Leita í fréttum mbl.is

Er allt þegar þrennt er?

eða þarf fjórða sinn til fullkomnunar?

18. maí 2006:

Í gær fimmtudaginn 18. maí 2006 fór fram fyrsta skóflustunga að byggingu þjónustukjarna ásamt hjúkrunaríbúðum/rýmum fyrir eldri borgara. Skóflustunguna tók Jóhanna Arnórsdóttir en hún er heiðursfélagi FEBK og f.v. formaður samtakanna. Fjölmenni var á staðnum. ... lesa meira
http://www.gunnarbirgisson.is/frettirpage.asp?ID=908

 

29. ágúst 2008:
mynd
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og fulltrúi félags- og tryggingamálaráðherra, Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri, tóku fyrstu skóflustunguna að fyrri áfanga hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Boðaþingi í Kópavogi í morgun, 29. ágúst 2008. ... lesa meira:
http://www.visir.is/article/20080829/FRETTIR01/349134484

Og svo aftur í gær, 27. mars 2009.
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs, taka fyrstu skóflustugnuna við Boðaþing.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, tóku í dag, 27. mars 2009, fyrstu skóflustunguna að nýjum leiguíbúðum fyrir 60 ára og eldri við Boðaþing í Kópavogi. Þar munu rísa 95 þjónustu- og öryggisíbúðir og munu framkvæmdir við fyrri áfanga, alls 48 íbúðir, hefjast nú í vor. ... lesa meira:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/27/reisa_95_leiguibudir_fyrir_aldrada_i_kopavogi/ 

Ég segi nú bara eins og bæjarfulltrúi Guðríður Arnardóttir, „ætlar karlinn að handmoka grunninn?“


mbl.is Reisa 95 leiguíbúðir fyrir aldraða í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamálið er ekki fólkið heldur flokkurinn

Í gær hófst landsfundur Samfylkingarinnar í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi. Mér fannst það vel við hæfi að ég sæti minn fyrsta landsfund á heimavelli í mínum heimabæ og mætti því full eftirvæntingar um klukkustund áður en blása átti til leiks. Í Smáranum hitti ég jafnan fullt af vinum mínum og kunningjum og þó nú væri enginn venjulegur kappleikur að fara af stað, og á engan hátt íþróttatengdur, þá vantaði vinina ekki heldur að þessu sinni.

Rannveig Guðmundsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar, bauð fundarmenn velkomna í Kópavog. Hún sagði í örstuttu máli frá sögu bæjarins sem byggður var af harðduglegu fólki sem ekki var innvígt né innmúrað í valdaklíku íhaldsins og fékk ekki úthlutað lóðum í Reykjavík. Þetta fólk byggði sér því nýjan bæ á Digraneshálsi á ódýrum sumarhúsalóðum. Rannveig sagði frá því að bærinn hafi eitt sinn gengið undir nafninu „barnabærinn“ vegna hins háa hlutfalls barna meðal íbúa. Af þessu var bærinn ákaflega stoltur og síðar hlaut bærinn ekki síðra viðurnefni: „félagsmálabærinn“. Ég fann hversu stolt ég var þegar Rannveig var að flytja ræðu sína enda hef ég verið þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í þessum bæ í ríflega 45 ár og naut þess að alast upp í „barnabænum“ og taka þátt í því að gera hann að „félagsmálabænum“.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, steig því næst á stokk og flutti sérstaklega góða ræðu þar sem hún fór af yfirvegun yfir aðdragandann að síðustu Alþingiskosningum, samstarfið við Sjálfstæðismenn og síðar slit þeirrar ríkisstjórnar. Hún sagði að sækja mætti fordæmi í Kópavog sem gæti komið mörgum á óvart en: „Andi frumherja Kópavogs er dæmi um reynslusjóð sem við getum sótt í. En vítin til að varast blasa líka hvarvetna við hér í Kópavogi og í öðrum bæjarfélögum á höfuðborgarsvæðinu sem trúðu á ævarandi uppgang.“

Ég gæti tekið út fjöldann allan af dæmum úr ræðu Ingibjargar til að birta hér en læt það ógert, tengillinn hér að ofan vísar á ræðu hennar og ég tel að hún sé holl lesning. Eina tilvitnun enn get ég þó ekki stillt mig um að birta:

Í Sjálfstæðisflokknum fer auðvald og ríkisvald hönd í hönd. Hér ríkir kunningjakapítalismi. Sjálfstæðismenn eru ráðandi jafnt í fyrirtækjum sem stjórnkerfi og sú samtrygging sem þannig hefur komist á leiðir til aga- og aðhaldsleysis. Ég hef sjálf margítrekað sett þetta fram í opinberri umræðu á liðnum árum og þess vegna átti ég og við öll í Samfylkingunni að vita þetta. Það sem sló hins vegar ryki í augu okkar voru þær mannabreytingar sem þá höfðu orðið í forystu flokksins. Nýir og geðþekkari einstaklingar höfðu tekið við stjórninni og við bundum vonir við þá. Við horfðum framhjá því við stjórnarmyndunina að vandamálið er ekki fólkið heldur flokkurinn. (leturbreyting IH)

Báðar þessar mætu konur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Rannveig Guðmundsdóttir ætla nú að draga sig í hlé og vil ég fyrir mína hönd þakka þeim fyrir þeirra miklu og góðu störf í þágu Samfylkingarinnar og okkar allra. Þess má þó geta að Ingibjörg bætti við í lok ræðu sinnar: „Ég er ekki farin. Ég er bara á vegamótum“. Ég hlakka til fundarins í dag, það eru kosningar framundan og ef það hefur farið framhjá einhverjum þá styð ég Árna Pál Árnason sem varaformann flokksins.


Besti ræðumaður íhaldsins næstum á níræðisaldri

Ég veit ekki hvort það var rétt af mér, en ég ákvað að æfa mig fyrir landsfund Samfylkingarinnar í morgun með því að hlusta á útsendingu frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Í morgun ræddu þeir um Evrópusambandsaðild og eftir að hafa hlustað í góða klukkustund var ég komin með suð í eyrun. Bestu ræðuna flutti Ragnhildur Helgadóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, og sem betur fer beygði Sturla Böðvarsson reglur um tíma ræðumanna nokkuð og fékk Ragnhildur að tala óáreitt í drjúga stund. Ragnhildur er ótrúlega ern og hress og greinilegt var á ræðu hennar að hún hefur engu gleymt þótt hún sé nú komin hátt á níræðisaldur, fædd 1920.

Í máli hennar kom m.a. fram að menn ættu ekki að loka á aðild að Evrópusambandinu, heldur taka málið upp fordómalaust og leggja það síðan í dóm þjóðarinnar. Það ætti ekki að líkja aðild að Evrópusambandinu við Gamla sáttmála frá árinu 1262 (sem annar ræðumaður á undan henni sagði reyndar vera frá árinu 1264) slíkt væri fjarri öll lagi enda væri um samninga að ræða en ekki afsal allra réttinda.

Eftir að Ragnhildur hafði flutt sköruglega ræðu sína fékk ég aftur suð í eyrun vegna málskrúðs annarra fulltrúa og á endanum gafst ég upp á að hlusta á landsfund Sjálfstæðisflokksins og hlustaði á bestu lög Queen þess í stað. Ólíkt leið mér betur með það og mætti því fersk, kát og hress til landsfundar Samfylkingarinnar í Smáranum. Upplifun mín af þeim fundi verður tilefni annarrar færslu mjög fljótlega.


Stórkostleg sýning

"Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er stórkostleg sýning," sagði Jón Kristinn Snæhólm á Hrafnaþingi á ÍNN í dag. Ég sem hélt að landsfundir væru til þess að marka stefnu og stilla saman strengi. Jafnframt verð ég þó að viðurkenna að ég hef aldrei sótt slíka samkomu þannig að kannski er fundurinn sem ég ætla á um helgina bara sýning eins og sú sem Jón Kristinn lýsti.

Ég vona þó ekki!


Minning um mann

Vinur minn, Páll Bjarnason prentari, bað mig um að um daginn að setja lag Gylfa Ægissonar, Minning um mann, á bloggið. Ég verð fús við bón hans og læt fylgja með myndskeið af Logum spila lagið.

Textinn við lagið:

Nú ætla ég að syngja ykkur lítið fallegt ljóð
um ljúfan dreng, sem fallinn er nú frá,
um dreng sem átti sorgir en ávallt samt þó stóð
sperrtur þó að sitthvað gengi á.

Í kofaskrifli bjó hann, sem lítinn veitti yl,
svo andvaka á nóttum oft hann lá.
Þá Portúgal hann teygaði, það gerði ekkert til,
það tókst með honum yl í sig að fá. 
    Viðlag:

    Þið þekktuð þennan mann,
    þið alloft sáuð hann,
    drykkjuskap til frægðar sér hann vann.


Börnum var hann góður, en sum þó hræddust hann,
hæddu hann og gerðu að honum gys.
Þau þekktu ei litlu greyin þennan mæta mann,
já, margt er það sem börnin fara á mis. 
    Þið þekktuð..


Munið þið að dæma ei eftir útlitinu menn,
en ýmsum yfir þessa hluti sést.
Því til er það að flagð er undir fögru skinni enn
en fegurðin að innan þykir best. 
    Þið þekktuð..


Nú ljóðið er á enda um þennan sómasvein,
sem að þráði brennivín og sæ.
Hann liggur nú á kistubotni og lúin hvílir bein,
í kirkjugarði í Vestmannaeyjabæ. 
    Þið þekktuð..


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 129819

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband