Í síðustu viku bauð Icelandair uppá flug til áfangastaða sinna á helmings punktaafslætti. Ég er svo heppin að eiga nokkurt safn af slíkum punktum og ákvað að reyna hvað ég gæti til að nýta mér þetta kostaboð. Reyndi ég að sannfæra systur mínar um að koma með m.a. með því að nefna helgarferð til Berlínar. Engin slík ferð fannst en það varð úr að Sigrún sagði já takk og ég bókaði okkur í stutta ferð til Kaupmannahafnar um Hvítasunnuhelgina. Á vefsíðu Icelandair fann ég síðan ágætt hótel að ég held og þar var líka afbragðs gott tilboð í gangi.
Degi síðar hringir Bubba systir og segist hafa áhuga á að koma með, hún á punkta sem hún þurfi að nota og eftir tvær tilraunir tókst mér að fá staðfestingu á ferð fyrir hana. Samstarfskona mín sem bjó um árabil í Danmörku tók síðan að sér að hringja á hótelið og spurði hvort unnt væri að fá þriðja rúmið inní herbergið okkar Sigrúnar og reyndist það létt verk. Ég sendi síðan Bubbu staðfestingu á þessu og allt er klappað og klárt. Kvöldið eftir hringir Bubba í mig og er áhyggjufull: Ég er að fara til Kaupmannahafnar," segir hún og ég heyri að hún er dálítið undrandi í röddinni. Já einmitt," segi ég og skil ekki alveg af hverju hún er svona undrandi. Hvert eruð þið að fara?" spyr hún og er enn eitthvað skrítin í röddinni. Nú, til Kaupmannahafnar," segi ég og er ekki alveg að ná þessu. Erum við þá ekki að fara til Berlínar?" segir þá Bubba og ég skelli hressilega uppúr.
Þá hafði Bubba talið það víst að við værum að fara til Berlínar og var ákaflega sátt við það. Hún ætlar samt að koma með til Kaupmannahafnar, þó hún hefði kostið að fara til Berlínar enda hefur hún, ekki frekar en ég, komið þangað. Við eigum það bara inni systurnar þegar næsta tilboð berst frá Icelandair, og við eigum betri tíma, þá skellum við okkur þangað en framboðið á ferðum til Berlínar var ekki nærri eins mikið og til Kaupmannahafnar og fól ávallt í sér fleiri daga frá vinnu en ferðin til Kaupmannahafnar, þess vegna varð Kaupmannahöfn ofaná!
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Frábært! Á hvaða hóteli ætlið þið að vera? Ætlið þið að skella ykkur á "Konunglega" ?
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 22.4.2008 kl. 16:23
Sæl Lilja,
við verðum á hóteli sem heitir Comfort Hotel Europa og er á horni Colbjornsensgade og Istegade, sem sgt rétt við lestarstöðina!! Það var flott tilboð í gangi á hótelinu sem réði miklu um valið auk þess sem það hefur fengið ágæta dóma hjá þeim sem hafa skrifað um það á vefinn.
Hvort við skellum okkur á „Konunglega“ fer dálítið eftir hvaða konunglega þú meinar - eftir að hafa googlað "konunglega danska" þá er niðurstaðan þessi að ég held við förum ekki á ballettinn! Landbúnaðarfélagið, eeee held ekki! Konservatoríið, bókasafnið, fjallageitina, Sjóliðsforingjaskólanum ... nei ég held ekki. En af því að ég held að þú meinir Konunglega danska leikhúsið eða Konunglegu dönsku óperuna, þá hef ég því miður ekki trú á því að af því verði. Það bíður betri tíma.
Ingibjörg Hinriksdóttir, 22.4.2008 kl. 18:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.