Leita í fréttum mbl.is

Þetta hefur ekki alltaf verið svona

Það er ánægjulegt að heyra að þær þrjár íþróttakonur, sem urðu efstar í kjöri íþróttamanns ársins 2007 (og þar á meðal Íþróttamaðurinn sjálfur), telji að ekki sé munur á aðbúnaði kynjanna til íþróttaiðkunar í þeirra félögum. En þetta hefur þó því miður alls ekki alltaf verið þannig.

Kunnátta mín um æfingaaðstöðu í sundi og badminton nær ekki langt en mig grunar þó að þar sé málum þannig farið að aðstaðan hafi að jafnaði verið svipuð undanfarin ár og áratugi. Þó hefur e.t.v. mátt finna mismun í fjölda æfinga eða tímasetningu þeirra eftir því hvort konur eða karlar voru á æfingum.

En þeir sem hafa fylgst með knattspyrnu kvenna um nokkurt skeið og muna einhver ár aftur í tímann gætu t.d. rifjað upp þegar leikmenn Vals mættu til leiks íklæddar gömlum Vals búningum til þess að knýja á um að fá nýja og samstæða búninga. Ég minnist þess einnig að hafa þurft að fylgja mínu liði, Breiðabliki, í Vesturbæinn til leiks við KR, þar sem leikurinn fór fram á mölinni en karlalið KR var á æfingu á aðalvellinum á sama tíma. Ég man eftir svipuðu á Valsvelli þar sem stelpurnar léku á þríhyrninginum en strákarnir æfðu á aðalvellinum.

Svo muna allar knattspyrnukonur fæddar fyrir 1975 eftir grastakkamálinu ógurlega þar sem konum var stranglega bannað, með reglugerð KSÍ, að leika knattspyrnu í grastakkaskóm.

Þessu breyttu knattspyrnukonurnar sjálfar, undir forystu Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna HKK, og lögðu þannig grundvöllinn að því að í dag er í flestum félögum ekki gerður greinarmunur á aðstöðu karla og kvenna til iðkunar knattspyrnu. Knattspyrnukonur nútíðarinnar njóta góðs af starfi þessara kjarnakvenna og við sem stóðum í eldlínunni horfum með velþóknun á og njótum þess að sjá hinar gríðarmiklu framfarir sem orðið hafa.


mbl.is Ekki gert upp á milli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 129551

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband