Leita í fréttum mbl.is

Slæm tíðindi fyrir landsliðið

Fréttir í gær um meiðsli Guðbjargar Gunnarsdóttur landsliðsmarkvarðar eru slæmar. Íslenska kvennalandsliðið hefur sett stefnuna á Evrópumótið í knattspyrnu í Finnlandi árið 2009 og möguleikar þeirra eru góðir. Það munar þó alltaf um góða leikmenn, sérstaklega markverði, og því eru tíðindi gærdagsins afar slæm fyrir landsliðið.

Því miður tók Þóra B. Helgadóttir þá ákvörðun fyrr á þessu ári að gefa ekki kost á sér í landsliðið vegna anna við vinnu sína í Belgíu. Það er óskandi að hún endurskoði þá ákvörðun í ljósi frétta gærdagsins. Markverðir eru ákaflega mikilvægir leikmenn í hverju liði og oftar en ekki geta þeir skipt sköpum á úrslitastundu. Það er þó rétt sem bent hefur verið á að það kemur maður í manns stað og nú þurfa þeir leikmenn sem næstir eru í röðinni að taka við merkinu. Þeim óska ég allra heilla og vona að möguleikar liðsins á að komast í úrslitakeppni EM verði ennþá góðir þrátt fyrir það mikla áfall sem liðið varð fyrir við meiðsli Guðbjargar Gunnarsdóttur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég mundi nú segja, að markvörður sé, einn mikilvægasti leikmaður leiksins, ef markmaðurinn les leikinn rétt, er hann aðal. - Það lærði ég allavega, þegar ég var í boltanum.  Annars eru allir leikmenn vallarins jafn mikilvægir, og enginn mikilvægari en hinn.  Þeir eru jú "ein heild". Ekki satt? 

En það er mjög leitt að heyra um hana Guðbjörgu, ég sá hana í viðtalinu í gærkv. hún stóð sig eins og hetja. Klár stelpa.  Vonandi tekst henni að ná sér sem fyrst.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 4.4.2008 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 129507

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband