21.10.2008
Fæst orð bera minnsta ábyrgð
Orðatiltækið um að fæst orð beri minnsta ábyrgð hefur verið mér ofarlega í huga undanfarna daga. Vissulega hef ég, rétt eins og aðrir, hugsað og sagt ýmislegt um það ástand sem nú er uppi í þjóðfélaginu en þar sem ég er enginn sérfræðingur í málefnum dagsins þá hef ég talið rétt að blanda mér ekki í þá umræðu hér í bloggheimum. Kannski var það skynsamlegt af mér, kannski ekki.
Undanfarna daga og vikur reyndar hef ég reynt að svara spurningum vina minna um ástandið. Margir þeirra hafa velt því fyrir sér hvað ráðherrar Samfylkingarinnar eru að gera í stöðunni og því hvort þeir séu að gera nokkuð, svona yfirleitt. Það vefst ekki fyrir mér eitt andartak að ráðherrar Samfylkingarinnar í ríkisstjórn Íslands hafa dag og nótt undanfarna daga unnið að úrlausn eins viðamesta og vandasamasta verkefnis sem íslensk ríkisstjórn hefur staðið fyrir í a.m.k. 20 ef ekki 30 ár. Ég virði þann kost sem þau hafa tekið í stöðunni, að halda þjóðinni upplýstri með reglulegum blaðamannafundum þar sem staðan er gefin. Mál eins og þau sem nú eru uppi á borðum er ekki hægt að vinna fyrir opnum dyrum, jafnvel ekki fyrir framan upphróparana í Vinstri grænum.
Hitt er svo annað að þolinmæði mín er ekki endalaus. Ég vil gjarnan sjá og heyra af því hvað ráðherrar úr mínum flokki hafa verið að vinna að á undangengnum vikum. Í dag er tilefni til fumlausra ákvarðana sem þó þarf að vinna í nokkrum flýti. Menn verða að standa og falla með þeim.
Eftir frægan Kastljósþátt með seðlabankastjóra hefðu ráðherrar Samfylkingarinnar, að mínu mati, átt að standa upp og krefjast afsagnar bankastjórans. Það var ekki gert. Ég hélt í fyrstu að þeir hefðu góða ástæðu fyrir því s.s. að von væri á rússaláni eins og bankastjórinn lofaði í umræddu viðtali. Það var hins vegar bull eins og svo margt annað sem frá skáldinu kemur og eftir því sem tíminn hefur liðið fæ ég ekki séð hvaða ástæða er að baki áframhaldandi setu hans í stóli formanns bankastjórnar Seðlabankans. Ríkisstjórnin hefur sett formenn bankastjórna þriggja banka af á undangengnum vikum, ríkisstjórnina munar ekkert um að setja a.m.k. einn þeirra af til viðbótar.
Hér í bloggheimum hafa skjaldsveinar Sjálfstæðisflokksins gengið fram með offorsi gegn hverjum þeim sem vogað hefur sér að hallmæla þeirra óskoraða leiðtoga. Gott og vel og verði þeim að góðu. En athöfn eins og sú sem seðlabankastjóri hafi frammi í Kastljósi, þrátt fyrir að hafa verið pent beðinn um það af varaformanni Sjálfstæðisflokksins um að loka nú á sér þverrifunni, eru ófyrirgefanleg og verðskulda ekkert annað en brottrekstur og það í snarhasti. Mér sýnist að mínir menn í ríkisstjórn hafi ekki bein í nefinu til að losa sig við manninn og það veit sá sem allt veit að stuttbuxnaliðið úr Sjálfstæðisflokknum hefur það ekki heldur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Jæja!Ekki er ég sérfræðingur frekar en þú í málefnum þessa ástands.Ég skynja hitann ,hægri,vinstri.Get ég verið "báðu megin" Nei,en það er gengið ansi harkalega fram í að gera allt sem seðlabankastjóri segir að tilefni til brottreksturs.Þó hafa komið skýringar á hversvegna hann viðraði þjóðstjórn í samræðum manna um þetta ástand.Ég þoli illa óréttlæti.Ég veit að ég get ekki frekar en aðrir verið með það alltaf á hreinu. Dvíð Oddsson hefur verið sterkur leiðtogi lengst af,já já,ráðríkur hann ætlaði hérna um árið að loka fyrir vatn og rafmagn hjá okkur Kópavogsbúum,þegar hann var borgarstjóri.Minnir að tilefnið hafi verið að við samþykktum ekki lagningu hraðbrautar í Fossvogsdal.Hann kallaði ,Kópavog "þetta sérkennilega sveitafélag" Þá fékk ég aldeilis stríðni frá uppeldissystur minni"jæja góða nú ætlar Davíð að loka fyrir allt hjá ykkur",það er kanski eitthvað svona sem situr í mönnum valdníðsla getur það kallast. Ég verð að mæra Björgvin viðskipta ráðherra,gott að hlusta á hann,traustvekjandi,hann og Geir hafa v´ssulega staðið sig í þessum hremmingum,við eigum eftir að rannsaka þetta ferli seinna.Jón Ásgeir sagði í þætti INN í kvöld að það yrðu utanað komandi fólk að gera ég held að annað yrði ekki tekið í mál.
Helga Kristjánsdóttir, 21.10.2008 kl. 02:37
Já, hvað er til ráða? Verst er að berlega er núverandi seðlabankastjóri ekki hæfasti einstaklingurinn til að sitja í þeim stóli núna þegar við förum í gegnum hagfræðilega lang vandasamasta verkefni sem íslenskt þjóðarbú hefur horfst í augu við. Hann virðist gera mistök í hverju skrefi og nýtur einskis trausts í umheiminum. Það væri sök sér ef við sjálf værum sannfærð um að hann væri hæfasti maður landsins til að stýra Seðlabanka.
Helgi Jóhann Hauksson, 21.10.2008 kl. 20:36
Sæll félagi Helgi og mæl þú manna heilastur. Dómurinn um að núverandi seðlabankastjórn myndi gera álíka gagn og væru þeir stjörnuspekingar, eða hvernig sem það var nú orðað, segir allt sem segja þarf.
Ingibjörg Hinriksdóttir, 21.10.2008 kl. 22:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.