20.4.2009
Af hverju aðildarviðræður um ESB?
Undanfarnar vikur hef ég öðru hvoru átt í orðaskiptum við fólk um það hvort það eigi að sækja um aðild að ESB eða ekki. Iðulega hefur svar mitt verið þetta: "Ég er ekkert viss um að við eigum að ganga í Evrópusambandið. En við getum ekki litið framhjá því lengur að sækja um aðild."
Í þessum orðum er falin ákveðin mótsögn.
Af hverju þarf að sækja um aðild? Jú til þess að það komi í ljós hvað er í boði og hvað það muni kosta okkur. Án aðildarviðræðna getum við ekki vegið það og metið með vitrænum hætti hvort aðild henti okkur eða ekki.
Eini flokkurinn sem hefur lýst því yfir að það eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið er Samfylkingin.
Þegar aðildarviðræður hafa farið fram verður samningur borinn undir þjóðaratkvæði. Í samningnum mun skýrt koma fram hverjir eru kostir og gallar aðildar. þar mun koma fram hvað aðild mun kosta okkur og þar mun koma fram hvað við fáum í staðinn. Án viðræðna munum við aldrei fá svör við þessu.
Þras og þvaður um Evrópusambandið er einskis virði án aðildarviðræðna, þær eru að mínu viti forsenda þess að Ísland geti aftur orðið þjóð meðal þjóða. Guð forði okkur frá því að aftur verði forsenda fyrir útgáfu bókar undir titlinum: Hvernig getur Ísland orðið ríkasta land í heimi.
Það er fullreynt og er ekki það sem við þurfum.
Muna að kjósa í skoðanakönnuninni hér til hægri >>>>>
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:03 | Facebook
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Ég skal segja þér hvað kemur út úr aðildarviðræðum hvað varðar sjávarútveginn. Íslendingar fá ekki frekar undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins. Við fáum regluna um hlutfallslegan stöðugleika heldur ekki bundna í aðildarsamninga frekar en Norðmenn á sínum tíma þótt þeir hafi tjaldað öllu til við að reyna að ná því fram.
Það eru hinsvegar verulegar líkur á að við fengjum ótímabundnar (en ekki varanlegar) undanþágur frá sameignlegri sjávarútvegsstefnu ESB með reglugerð. Fjölmiðlaveldi fjármálamanna og harðir ESB-sinnar munu svo þvæla umræðuna fram og til baka og reyna að telja fólki trú um að þar sé komin fullnægjandi öryggisnagli. "Evrópusérfræðingar" þjóðarinnar munu taka undir (Baldur Þórhallsson hefur þegar talað á þessum nótum í fjölmiðlum og ekki þykir mér nú þessi líklegur til þess að skýra muninn).
Það hefur þegar tekist að telja fjölda greinds fólks trú um að Ísland fái allar þær sérlausnir sem það þarf og að undanþágur frá stofnsáttmálum (!!) sambandsins séu minnsta mál í heimi.
Hvað heldur þú að verði skýrt við langan og flókinn aðildarsamning eftir að þetta lið verður búið að bulla sig í hundrað hringi um hvert orð?
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 01:04
Þetta er svipað hérna megin. Hef árum saman (alltaf) verið á móti inngöngu í ESB. Núna er ég orðin svo leið á öllum þessum pælingum og ráðleggingum sem snúa gjörsamlega í austur og vestur. Hef auðvitað ekki hundsvit (þeir eru reyndar margir klárir) á þessu og treysti engum til að ráða heilt.
Nú er ég komin á það að kanna eigi hvernig samningur okkar liti út. Þó ekki væri nema til að sópa þessu útaf borðinu.
Og þá aftur finnst mér ég hafa haldið framhjá!
Eygló, 20.4.2009 kl. 01:29
Sæll Hans, þetta eru fínar pælingar hjá þér en mér finnst þú hafa mikla spádómsgáfu fyrst þú getur sett fram allar þessar fullyrðingar án þess að viðræður hafi átt sér stað. En það er greinilegt að þú hefur kynnt þér málið ágætlega og ert vel inní málum. Það ætti því ekki að vera vandamál fyrir þig að lesa í gegnum samninginn þegar hann liggur á borðinu og þarft örugglega ekki aðstoð frá Baldri eða Kristjáni.
Íslendingar eru ákaflega vel menntaðir og ég treysti þjóðinni til þess að velja og hafna þegar samningur liggur á borðinu. Ég sagði í pistli mínum hér að ofan að ég væri ekki búin að gera upp hug minn varðandi aðild. Ég vil taka upplýsta ákvörðun, hún verður ekki tekin án aðildarviðræðna.
Maíja, sammála þér (nema með framhjáhaldið ).
Ingibjörg Hinriksdóttir, 20.4.2009 kl. 08:04
Ástæðan er first og fremmst vegna þess að við höfum ekki menn sem kunna að stjórna landinu,Svo er alltaf verið að kjósa sama lið þannig að allt endurtekursig ár eftir ár,alltaf sama vilteysan.Það er ástaðan fyrir þvi við verðum að ganga i ESB og það strax.Höfum bara bjána til að stjórna í þessum flokkum.
Árni Björn Guðjónsson, 20.4.2009 kl. 09:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.