsbæjar um afnot af íþróttahúsi sem fyrrnefndi aðilinn byggði í Kórahverfi í Kópavogi. Reyndar byggði bærinn knattspyrnuhöll fyrir Akademíuna líka og akademían átti að byggja íþróttahús, sundlaug og líkamsræktarstöð.
Ég ætla svo sem ekki að blanda mér í deilurnar um knatthúsið og íþróttahúsið (ég er viss um að einn ákveðinn aðili setur inn athugasemd hér á bloggið hjá mér og fjallar um það í löngu máli) en það sem vakti athygli mína er setningin hér að ofan. Gunnar ... útvegaði Knattspyrnuakademíunni lán hjá Landsbankanum ... - já mikill er máttur doktorsins!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Já er nú verið að bíða eftir athugasemd frá Sigurði?
Magnús Helgi Björgvinsson, 6.11.2009 kl. 19:51
Sæl Ingibjörg mín, þú ert kjörinn varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. Sem slíkur hefur þú þagað af skömm þegar samningurinn um Kórinn ber á góma. Þú skuldar Kópavogsbúum skýringar. Hvað tapaði Kópavogsbær á bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar?
Sigurður Þorsteinsson, 6.11.2009 kl. 19:52
Sko! Maggi, Siggi mættur!
Siggi, ég er margbúin að segja þér að ég ætla ekki að eiga í deilum við þig vegna þessa. Ég skal lofa þér því að komast til botns í því hversu miklu bærinn hefur tapað á samningnum við Knattspyrnuakademíuna ... þegar upp er staðið! Í dag er að ég held algjörlega ómögulegt að meta hversu mikið tapið er, en ég held að það sé kristaltært að það er umtalsvert og verður sjálfsagt enn meira.
Svo getum við togast á um það hverjum tapið er um að kenna!
Ingibjörg Hinriksdóttir, 6.11.2009 kl. 19:59
Ingibjörg við eigum ekkert að þurfa að deila um þessa byggingu. Hins vegar ætla ég að biðja þig að taka þetta tap saman .... áður en upp er staðið. Því mig grunar að aðilar sem að þessu máli koma vilji draga uppgjör þar til eftir kosningar. Þú skorðir á Ingibjörgu Sólrúnu að segja af sér, þá var hún fárveik, en átti að sjálfsögðu að segja af sér. Nú er komið að áskoruninni í Kópavoginum.
Sigurður Þorsteinsson, 6.11.2009 kl. 22:52
Siggi, þetta verður allt gert upp!
Ingibjörg Hinriksdóttir, 6.11.2009 kl. 22:56
Ef þetta er ekki dæmi um gjaldþrot frjálshyggjunnar og einkaframtaksins í lögbundnum verkefnum sveitarfélaga þá veit ég ekki hvað. Að bærinn hafi látið einkafyrirtæki sjá um byggingu og rekstur á skólahúsnæði fyrir grunnskólanemendur er í besta falli heimskulegt og í versta falli glæpsamlegt. Skattpeningar okkar Kópavogsbúa eiga m.a. að fara í menntun barna okkar og algjör óþarfi að hafa einkaaðila sem milliliði til að hirða ímyndaðan hagnað.
Sigurður Haukur Gíslason, 7.11.2009 kl. 00:09
Ingibjörg, ég hafði ekki sé frétt Baugsmiðlanna um þessa frétt. Það sem ég undrast er að þú sem varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar leiðréttir ekki að þetta Knattspyrnuakademíumál er alfarið að frumkvæði Jóns Júlíussonar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi. Þetta mátti lesa í kosningablaði Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir síðustu kosningar. Hann ,,seldi" síðan öðrum bæjarfulltrúum hugmyndina. Úthýsing verkefna er alþekkt í Evrópu og studd af jafnaðarmönnum, hins vegar hafa þeir sem eru lengst til vinstri verið alfarið á móti slíkum aðgerðum, þrátt fyrir að slíkt hafi sýnt sig vera mjög hagkvæm fyrir opinbera aðila.
Á fréttinni má skilja að Gunnar Birgisson hafi útvegað lán til verkefnisins og þá væntanlega í gegnum bæinn. Var slík lántaka samþykkt og ef svo af hvaða bæjarfulltrúum?
Sigurður Haukur þú segir framgöngu þeirra sem stóðu að þessu máli vera heimskulega og í versta falli glæpsamlega, þú ert þá væntanlega að gagnrýna bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar. Ætlar þú að fylgja málinu eftir.
Sigurður Þorsteinsson, 8.11.2009 kl. 14:34
Sigurður Þorsteinsson!
Af hverju á ég að fylgja málinu eftir?
Sigurður Haukur Gíslason, 8.11.2009 kl. 15:09
Opinberlega hefur nokkuð verið fjallað um þetta mál, sem átti að vera ein helsta rós Samfylkingarinnar í Kópavogi. Einn bæjarfulltrúi flokksins hefur fengið verðskuldað mjög harða gagnrýni fyrir aðkomu sína að málinu og hefur opinberlega sagt sig eiga allan ,,heiðurinn" af því. Fyrir utan að samningurinn við Knattspyrnuakademíuna orkaði mjög tvímælis, þá var önnur aðkoma bæjarfulltrúans siðferðilega mjög gagnrýnisverð. Þú segir þessa aðgerð í besta falli heimskuleg og í versta falli glæpsamlega. Svo harkalega hef ég ekki gagnrýnt þetta mál. Þar sem þeir sem mestu ábyrgðina bera í þessu máli eru samstarfsaðilar þínir í Samfylkingunni í Kópavogi eru hæg heimatökin. Hins vegar sem Kópavogsbúar þá eigum við að veita bæjarfulltrúunum aðhald hvar sem þeir eru í flokki. Það er skylda okkar í virkara lýðræði.
Sigurður Þorsteinsson, 8.11.2009 kl. 15:43
Samstarfsaðilar mínir? Ég er ekki í Samfylkingunni. Sagði mig úr henni fyrir tæpu ári. Sjá hér.
Mér er alveg sama hvaða flokkur kom þessu á koppinn. Ég er í hjarta mínu á móti einkarekstri sem tekur umboðslaun fyrir lögbundna þjónustu sveitarfélaga. Kópavogsbær á að byggja og reka sín skólahúsnæði sjálfur. Einkafyrirtæki eiga ekki að hagnast á því. Annað gengur ekki upp eins og dæmin sanna af þessu með Akademíuna og Áslandsskóla í Hafnarfirði.
Sigurður Haukur Gíslason, 8.11.2009 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.