16.2.2007
Gunnar samur við sig
Þær stórfréttir bárust á öldum ljósvakans í morgun að bæjarstjórinn í Kópavogi, Gunnar Birgisson, hafi sagt að vinnubrögð verktaka á vegum bæjarins væru ekki til fyrirmyndar. Er þetta það næsta afsökunarbeiðni sem ég hef heyrt frá bæjarstjóranum sem hefur frekar hamast eins og naut í flagi heldur en biðjast afsökunar verði hann eða einhver á hans vegum fyrir því að gera mistök.
Reyndar tel ég ekki að þarna hafi endilega verið um mistök að ræða. Þarna er mikið fremur um að ræða þann dæmigerða flumbrugang sem einkennir svo margar framkvæmdir á vegum Kópavogsbæjar eftir að Gunnar varð þar bæjarstjóri. Karlinn tekur ákvarðanir og þær skulu keyrðar í gegn hvað sem tautar og raular.
Hvað þarf til að Gunnar biðjist afsökunar. Í þessu tilfelli þykir mér það raið að hann bæði harmi aðgerðir verktakanna og biðjist afsökunar á þeim fyrir hönd bæjarins. Þarna var verið að ryðjast í gegnum gróin svæði, uppgreftri sturtað yfir reit þar sem börn plöntuðu trjám á vegum Unicef og svo var náttúrulega ruðst í gegnum þjóðhátíðarlund sem gróðursett var í fyrir nokkrum árum.
Í þessu máli kemur berlega í ljós að þó menn fylgi sama stjórmálaflokknum þá þarf ekki endilega að setja alla undir sama hatt. Gunnar segir að framkvæmdir verktakans séu ekki til fyrirmyndar en flokkssystir hans í Reykjavík segist harma þessi vinnubröðg á þessu mikilvæga útivistarsvæði.
Þó hvorugt þeirra biðjist afsökunar þá finnst mér meiri einlægni í orðum Hönnu Birnu en bæjarstjórinn truntast áfram eins og honum einum er lagið.
Fréttin á www.ruv.is
Verktaki á vegum Kópavogs fór ekki eftir teikningum við framkvæmdir í Heiðmörk og mokaði yfir gróin svæði. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir vinnubrögðin ekki til fyrirmyndar og að úr þessu verði bætt. Reykjavíkurborg hafði ekki gefið út formlegt leyfi fyrir framkvæmdunum í Heiðmörk.
Fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöld að umsögn Orkuveitu Reykjavíkur leiddi í ljós að skurðir sem áttu að vera 10 metra breiðir reyndust helmingi breiðari og á röngum stöðum. Stór gróin svæði hefðu farið undir efnishauga en þar höfðu börn í vegum Unicef gróðursett plöntur síðasta vor. Þá grófu verktakarnir í sundur Þjóðhátíðarlundinn og höfðu lausan hund nálægt vatnsbrunnum Orkuveitunnar.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs, sagði að borgin harmaði slík vinnubrögð á þessu mikilvæga útivistarsvæði. Eftir helgi muni skipulagsráð fara yfir málið með Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Gunnar Birgisson segir að byrjað hafi verið á framkvæmdunum þar sem samkomulag við Reykjavíkurborg hafi verið undirritað.
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.