Leita í fréttum mbl.is

Á maður að gefast upp?

Eftir tíðindi dagsins þá hef ég velt þeirri spurningu fyrir mér hvort maður eigi ekki bara að gefast upp. 18% stýrivextir frá Seðlabanka Íslands á tímum þar sem allt er við það að stöðvast. Seðlabankastjóri, sem hefur haldið stýrivöxtum í 14-15% um langa hríð var kankvís þegar hann benti á að 50% hækkunin í dag væri ekki honum að kenna heldur Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Ætli bankastjórinn hafi hugsað með sér ... „Ég sagði ykkur það!“ Ég vona ekki.

Það vill svo til að ég vinn með mönnum sem almennt eru taldir hafa nokkuð vit á fjármálum, eru þeir til þess menntaðir og hafa margvíslega reynslu úr fjármálageiranum og rekstri að baki. Í dag voru þeir heldur fámálir um framhaldið. Jú einn benti á að hækkunin hefði sennilega verið nauðsynleg til þess að halda fjármagni, jöklabréfum, samjúræabréfum og hvað þau nú heita, inní landinu. Ekki dettur mér í hug að rökræða það við hann og sjálfsagt er eitthvað til í þessu hjá honum. Það breytir ekki því að í dag hef ég ítrekað spurt mig þeirrar spurningar hvort við ættum ekki bara að lyfta upp báðum höndum og segja: „Ég gefst upp!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Þór Gunnarsson

Til að þrauka þá þurfum við að einblína á framtíðina. Allar þessar þrautir sem yfir okkur dynja akkúrat núna þessa dagana; já og líklega næstu mánuðina munu leiða til betra þjóðfélags þegar upp verður staðið. Ég keypti mína fyrstu íbúð í óðaverðbólgunni sem geisaði 1981-1984. Ef ég man rétt þá hækkuðu lánin á íbúðinni árið 1982 heilum 30% meira en launin. Einhver eign sem til staðar var þegar íbúðin var keypt; brann upp á 1 ári og gott betur en það þ.s. andvirði lánsins var komið yfir 120% af andvirði íbúðarinnar. Það á aðeins 1 ári ! Eitthvað þessu líkt er núna í uppsiglingu en munurinn er að við höfum reynsluna núna og 1982 var Jóhann Sigurðardóttir ekki félagsmálaráðherra.

Kristján Þór Gunnarsson, 28.10.2008 kl. 22:25

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll Krissi, þetta er auðvitað rétt hjá þér. En ég skil vel fólk sem veltir því fyrir sér að gefast bara upp. Við, almenningur í þessu landi, virðumst ekki hafa eitt eða neitt um þessa atburðarrás alla að segja og svo virðist sem stjórnmálamennirnir, hvort sem við kusum þá til valda eða ekki, séu ekki tilbúnir að stíga þau skref sem þarf til að vekja aftur traust meðal þjóðarinnar og heimsbyggðarinnar allrar þess vegna!

Mín skoðun er sú að maðurinn sem tilkynnti stýrivaxta hækkunina í dag eigi alls ekki að vera í þessari stöðu, hann er rúinn öllu trausti og 90% þjóðarinnar er sammála því. Margir margir fleiri bera ábyrgð, ekki bara sjálfstæðismenn og framsóknarmenn (sem þó bera þyngstu birgðirnar) mitt fólk í Samfylkingunni ber líka ábyrgð. Ég, þú og allir þeir sem tóku þátt í neyslunni á síðustu 3-5 árum berum líka okkar ábyrgð. Mér sýnist hins vegar að aðeins við, ég og þú, eigum að axla þá ábyrgð. Útrásarvíkingarnir benda hver á annan, bankastjórarnir segjast enga ábyrgð bera og fjármálaeftirlitið kannast ekki við neitt.

Í mínum huga er í raun um tvennt að ræða; gefast upp eða taka vel á móti. Ég fæ ekki séð að ríkisstjórnin sé að taka vel á móti, Bretar komast upp með að níðast á okkur eins og hryðjuverkamönnum, gjaldeyrissjóðurinn má sparka í liggjandi atvinnuvegi og við tökum þessu öllu þegjandi og hljóðalaust. Hvar eru allir PR-mennirnir sem hafa vaðið á súðum undanfarin ár? Hvar er vörnin sem við ætlum að spila? Við verðum að taka vel á móti ... eða gefast upp!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 28.10.2008 kl. 23:33

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

NEI! GÓÐA,það er leikur á morgun.   Sagt er að við færumst ca.30 ár aftur hvað kaupmátt varðar,þótt ég geti leikandi rennt huganum til þess tima,verður hann ekki viðmiðunarhæfur,ekki að öllu leiti.

 Ég hlustaði á minningarorð prests við útför síðastliðinn Föstudag.Æviferill mætrar konu sem fædd var 1923 rakinn .Hún átti 16 systkin,algengt á þeim tíma,mannauður dagsins í dag.
 
Okkur miðar alltaf eitthvað fram á veg,smá bakkgír til að komast fram hjá forinni á fasta viðspyrnu,í lagi,þeir sterkustu fara út og ýta,meðal annara þið. Kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 30.10.2008 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband