Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðismenn í Kópavogi fastir í fortíðinni

Enn sem fyrr eru sjálfstæðismenn í Kópavogi við sama heygarðshornið í málgagni sínu Vogum sem kom út í vikunni. Í nafnlausum pistli aftarlega í blaðinu er því haldið fram að undirrituð vilji leggja niður Kópavog. Vísað er í grein sem ég ritaði í blað Samfylkingarinnar, Kópavog, fyrr í mánuðinum en þar ræddi ég um sameiningu sveitarfélaga.

Á þeim tímum sem við stöndum nú frammi fyrir, og ber ekki síst að „þakka“ Sjálfstæðisflokknum fyrir, þarf að leita allra leiða til að draga úr kostnaði og helst er um það rætt að það verði gert á þann hátt að ekki verði dregið úr velferðarþjónustu og stuðningi við þá sem minnst mega sín. Margar tillögur hafa komið fram og í grein minni tæpi ég á einni, þ.e. sameiningu sveitarfélaga. Umræðan um sameiningu sveitarfélaga er ekki ný af nálinni en hefur á síðustu árum fengið byr í seglin, ekki síst vegna aukinna verkefna sem flust hafa frá ríki til sveitarfélaga og þeirra verkefna sem væntanleg eru. Einhverra hluta vegna hefur kastljósinu helst verið beint út á landsbyggðina en ekki til þeirra sveitarfélaga sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu. Í grein minni í Kópavogi velti ég því fyrir mér af hverju ekki sé horft til höfuðborgarsvæðisins. Eftir að hafa nefnt nær öll sveitarfélögin á svæðinu spyr ég hvaða rök hnígi að því að „Kópavogur sé sérstakt sveitarfélag, með alla þá yfirstjórn, nefndir og ráð sem kosta íbúa sveitarfélagsins umtalsverðan hluta af skatttekjunum?

Vogar, blað Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi kýs að snúa út úr þessum orðum mínum og fara rangt með. Þetta gerir hinn nafnlausi blaðamaður Voga að því er virðist til þess eins að gera lítið úr mér. Nafnleysið er undarlegt í ljósi þess að sá háttur hefur undanfarið verið harðlega gagnrýndur af sjálfstæðismönnum.  Ég tek þetta þó ekki nærri mér, en mér finnst miður að ekki sé hægt að ræða þessi mál af alvöru. Viðhorf sjálfstæðismanna í Kópavogi, sem speglast í litlu fréttinni í Vogum sýnir svo ekki verði um villst að þeir eru fastir í fortíðinni. Þeir þora ekki að horfa fram á veginn, lausn þeirra að efnahagsvandanum virðist felast í því að þeirra fólk, þeir sömu og settu Ísland á hausinn, haldi sínum hlut óskertum. Niðurskurður og hagræðing er ákjósanleg, nema þegar hætta er á að þeir sjálfir gætu misst spón úr aski sínum.

Undirrituð er tilbúin til að ræða á málefnalegan hátt um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem bærinn minn Kópavogur verður ekki undanskilinn að neinu leiti. Með sameiningu sveitarfélaga gæti hann mögulega horfið inní Reykjavík. Kópavogsbær gæti einnig stækkað enn frá því sem nú er með sameiningu við hluta Reykjavíkur eða við önnur nærliggjandi sveitarfélög. Þann möguleika sjá íhaldsmenn í Sjálfstæðisflokkum í Kópavogi ekki og ætli það lýsi þröngsýni þeirra ekki best.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 18. desember 2009.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sæl Ingibjörg, það þýðir nú ekkert að kvarta þegar þú gefur upp boltann. Helsta vandamál okkar í dag í Kópavogi er bullandi vanhæfni nokkurra bæjarfulltrúa. Eitt af mikilvægum hlutverkum bæjarstjórnar og bæjarráðs er aðhald og eftirlit með stofnunum bæjarins. Þegar bæjarstjórnarmenn eru bæði í yfirmannastöðum bæjarins og síðan í bæjarstjórn. Þetta stenst auðvitað enga skoðun hvað varðar góða stjórnsýslu. Hef heyrt aulasvar eins og þegar fjallað er um mín dæmi fer ég fram á meðan. Því er svarað með rökum, eins og ef þú tekur á minni stofnun tek ég þá þinni!

Hverju svara forráðamenn Samfylkingarinnar í Kópavogi, jú, hinir gera það líka!!!

Annars var ég að vona að þú færir fram Ingibjörg, ég er ekki viss um að stjórnskipulagsmál séu endilega þín sterkasta hlið, en þú hefur mikla reynslu í félagsmálum og slíka reynslu finnst mér tilfinnanlega vanta í bæjarstjórn Kópavogs.

Varðandi sameiningarmál Kópavogs og Reykjavíkur, var ég spurður um þau þar sem viðstaddir voru áhrifamenn úr Reykjavík. Svaraði því til að það væri hugmynd sem ætti að skoða. Hins vegar væri oft tilfinningamál eins og nafnið sem skipti máli. Væri með tillögu í því sem Kópavogsbúar myndu sættast á. Úr nöfnum Kópavogsbæ og Reykjavíkurborg, væri hægt að frá nafnið Kópavogsborg. Fulltrúar Reykjavíkur voru bara með hundshaus eftir þessa tillögu mína.

Sigurður Þorsteinsson, 18.12.2009 kl. 22:23

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll Siggi, ég er ekkert að kvarta, en ég geri þá lágmarkskröfu til þeirra sem vilja  gagnrýna mínar hugleiðingar að þeir komi fram undir nafni og fari rétt með. Vogar uppfylltu hvorugar af þeim kröfum og því sá ég mig tilneydda til að svara fyrir mig.

Ég stórefast um að borgarfulltrúar í Reykjavík séu til í að ræða sameiningu á þeim nótum sem ég hef helst velt fyrir mér. En orð eru til alls fyrst og maður á að ganga til allra svona verka með opnum hug og það að markmiði að íbúarnir hafi hag af.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 18.12.2009 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband