Leita í fréttum mbl.is

Besti ráðherra þjóðarinnar.

Í framhaldi af færslu minni hér að neðan langar mig að benda á að sá embættismaður íslenskur, sem þjóðin ber mest traust til, er Jóhanna Sigurðardóttir.

Hefur þú velt því fyrir þér af hverju það er?

Ég held að það sé vegna þess að hún hefur það sem ég sagði í fyrri færslu að vantaði í íslenskt samfélag, þ.e. að hafa siðferðiskompásinn rétt stilltann. Hjá henni ganga heildarhagsmunir framar hagsmunum fárra. Hún hefur verið umdeild og gagnrýnd, yfirleitt af þeim sem til þessa, og gjarnan í skjóli íhaldsins, hafa notið þess að vera í litlum forréttindahópi.  

Foreldrar mínir eru bæði fædd árið 1932. Síðasta sumar sagði pabbi við mig í óspurðum fréttum að Jóhanna Sigurðardóttir væri sá ráðherra sem hefði gert mest og best fyrir hann á allri hans ævi. Ég varð dálítið hissa, enda er karl faðir minn frekar hallur undir frelsi einstaklingsins og öðrum þeim hugmyndum sem gildi Sjálfstæðismanna grundvallast á. Þegar ég innti hann eftir því af hverju hann hefði sagt þetta þá stóð ekki á svari, lífeyrir hans hafði hækkað svo að eftir því var tekið.

Reyndar er það ekki skrítið að faðir minn hafi orðið þess var að lífeyririnn hafi hækkað því frá því Jóhanna Sigurðardóttir settist í stól félagsmálaráðherra vorið 2007 hafa lægstu lífeyrisbætur verið hækkaðar verulega og lífeyrisþegar fá nú greiddar bætur án tillits til tekna maka og séreignasparnaðar. Skv. fyrirliggjandi upplýsingum verða greiðslur til lífeyrisþega næstum helmingi hærri á árinu 2009 en þær voru 2007. Þetta er árangur þrotlauss starfs jafnaðarráðherrans Jóhönnu Sigurðardóttur.

Því miður held ég að þessi uppgötvun karls föður míns verði ekki til þess að hann gefi Jóhönnu atkvæði sitt í komandi kosningum. Ég mun þó halda áfram að reyna að snúa honum á mitt band.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver var fjármálaráðherra og þar af leiðandi tók þátt í þessari hækkun lífeyrisins?

Palli (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 10:35

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég sem er litlu eldri en pabbi þinn,man að Jóhanna vakti athygli á því,að ríkinu bæri að endurgreiða foreldrum(forráðamönnum),vegna framfærslu barna sinna í framhaldsskólum. Okkur munaði um það.

Helga Kristjánsdóttir, 6.4.2009 kl. 13:09

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nei litlu yngri má ekki við að bæta við.

Helga Kristjánsdóttir, 6.4.2009 kl. 13:10

4 identicon

Við skulum nú vona að flestir sem dvalið hafa á þingi í 30 ár hafi gert eitthvað jákvætt "annað en að þiggja laun frá okkur".  Sumir af þeim á þingi hafa líka verið voðalega dugleg við að "kenna öðrum um" að þau "hafi ekki komið í gegn málum" sem "þau höfðu lofað".  Menn eru misjafnlega snjallir að fleyta sér áfram í lífinu og misjafnlega snjallir að eigna sér góða bita.  Mér finnst það nú ekki mikið afrek að jafn sjálfsagt mál og að eftirlaunaþegar geti framfleytt sér, nái í gegn.  Það þarf lítið meira en pennastrik til þess. 

Páll A, Þorgeirsson (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 16:37

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Maðurinn minn keyrir mikið af eldra fólki.

Hann segir svörnustu Sjálfstæðismenn á meðal þeirra ætli ekki að kjósa þá.

Þegar Davíð líkti sér við Jesú gekk hann of langt að mati margra eldri borgara sem eru trúaðir.

Svo var ein í gær sem hefur alltaf kosið The Flokk og hún sagðist myndu kjósa Jóhönnu því það væri henni að þakka að hún gæti haldið íbúðinni sinni.

Þetta eru atkvæðin að tala.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.4.2009 kl. 17:15

6 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Alveg sammála þér Ingibjörg. Jóhanna hefur sýnt og sannað að henni er treystandi í því erfiða starfi sem hún er nú í.

Hilmar Gunnlaugsson, 6.4.2009 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 129554

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband