27.10.2008
Þar hvarf síðasta hálmstráið
Þeir sem hafa kíkt á bloggfærslur mínar undanfarin ár hafa sjálfsagt ekki farið varhluta af því að ég hef ekki sérstakt álit á þeim flokki manna sem kennir sig við sjálfstæði. Einn gildur limur í þeim flokki hefur þó jafnan notið virðingar minnar enda tel ég að þar sé gegnheil manneskja á ferðinni, með heilbrigða skynsemi og ákveðna auðmýkt gagnvart náunganum. Vissulega hafa ekki allir séð þessa kosti í fari sjálfstæðismannsins en þetta hefur verið mín tilfinning.
Í dag var viðtal við þennan sjálfstæðismann í útvarpinu. Ástæða viðtalsins var augljós, efnahagskreppan og ábyrgð stjórnmálamanna á henni. Viðkomandi komst vel frá viðtalinu, svaraði af skynsemi og með góðum og gildum rökum. Allt var barasta fínt ... alveg þangað til í lokin. Þá spurði útvarpsmaðurinn: "Af hverju ættum við að treysta Sjálfstæðisflokknum til að koma okkur út úr þeirri kreppu sem Ísland er komið í?" Það stóð ekki á svari hjá varaformanni Sjálfstæðisflokksins: "Af því að við þorum ... og við erum ekki sósíalistar!"
Arrrrggghhh ... þar fór síðasta hálmstráið!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Sæl, humm mætti ég spyrja hvað þessi einstaklingur heitir sem þú talar um? Heyrði ekki þennan útvarpsþátt sem þú talar um. Kveðja, Jón.
Jón Þórðarson (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 19:37
Það stóð ekki á svari hjá varaformanni Sjálfstæðisflokksins: "Af því að við þorum ... og við erum ekki sósíalistar!"
Ingibjörg Hinriksdóttir, 27.10.2008 kl. 20:06
Hahaha, góð.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2008 kl. 20:45
Missti af þessu,hverju þora þeir? Og enginn annar. P.S. skoðaðu nýasta hjá Kjartani Photo veit þú lumar á e.hv.
Helga Kristjánsdóttir, 27.10.2008 kl. 23:27
Mér hefur alla tíð verið ljóst að Þorgerður er algjör bullukollur. Hún blaðrar endalaust um allt og ekkert og svarar engum spurningum öðruvísi en með langlokum sem koma spurningunni ekkert við.
Hún er algjör tu#@a!
Sigurjón, 28.10.2008 kl. 00:34
Já, þeir þora að koma okkur á hausinn sjálfstæðismenn. Og vilja ekki jöfnuð og lýðræði. Þá vitum við það.
Árni Þór Sigurðsson, 28.10.2008 kl. 08:35
Þeir sem hafa komið bezt út í umróti síðustu vikna hafa verið Ingibjörg Sólrún ( trúi ekki að ég sé að segja þetta :-) ) og Steingrímur J.
Kristján Þór Gunnarsson, 28.10.2008 kl. 11:46
Á leiknum í kvöld hitti ég varaformann Sjálfstæðisflokksins, sem ég hafði þessi orð eftir. Hún var aldeilis ekki á eitt sátt við mig, því eitthvað hafði mér misheyrst það sem hún sagði. Hið rétta er að Þorgerður Katrín sagði: „Af því að við þorum - og erum ekki populistar!“ Vissulega breytir þetta miklu og ég játa auðmjúk misheyrn mína!
Ingibjörg Hinriksdóttir, 31.10.2008 kl. 00:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.