14.8.2009
Með stjörnur í augum
Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum að kvennalandsliðið í knattspyrnu er meðal þátttakenda í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Finnlandi í lok ágúst. Frá því að markmiðið náðist á ísilögðum Laugardalsvellinum síðasta haust hefur KSÍ unnið öruggum höndum að því að vanda til allra verka í undirbúningi liðsins með það að markmiði að hámarka árangur stelpnanna þegar á hólminn er komið. Frammistaða liðsins og þeirra sem að því standa hefur vakið mikla athygli innanlands sem utan, enda er það ekki sjálfgefið að Ísland eigi fulltrúa í úrslitakeppni EM í þessari vinsælustu íþrótt í heimi.
Erlendis hafa knattspyrnumiðlar gert liðinu góð skil og sjaldan eða aldrei hafa íslenskar knattspyrnukonur átt jafnmikla möguleika á að spreyta sig í keppni erlendis og einmitt nú. En athyglin hér heima hefur verið hreint mögnuð og hafa fjölmiðlamenn keppst við að bera lof á stelpurnar, bæði sem einstaklinga og sem lið. Hámarkinu var náð þann 14. ágúst sl. þegar heimildarmyndin Stelpurnar okkar" var frumsýnd í Háskólabíói. Þessum áhuga ber að fagna, ekki aðeins vegna kynningarinnar heldur einnig vegna þess að nú gefst ungum íslenskum knattspyrnustúlkum og -drengjum færi á að eiga sér margar og góðar fyrirmyndir hér heima.
Kannanir hafa sýnt að fyrirmyndir og markmiðasetning í íþróttum skipta gríðarlega miklu máli. Í dag njóta ungir knattspyrnuiðkendur þess að geta horft jafnt til Eiðs Smára Guðjohnsen og Margrétar Láru Viðarsdóttur, Gunnleifs Gunnleifssonar og Guðbjargar Gunnarsdóttur í leit sinni að fyrirmyndum. Það fer ekki framhjá neinum sem mætt hefur á hin ýmsu hraðmót í knattspyrnu í sumar að fyrirmyndir ungra iðkenda eru bæði konur og karlar. Hvar sem landsliðsfólk okkar kemur eru þau umkringd af ungu fólki sem vill fá eiginhandaráritanir og horfa með stjörnur í augum á þessar frábæru fyrirmyndir.
En leið liðsins að markmiði sínu hefur ekki verið neinn dans á rósum, þvert á móti hefur hún verið löng og ströng og þó stærstu ljónunum hafi verið rutt úr vegi á síðustu misserum þá býr mun lengri undirbúningur að baki. Ég vil rekja þessa baráttu aftur til níunda áratugarins þegar nokkrar áhugakonur um knattspyrnu kvenna stofnuðu Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna, HKK. Meginmarkmið samtakanna var að endurvekja kvennalandsliðið sem lagt hafði verið niður haustið 1987, krefjast þess að félagsliðin í efstu deild fengju að leika á grasvöllum og í grastakkaskóm og velta úr vegi fordómum gagnvart konum í knattspyrnu, en auk þess lögðu samtökin áherslu á að umfjöllun fjölmiðla um knattspyrnu kvenna yrði aukin. Fyrstu árin var baráttan ströng en með framsýni á skrifstofu KSÍ að leiðarljósi kom að því að starfsemi HKK lognaðist smátt og smátt útaf en samtökin hafa þó aldrei verið formlega lögð niður.
Stórum áfanga hefur verið náð en stelpurnar okkar hafa þegar sett sér nýtt markmið, þær eru ekki að fara á Evrópumótið til þess eins að taka þátt, þær vilja ná enn lengra. Til þess að svo megi verða þurfa allir að stefna að þessu sama marki, ekki aðeins leikmennirnir, þjálfararnir og þeir sem að liðinu standa, heldur einnig þú lesandi góður og allir hinir. Við þurfum að standa saman, taka eitt skref í einu og setja okkur markmið. Stöndum öll að baki stelpunum, mætum á völlinn og hrópum ÁFRAM ÍSLAND!!
Ingibjörg Hinriksdóttir,
formaður útbreiðslunefndar KSÍ
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.8.2009 kl. 00:33 | Facebook
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Það er nú annað hvort, ef ég klára sérstaka aðstoð,sem ég vildi inna af hendi. Þá bruna ég á völlinn.
Helga Kristjánsdóttir, 15.8.2009 kl. 02:41
Frábær grein Ingibjörg.Áfram Ísland og íslenskur kvennafótbolti,
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 15.8.2009 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.