7.3.2009
Sameinumst gegn fordómum
Dagana 3. og 4. mars sl. átti ég þess kost að sækja 3. ráðstefnu Evrópska knattspyrnusambandsins og fleiri aðila um kynþáttafordóma, Unite Against Racism, sem haldin var í Varsjá í Póllandi. Var ráðstefnan ákaflega fróðleg en þó við hér á Íslandi teljum okkur ágætlega sett varðandi fordóma af ýmsu tagi þá megum við ekki sofna á verðinum og því er ráðstefna sem þessi þörf og gagnleg fyrir knattspyrnuforystuna.
Á undanförnum árum hefur stjórn KSÍ sett sér markmið sem ætlað er að draga úr og koma í veg fyrir fordóma af ýmsu tagi. Má þar m.a. nefna að:
- KSÍ hefur nýlega orðið þátttakandi í grasrótarverkefni UEFA og í gegnum það er m.a. unnið að því að fjölga möguleikum minnihlutahópa til þátttöku í knattspyrnu.
- KSÍ hefur komið á fót jafnréttisnefnd sem hefur það markmið að vinna gegn öllu misrétti, hvort sem það er misrétti kynja, kynþátta, milli trúarbragða, kynhneigðar o.s.frv. Á síðasta ársþingi veitti stjórn KSÍ tvenn verðlaun að tillögu nefndarinnar, annars vegar til ÍR sem vinnur eftir metnaðarfullri stefnu og hins vegar til Víðis Sigurðssonar sem í næstum 30 ár hefur skrifað sögu knattspyrnunnar í árbækur sínar og gætt þar jafnan að því að halda í heiðri öllum þeim sem iðka knattspyrnu.
- KSÍ vinnur að aukinni þátttöku innflytjenda í samvinnu við Alþjóðahús og hefur gefið út bækling þar sem hvatt er til aukinnar þátttöku á nokkrum tungumálum. Þessi bæklingur liggur frammi bæði hjá KSÍ og í Alþjóðahúsi en það er vinsæll áfangastaður innflytjenda.
- KSÍ styður við og hvetur félög til að bjóða uppá verkefni fyrir minnihlutahópa, s.s. innflytjendur og fatlaða. Einnig vinnur KSÍ náið með Íþróttafélagi fatlaðra og heldur á ári hverju sérstakar æfingar þar sem fötluðum einstaklingum er boðið að mæta og æfa með landsliðsmönnum Íslands, bæði konum og körlum.
- Um páskana mun fara fram alþjóðlegt knattspyrnumót samkynhneigðra og hefur KSÍ stutt framkvæmdaaðila mótsins með ýmsu móti.
Eins og fyrr segir þá eru ofbeldi og kynþáttafordómar sem betur fer sjaldgæfir í knattspyrnu á Íslandi. Þegar slík tilfelli hafa komið upp hefur KSÍ mætt þeim af mikilli hörku enda er það stefna sambandsins í samræmi við stefnu UEFA um Zero Tolerance" - Algjört óþol". Þar skiptir miklu að allir standi saman KSÍ, leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, dómarar og samtök stuðningsmanna.
Hér fyrir neðan má sjá tengla á nokkrar vefsíður þar sem finna má upplýsingar um starfsemi samtaka sem beita sér gegn fordómum í knattspyrnu.
http://www.farenet.org/ - http://www.theredcard.org/ - http://www.kickitout.org/ - http://www.furd.org/ - http://www.fifpro.org/
Ingibjörg Hinriksdóttir, er eigandi þessarar bloggsíðu og formaður fræðslunefndar og útbreiðslunefndar KSÍ. Grein þessi birtist á vef KSÍ, föstudaginn 6. mars.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Lofsvert framtak en rasismi er nokkuð sem á ekki heima í knattspyrnu né annars staðar. Ég vil þó benda á að hér hafa komið upp tilvik kynþáttafordóma í knattspyrnu t.d. varð blökkumaður sem lék með liði ÍBV fyrir kynþáttafordómum stuðningsmanna FH nú í fyrra. Viðbrögð stjórnar FH voru ekki viðunandi enda tókst ekki að upplýsa hverjir stóðu á bak við rasismann og enginn var settur í bann.
Jafnrétti kynjana hefur þó aukist hér töluvert í boltanum undanfarin ár og er nú meira fjallað um kvennaknattspyrnuna en áður. Einkum tel ég að það megi rekja til frábærrar frammistöðu Margrétar Láru Viðarsdóttur á knattspyrnuvellinum en það hefur verið frammistaða sem hreinlega hefur ekki verið hægt að líta framhjá af hálfu fjölmiðla.
Hilmar Gunnlaugsson, 7.3.2009 kl. 16:07
Sæll Hilmar, ég tek hjartanlega undir með þér að fordómar eiga ekki heima í knattspyrnu né annarsstaðar. Og já, það hafa komið upp dæmi um kynþáttafordóma í knattspyrnuleikjum hér heima. Ég ætla ekki að fara út í einstök dæmi en ég veit það með fullri vissu að það hefur verið tekið mjög ákveðið á slíkum tilfellum, bæði á vettvangi KSÍ, innan félaganna og fjölmiðlar hafa fylgt slíkum málum vel eftir. Hvort það er nóg er síðan annað mál en kynþáttafordómar eru sem betur fer ekki viðvarandi vandamál hér á landi. Það er góður árangur.
Ég geri ráð fyrir að þú vitir það vel að árangur okkar í jafnréttisumræðunni hefur tekið langan tíma og krafist mikillar vinnu og eftirfylgni af fjölda fólks. Auðvitað hefur árangur Margrétar Láru hjálpað til á síðustu árum og hennar árangur er vitaskuld svo stórkostlegur að ekki aðeins fjölmiðlamenn hafa hrifist með, það hefur öll þjóðin gert. Margrét Lára var að fæðast þegar fyrstu samtök knattspyrnukvenna voru stofnuð, hún er því ein fjölmargra knattspyrnukvenna sem hafa notið þeirrar baráttu sem fyrirrennarar þeirra hafa staðið fyrir síðustu 30 árin. Af þeirri baráttu erum við öll stolt og það held ég að Margrét Lára og aðrar landsliðskonur okkar séu líka.
Ingibjörg Hinriksdóttir, 7.3.2009 kl. 16:16
Þakka þér fyrir svarið Ingibjörg mín.
Ég hef þá trú að íslenska kvennaknattspyrnan muni á tíma Evrópumótsins ná fullri athygli fólks og að þá verði stigið annað skref til aukins jafnréttis.
Hilmar Gunnlaugsson, 7.3.2009 kl. 16:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.