Enn sem fyrr eru sjálfstæðismenn í Kópavogi við sama heygarðshornið í málgagni sínu Vogum sem kom út í vikunni. Í nafnlausum pistli aftarlega í blaðinu er því haldið fram að undirrituð vilji leggja niður Kópavog. Vísað er í grein sem ég ritaði í blað Samfylkingarinnar, Kópavog, fyrr í mánuðinum en þar ræddi ég um sameiningu sveitarfélaga.
Á þeim tímum sem við stöndum nú frammi fyrir, og ber ekki síst að þakka Sjálfstæðisflokknum fyrir, þarf að leita allra leiða til að draga úr kostnaði og helst er um það rætt að það verði gert á þann hátt að ekki verði dregið úr velferðarþjónustu og stuðningi við þá sem minnst mega sín. Margar tillögur hafa komið fram og í grein minni tæpi ég á einni, þ.e. sameiningu sveitarfélaga. Umræðan um sameiningu sveitarfélaga er ekki ný af nálinni en hefur á síðustu árum fengið byr í seglin, ekki síst vegna aukinna verkefna sem flust hafa frá ríki til sveitarfélaga og þeirra verkefna sem væntanleg eru. Einhverra hluta vegna hefur kastljósinu helst verið beint út á landsbyggðina en ekki til þeirra sveitarfélaga sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu. Í grein minni í Kópavogi velti ég því fyrir mér af hverju ekki sé horft til höfuðborgarsvæðisins. Eftir að hafa nefnt nær öll sveitarfélögin á svæðinu spyr ég hvaða rök hnígi að því að Kópavogur sé sérstakt sveitarfélag, með alla þá yfirstjórn, nefndir og ráð sem kosta íbúa sveitarfélagsins umtalsverðan hluta af skatttekjunum?
Vogar, blað Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi kýs að snúa út úr þessum orðum mínum og fara rangt með. Þetta gerir hinn nafnlausi blaðamaður Voga að því er virðist til þess eins að gera lítið úr mér. Nafnleysið er undarlegt í ljósi þess að sá háttur hefur undanfarið verið harðlega gagnrýndur af sjálfstæðismönnum. Ég tek þetta þó ekki nærri mér, en mér finnst miður að ekki sé hægt að ræða þessi mál af alvöru. Viðhorf sjálfstæðismanna í Kópavogi, sem speglast í litlu fréttinni í Vogum sýnir svo ekki verði um villst að þeir eru fastir í fortíðinni. Þeir þora ekki að horfa fram á veginn, lausn þeirra að efnahagsvandanum virðist felast í því að þeirra fólk, þeir sömu og settu Ísland á hausinn, haldi sínum hlut óskertum. Niðurskurður og hagræðing er ákjósanleg, nema þegar hætta er á að þeir sjálfir gætu misst spón úr aski sínum.
Undirrituð er tilbúin til að ræða á málefnalegan hátt um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem bærinn minn Kópavogur verður ekki undanskilinn að neinu leiti. Með sameiningu sveitarfélaga gæti hann mögulega horfið inní Reykjavík. Kópavogsbær gæti einnig stækkað enn frá því sem nú er með sameiningu við hluta Reykjavíkur eða við önnur nærliggjandi sveitarfélög. Þann möguleika sjá íhaldsmenn í Sjálfstæðisflokkum í Kópavogi ekki og ætli það lýsi þröngsýni þeirra ekki best.
Greinin birtist í Fréttablaðinu 18. desember 2009.
Mér er það bæði ljúft og skylt að benda á eftirfarandi vegna ósvífinna auglýsinga SjálfstæðisFLokksins um skattamál
- Öll framsetning í auglýsingunni er vafasöm. Ekki er verið að bera tillögur ríkisstjórnarinnar saman við neinn raunveruleika eða raunverulega valkosti. Sjálfstæðisflokkurinn heldur að lesandanum þeirri tálsýn að óbreyttar skattareglur og áður fyrirhugaðar breytingar sé eitthvað sem raunhæft sé eftir að hann sigldi þjóðarbúinu í þrot og braut niður tekjuöflun ríkisins. Raunhæfur samanburður verður aðeins gerður á raunverulegum forsendum.
- Í kynningu á nýjum tillögum um skatta hefur ríkisstjórnin fyrst og fremst borið þær saman við skattareglur á yfirstandandi ári. Þær reglur og áhrif þeirra svo sem á skattbyrði og dreifingu skattbyrði á mismunandi tekjuhópa eru þekktar. Í þeim efnum hefur hún notað alþjóðlega viðurkenndar aðferðir svo sem skatthlutföll eftir tekjubilum og skattbyrði sem hlutfall af landsframleiðslu. Slíkar aðferðir eru notaðar af alþjóðastofnunum svo sem OECD. Útreikningar og samanburður með þeim hætti sýnir tvennt, sem ekki verður dregið í efa.
Í fyrsta lagi að skattbyrði í heild og af tekjuskatti sérstaklega verður á árinu 2010 lægri en hún var á valdatíma Sjálfstæðisflokksins fyrir hrun. Í öðru lagi að dreifing hennar verður sanngjarnari, skattbyrði lágtekjufólks verður eitthvað lægri en áður en eitthvað hærri hjá þeim sem meira bera úr býtum. Ítarlegri upplýsingar því til staðfestingar verða birtar á næstu dögum. Þetta eru staðreyndir sem ekki verða hraktar með auglýsingabrellum. - Í smáu letri neðst á auglýsingunni kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn reiknar það sem skattahækkun að persónuafsláttur hækki um 2.000 kr. í stað 5.800 kr.. Þarna er um minni skattalækkun en áður var áformað að gera, en það er hreinn útúrsnúningur að kalla þetta skattahækkun. Með sömu rökum ætti verslunareigandi sem kaupir inn vöru fyrir 5.000 þúsund krónur og verðleggur hana á 10.000 kr. en selur hana að lokum á útsölu fyrir 7.000 krónur að bókfæra söluna sem 3.000 kr. tap í stað 2.000 kr. ágóða! Allir sjá hversu fráleitar slíkar reikningskúnstir eru.
- Fyrirsögn auglýsingar Sjálfstæðisflokksins er: Öll heimili munu greiða hærri skatta". Þar fyrir neðan segir: Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar munu kosta alla Íslendinga verulegar fjárhæðir á næsta ári." Þar fyrir neðan er svo tafla sem sýnir þennan aukna kostnað sem Íslendingar mega búast við á næsta ári vegna skatthækkana og verðlagsáhrifa þeirra. Í smáa letrinu kemur aftur á móti fram að þarna sé einnig teknar með þær breytingar sem gerðar voru á miðju þessu ári. Þarna er því um villandi framsetningu að ræða. Einhver þessara áhrifa hafa þegar komið fram og er þarna beitt blekkingum til að slá pólitískar keilur í þágu Sjálfstæðisflokksins á kostnað ríkisstjórnarflokkanna.
- Þau dæmi sem Sjálfstæðisflokkurinn tekur eru miðuð við mánaðartekjur einstaklinga eða fjölskyldna. Meint áhrif skattbreytinganna eru hins vegar sýnd á ársgrundvelli. Með þessu fær fólk ranga tilfinningu fyrir hinni raunverulegu breytingu. Heiðarlegast og gagnsæjast væri að sýna áhrifin á mánaðargrundvelli eða miða við árstekjur. Þá er í þessu samhengi sýnd hækkun höfuðstóls vegna vísitöluáhrifa, en auðvitað dreifist þessi hækkun á allan lánstíma og eru mánaðaráhrifin hverfandi.
- Í reiknivélinni sem er á heimsíðu Sjálfstæðisflokksins er smáa letrið hvergi sjáanlegt og geta notendur hennar því ekki áttað sig á því á hvað forsendum vélin byggir. Ljóst má þó vera að vélin byggir á svipuðum forsendum og koma fram í smáa letrinu í auglýsingunni.
Þegar vélin er látin reikna áhrif breytinga á fjármagnstekjuskatti kemur tvennt í ljós.
Hún gerir annarsvegar ráð fyrir að fjármagnstekjuskattur sé að hækka úr 10% í 18% en ekki 15% í 18%. Þannig reiknar hún meiri aukningu en í raun mun verða. Skatturinn hækkaði úr 10% í 15% sl. sumar og hafa áhrif hans því þegar komið fram að nokkru leyti.
Hins vegar kemur í ljós að vélin gerir ekki ráð fyrir 100 þús.kr. frítekjumarki á vaxtatekjur. Því reiknar hún út hækkun strax á fyrstu krónu (reyndar þúsund krónur því vélin sýnir ekki aukastafi). Þarna er því um hrein ósannindi að ræða því raunin er að fjármagnstekjuskattur mun lækka af fjármagnstekjum allt að 220 þús.kr.
Auglýsing Sjálfstæðisflokksins er dapurlegur vitnisburður um ómálefnalegan og ósannan málflutning sem flokkurinn telur bersýnilega best þjóna hagsmunum sínum.
Reykjavík, 11. desember 2009
Björgvin G. Sigurðsson Árni Þór Sigurðsson
form. þingflokks Samfylkingar form. þingflokks Vinstri grænna
28.11.2009
Riðið á vaðið eða foraðið
Í frétt á visir.is sagði í gær frá því að þingmönnum hefði verið mikið niðri fyrir vegna þess að við umræðu um Icesave voru einhverjir stjórnarliðar fjarverandi. Sérstaklega þótti illt í efni að nokkrir ákveðnir þingmenn meirihluta Alþingis hafi ekki verið á staðnum.
Nú ætla ég ekkert að afsaka fjarveru þingmanna en í fréttinni kemur fram að þeir hafi verið á fundi á vegum þingsins þar sem fjallað var um mál er varðar endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. En þingmenn minnihluta Alþingis voru daprir að ekki voru nægilega margir í salnum til að hlusta á þá, sérstaklega var framsóknarmanninum Birki Jóni Jónssyni mikið niðri fyrir og sagðist hann vera niðurlægður með fjarveru þingmannanna. Orðrétt er haft eftir honum í visi.is: Niðurlægingin felst í því að ég hef lagt á mig vinnu við að setja mig inn í málið."
Jáhá... það er nefnilega það. Birkir Jón er niðurlægður vegna þess að hann þurfti að setja sig inní mál sem er eitt mest rædda mál á Alþingi á seinni tímum. Ja mikið assskoti er það erfitt starf að vera Alþingismaður!
17.11.2009
Skoðanakönnun
Í nútímasamfélagi er nauðsynlegt að hafa einhverja vissu fyrir því hvort maður eigi erindi. Því bið ég þig ágæti lesandi um að líta á skoðanakönnunina hér til hægri og svara. Könnunin verður virk fram á sunnudag og unnt verður að setja athugasemdir við þessa færslu fram á sunnudag.
Ég áskil mér rétt til þess að fara ekki að niðurstöðu þeirra sem ráða mér heilt!
15.11.2009
Í minningu vinar
Guðmundur Benediktsson, G. Ben. eins og hann var jafnan kallaður meðal okkar Blika, kvaddi þennan heim sl. sunnudagsmorgun. Hann var eitilharður Bliki og ákaflega kappsfullur maður, aldrei sat hann á skoðunum sínum og skipti þá engu hvort hann ætti sér fjölda skoðanabræðra eða ekki. Hann ákvað að stofnun íþróttabandalags ætti að vera í mínum höndum. Í allt haust hefur hann komið til mín í tippkaffinu á laugardögum og ítrekað þessa skoðun sína við mig. Það hefur verið í fínasta lagi enda deilum við þessari skoðun og ég lofaði honum að ganga í málið af öllu mínu afli.
Síðast þegar ég hitti G. Ben, var í tippkaffinu fyrir hálfum mánuði, þá tók hann þéttingsfast í hönd mér og lét mig lofa sér að ég myndi ganga frá þessu máli. Ég horfði í augu hans og lofaði að gera allt sem í mínu valdi stendur til að íþróttabandalag verði stofnað í Kópavogi. Sagði ég honum að ég væri þegar búin að skrifa grein sem ætti að birtast í Kópavogi, málgangi Samfylkingarinnar, það kæmi bráðum. Því miður var Guðmundur allur þegar blaðið kom var borið til Kópavogsbúa á laugardagsmorgun, en ég mun fylgja þessu máli eftir, eins og ég hef lofað.
Blessuð sé minning Guðmundar Benediktssonar.
Vinir og fjölskylda | Breytt 16.11.2009 kl. 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson