Leita í fréttum mbl.is

Stórkostlegir listamenn

Ríkissjónvarpið sýnir nú í kvöld danslistaverk sem nefnist „Þetta er minn líkami“ ... Ég veit ekkert um þetta listaverk en miðað við kynningu dagskrárefnisins þá eru þarna frægir dansarar á ferð og sjálfsagt er verkið vel þekkt meðal ballettunnanda. 

Það vita þeir sem mig þekkja að ég hef ekki hundsvit á ballett, en ég tel mig samt hafa nokkuð vit á listum og vera sérfræðingur (af einhverju tagi) í íþróttum! Miðað við þær 30 mínútur sem ég sá af þessu verki þá eru þarna á ferðinni hópur stórkostlegra listamanna, höfundur dansverksins hlýtur að vera snillingur og ljósameistarinn magnaður. Á þessum fáu mínútum sannfærðist ég líka um að ég hafi aldrei fyrr séð jafn magnaða íþróttamenn og dansarana í þessu verki. Í einum hlutanum dönsuðu þeir tveir og tveir saman, en annar þeirra var greinilega dauður. Hinn dansarinn henti þeim dauða fram og til baka á borði sem hann lá á og ég hugsaði með mér að hlutverk þess dauða væri klárlega erfiðara heldur en þess sem var á lífi. Hann hlýtur að hafa verið blár og marinn daginn eftir þessa stórfenglegu sýningu.

Höfundar dansins og dansararnir hafa hlotið hjá mér lof en ég er ekki alveg eins sannfærð um höfund tónverksins ... sem höfðaði engan vegin til mín. Ef ég hefði aðeins haft tónlistina þá hefði ég slökkt eftir 5 sekúndur. Ef ég hefði aðeins haft dansinn þá hefði ég horft til enda, en með hvoru tveggja þá þraukaði ég sem fyrr segir í 30 mínútur. Reyndar er ég viss um að ég hefði horft lengur ef þátturinn hefði verið fyrr á dagskránni en ekki náð fram yfir miðnættið!

Dansinn verður endursýndur uppúr hádeginu á laugardaginn ... ég stefni á að horfa til enda þá en kannski set ég aðra tónlist á!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband