Leita í fréttum mbl.is

Hver segir að EKKERT hafi verið gert?

Þeir sem hafa haldið því fram að EKKERT hafi verið gert í tíð núverandi ríkisstjórnar ættu að hafa í huga að gengið styrkist hægt og bítandi eftir að gjaldeyrisbraskarar voru stöðvaðir. Þeir sem hagnast á styrkingu krónunnar eru fyrst og fremst heimilin og fyrirtækin í landinu.

Gengisvísitalan ekki verið lægri síðan í júlí í fyrra http://www.visir.is/article/20100303/VIDSKIPTI06/577670230

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Rétt hjá þér. Margir sjá aldrei það jákvæða, þurfa alltaf að velta sér upp úr því sem er illa gert. Hros og jákvæða hugsun, takk!

Úrsúla Jünemann, 3.3.2010 kl. 14:58

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Auðvitað gerist eitthvað þar sem (hvað mörg 9-11) hver ráðherra  sinnir sínum málaflokki. Mér sýnist fólk einblína á atvinnuleysið,sem er auðvitað geigvænlegt,svo og leiðréttingu skulda heimilanna.

Helga Kristjánsdóttir, 3.3.2010 kl. 18:15

3 Smámynd: Ingólfur Sigurjónsson

Mikið að það kemur eithvað jákvæt'ttttttttttt

Ingólfur Sigurjónsson, 3.3.2010 kl. 21:31

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ingibjörg, það lá alveg ljóst fyrir að það yrði mjög erfitt fyrir tvo flokka að gera þá hluti sem gera þurfti. Til þess hefði að öllum líkindum annað hvort þjóðstjórn eða utanþingstjórn. Þessir tveir flokkar ákváðu að láta reyna á styrk sinn. Það þarf afar sterka flokkstrú til þess að halda því fram að þessari stjórn hafi tekist vel upp. Það kemur meðal annars fram í því að Jóhanna er búin að missa traust rúmlega 2/3 þeirra sem treystu henni í byrjun kjörtímabilsins. Það fylgi fer bara áfram hratt minnkandi.

Þú getur farið yfir skalann, atvinnumálin, Icesave, ESB, skjaldborgina sem lofað var, uppgjör skulda, bankamálin osfrv. Það er sama í hversu jákvæða stellingu fólk setur sig frammistaðan er afleit. Það sem verst er að þetta á bara eftir að versna.

Sigurður Þorsteinsson, 3.3.2010 kl. 23:30

5 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Ég ætla að leyfa mér að stórefast um þessa nálgun þín.

En það er ekki þannig að við gerðum góða hluti heldur er staðan hjá þessum löndum þannig í dag að gjaldmiðill þeirra hrapar. Það að við erum stopp þýðir að við hröpum ekki með og þar af leiðandi styrkist okkar króna í samanburðinum.

Hefur lítið ef þá hreinlega nokkuð að gera með það að ríkisstjórnin sé að gera eitthvað af viti hér á landi.

Veltið þið nú fyrir ykkur hvernig gengið hefði getað styrkst ef ekki hefði verið farið út í þessar skattabreytingar sem ný sýnir strax að skila sér ekki.
Síðan það hvernig staðið er í vegi fyrir allri atvinnu-uppbyggingi.

Gengið hefði styrkst betur ef þessir þættir væru fyrir hendi og þá bæri að hrósa.

Carl Jóhann Granz, 4.3.2010 kl. 08:31

6 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Siggi og Karl ... eruð þið að halda því fram að EKKERT hafi verið gert?

Ingibjörg Hinriksdóttir, 4.3.2010 kl. 11:40

7 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Já og takið eftir því félagar að eftir að búið var að koma böndum á þá einstaklinga sem voru í braski með gjaldmiðilinn tókst loks að styrkja gengið og koma á ákveðnum stöðugleika þar.

Auðvitað er mikið verk óunnið, auðvitað hefði mátt gera meira, en þeir sem halda því blákalt fram að EKKERT hafi verið gert verða að taka af sér hin pólitísku gleraugu og fara að horfa á hlutina eins og þeir raunverulega eru!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 4.3.2010 kl. 11:42

8 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Ingibjörg kíktu á staðreyndirnar. Gengi dollars, punds og evru eru búnar að vera að lækka. Gengi krónunnar hefur ekkert styrkst nema út af því.
Hefur ekkert að gera með þau göt sem stoppað var í haftalögunum.

Þú ert ekki vel að þér ef þú trúir þessu sem þú setur fram og lætur blindast af trú á stjórnina þannig að þú sérð ekki raunveruleikann.

Carl Jóhann Granz, 5.3.2010 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 129515

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband