Í dag hef ég ekki haft mikinn tíma til að fylgjast með fréttum. Það kom mér því verulega á óvart þegar ég heyrði fréttir síðdegis að Framsóknarflokkurinn hefði sett verðandi ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs stólinn fyrir dyrnar um að taka til starfa um helgina. Framsóknarflokkurinn vill hugsa málið og segja svo af eða á eftir helgi. Til hvers?
Framsóknarflokkurinn á ekki aðild að þessari ríkisstjórn, þeir gerðu sig gildandi þegar nýr formaður þeirra sagðist vera tilbúinn til að styðja minnihlutastjórn Samfylkingar og vinstri grænna falli. Var hann í raun og veru að segja, ok, þessir flokkar mega skipa ríkisstjórn en við ætlum að ráða því hvað þau segja og gera ... já, og ... nei, við ætlum ekki að bera neina ábyrgð? Eða voru þeir að segja, við viljum ekki stjórnarkreppu á Íslandi ofaná allt annað og við viljum að hér sé við völd starfhæf ríkisstjórn?
Miðað við útspil þeirra í dag, þá held ég að þeir hafi frekar verið að hugsa um fyrri spurninguna. Það gengur einfaldlega ekki upp. Ef Framsóknarflokkurinn hefur í raun og veru áhuga á því að rísa uppúr öskustónni þá ættu þeir að stíga varlega til jarðar. Þeir voru búnir að segjast ætla að styðja við minnihlutastjórnina og því fylgdu engin önnur skilyrði heldur en þau að kosið yrði eins fljótt og auðið er. Framsóknarflokkurinn ætti, að mínu viti, að hemja sig aðeins. Við skulum átta okkur á því að þeir þingmenn sem munu verja ríkisstjórnina falli eru í fyrsta lagi ekki þeir sömu og örfáir kjósendur flokksins kusu á þing. Framsóknarmenn sjálfir hafa ekki of mikla trú á þingmönnum sínum í dag, það sást best á því að þeir treystu sér ekki til að kjósa sér formann úr röðum þingmanna. Formaður þeirra, til skamms tíma, hljópst undan merkjum eftir að hafa fengið á sig gagnrýni á flokksstjórnarfundi, formaðurinn sem tók við treysti sér ekki til þess að taka við stjórn flokksins til frambúðar og erfðakandídat flokksins fékk vægast sagt háðuglega útreið á landsfundi þeirra. Og til að bæta gráu ofaná svart þá tókst formanni kjörstjórnar að klúðra talningu til formanns þannig að sá sem var kjörinn var annar formaðurinn sem fagnað var á fundi þeirra.
Framsóknarmenn ættu því að mínu viti að hafa sig hæga. Þeir færi best að treysta Jóhönnu Sigurðardóttur til allra góðra verka. Gott og vel, kosningar síðla í apríl og allir sáttir. Framsóknarflokkurinn og þjóðin!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.1.2009 kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.1.2009
Bloggheimar munu sjálfsagt loga
Rétt eins og bróðurpartur þjóðarinnar hef ég beðið undanfarna daga, spennt yfir því hvernig ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna muni líta út. Mér heyrist á fréttum og samferðarfólki að almenn ánægja sé með að Jóhanna Sigurðardóttir taki við embætti forsætisráðherra. Hún er einn staðfastasti stjórnmálamaður Íslands, fylgin sér, ákveðin, dugleg, kraftmikil og það sem mestu skiptir, hún hefur næma sýn á velferð þeirra sem minnst mega sín.
Það væri spennandi að spá í spilin um hvaða persóna fari í hvaða ráðuneyti fyrir sig en það eina sem telja má ljóst er að Jóhanna verður forsætisráðherra. Annað virðist óljóst, flestir virðast þó á þeirri skoðun að Ingibjörg Sólrún verði utanríkisráðherra áfram og að Steingrímur J. fari í fjármálaráðuneytið. Ætli það sé ekki í lagi að spá því að þetta þrennt gangi eftir en algjörlega óvíst er með önnur ráðherraembætti. Reyndar held ég að það muni ekki skipta neinu hver verður hvar þegar upp er staðið, bloggheimar munu sjálfsagt loga með eða móti þeirri ákvörðun sem tekin verður.
Mig langar til að tjá mig um ákvörðun sjávarútvegsráðherra um það að leyfa hvalveiðar, en ég held ég sleppi því, nema að mér finnst ákvörðunin í meira lagi undarleg.
26.1.2009
Frábær fundur
Í kvöld var ég á frábærum fundi Samfylkingarinnar í Kópavogi þar sem farið var yfir atburði síðustu klukkustunda og ástæður þess að uppúr slitnaði í stjórnarsamstarfinu með Sjálfstæðisflokknum. Rétt um 50 manns voru á fundinum og eins og gefur að skilja voru skiptar skoðanir meðal fundarmanna um það hvort niðurstaða dagsins hafi verið rétt eða ekki. Þingmenn kjördæmisins mættu allir á fundinn og útskýrðu þeir sína sýn á málið og sögðu í stuttu máli frá samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Sannast sagna var það á köflum eins og að hlusta á góða skáldsögu að heyra hvernig hlutirnir gengu fyrir sig og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn virkar í ríkisstjórn sem síðastliðið haust þurfti að takast á við erfiðustu aðstæður sem skapast hafa í íslensku samfélagi á lýðveldistíma.
Fundurinn samþykkti ályktun þar sem fullum stuðningi er lýst við störf þingflokksins og formann flokksins á erfiðum tímum. Ég greiddi þeirri ályktun atkvæði mitt þrátt fyrir að hafa á undanförnum vikum verið í verulegum vafa um hvort ég ætti samleið með flokknum eða ekki. Mér hefur sannarlega stundum fundist eins og forysta flokksins væri í engu jarðsambandi með grasrótinni og kjósendum. Í kvöld mættu sjálfsagt margir sem var eins innanbrjósts en þegar menn yfirgáfu fundinn um 3 klukkustundum síðar var það samhentur, samstæður hópur sem horfði bjartsýnn til framtíðar.
Útskýringar og frásagnir þingmanna og fleiri sem staðið hafa nærri atburðarrásinni undanfarna daga færðu mig aftur heim og ég get ekki annað en fagnað því. Ég mun sofa vært í nótt, viss um að ef ný ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar tekur við á morgun mun íslensku samfélagi verða betur borgið en undir leiðsögn Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Í morgun steig Björgvin G. Sigurðsson eitt eða tvö skref í rétta átt, átt að nýju upphafi og betra siðferði í íslenskum stjórnmálum.
Fyrsta skrefið og kannski það stærra hjá Björgvini var að fá stjórn Fjármálaeftirlitsins til að segja af sér um leið og fráfarandi stjórn komst að samkomulagi við forstjóra eftirlitsins um að víkja úr starfi sínu.
Annað skrefið var síðan brotthvarf Björgvins sjálfs úr stóli viðskiptaráðherra. Það er alveg ljóst, og hefur verið lengi, að Björgvini var haldið fyrir utan hringiðu bankamálanna bæði af hálfu forstjóra Fjármálaeftirlitins og ekki síður af formanni stjórnar Seðlabankans, Davíð Oddssyni. Þegar þetta varð ljóst, um miðjan október að mig minnir, þá hefði Björgvin gert rétt í því að taka þau skref sem hann tók loksins í morgun.
Skref Björgvins í morgun komu klárlega of seint, kannski ekki 110 dögum of seint en örugglega 70-90 dögum of seint. Það breytir þó ekki því að skref Björgvins í morgun eru FYRSTU skrefin í rétta átt og nú sit ég, rétt eins og þorri þjóðarinnar, og bíð eftir næstu skrefum sem að mínu mati eiga að koma úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins.
Rökrétt skref eru að fjármálaráðherra, Árni Mathiessen, segi af sér auk þess sem Geir Haarde, forsætisráðherra, víkur stjórn Seðlabankans frá störfum og sýni þar með þjóðinni og umheiminum öllum að það er raunverulegur vilji íslenskrar þjóðar og stjórnvalda að taka á þeim vanda sem upp er kominn. Hann er vissulega að hluta til vegna alþjóðlegrar fjármálakreppu en hann er ekki síður heimatilbúinn að stórum hluta. Með því að taka þessi skref held ég að Geir tryggi það að í huga þjóðarinnar verði hann maður að meiri við brotthvarf sitt úr stjórnmálum en ekki einungis strengjabrúða Davíðs Oddssonar.
22.1.2009
Nóttin
Mótmælin héldu áfram í gær. Þau færðust þó á annað stig en hingað til þegar lögreglan beitti táragasi á mótmælendur og ekki síður þegar mótmælendur brutu rúðu í Dómkirkjunni. Hvoru tveggja harma ég að hafi gerst og vona sannarlega að þetta sé ekki það sem koma skal.
Nú hefur það svo sem ekki farið framhjá þeim sem hafa lesið þær línur sem ég skrifa hér á vefinn að ég er á móti ofbeldi og skemmdarverkum af öllu tagi. Ég er líka hálf smeyk við það hvernig mótmælin hafa þróast og játaði í einhverri athugasemd að ég hefði lítið hjarta þegar kemur að svona múgæsingi, ef það má orða það svo. Í dag sá ég síðan myndir frá mbl.is held ég frekar en visir.is af mótmælunum í nótt og mér féllust algjörlega hendur.
Hvað eru unglingar að þvælast ofaní bæ að berja á löggunni um miðja nótt? Hvar eru foreldrar þessara ungmenna, sem að stærstum hluta til virðast vera drengir? Er þjóðfélagið okkar orðið þannig að foreldrar gæta þess ekki að unglingarnir sínir séu heima þegar liðið er fram yfir miðnætti? Hverskonar hegðun er það að sparka með karatesparki í skildi lögreglunnar, sem er þó aðeins að vinna vinnuna sína? Ef það er aðeins lítill hluti mótmælenda sem hagar sér svona - sem ég er svo sem full viss um - hvar er þá meirihlutinn? Af hverju eru þessir unglingar ekki stöðvaðir áður en lögreglan þarf að grípa til þess úrræðis að varpa táragasi á mannfjöldann?
Margir þeirra, sem hafa verið á Austurvelli síðustu sólarhringa hafa lýst því svo að lögreglan hafi gengið alltof hart fram. Það má vera og ég hef tekið undir það þegar ég hef séð myndir sem sýna það, s.s. í tengslum við mótmælin við Hótel Borg á gamlársdag. En atburðirnir eins og þeir koma mér fyrir sjónir á vefmiðlum eru forkastanlegir og ég er algjörleg agndofa yfir þessari hegðun. Ekki láta forsætisráðherra hafa rétt fyrir sér ... við, íslenskir mótmælendur, erum enginn skríll!
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.7.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 129827
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson