10.9.2007
Þakkir til RÚV
Oft hef ég og fleiri áhugamenn um knattspyrnu deilt á Ríkisútvarpið fyrir að hafa ekki sinnt kvennaboltanum nægilega vel. Nú bregður svo við að RÚV mun sýna allnokkra leiki frá úrslitakeppni HM sem haldin er í Kína og er það lofsvert framtak hjá þeim. Ekki aðeins vegna þess að þarna gefst knattspyrnuáhugafólki tækifæri til að sjá nokkur af bestu kvennaliðum heims, heldur einnig vegna þess að loksins fá ungar knattspyrnukonur tækifæri til að sjá bestu knattspyrnukonur í heimi og þar með tækifæri til að samsama sig með þeim. Þar með er komin grunnur að fyrirmyndum hjá ungu stúlkunum sem oftar en ekki hafa mátt sætta sig við að líta upp til leikmanna eins og Ronaldo, Zidane, Owen og Beckham vitandi það að þær munu ekki eiga nokkurn möguleika á návígi við þá á knattspyrnuvellinum.
Ungt fólk þarf að eiga tækifæri til á að jafnast á við fyrirmynd sína, markmiðið getur verið óraunsætt en þó mögulegt. Margar af landsliðskonum Íslands hafa leikið gegn evrópskum leikmönnum sem nú etja kappi í Kína. Sem dæmi má nefna leikmenn úr þýska liðinu eins og framherjann Garefrekes, markvörðinn Angerer og varnarmanninn Hingst. Allar hafa þær leikið gegn íslenskum leikmönnum á Norðurlandamótum yngri landsliða.
Þá má ekki gleyma því að mikil og náin samvinna er meðal Norðurlandaþjóðanna í knattspyrnu kvenna og þrjú af fimm liðum Evrópu á mótinu koma úr þeirra hópi, Danir, Norðmenn og Svíar. Fimmta lið Evrópu er England og þar kannast íslenskar knattspyrnukonur á öllum aldri við mörg andlit.
Ég vil hvetja stuðningsmenn íslenskrar kvennaknattspyrnu til að senda kveðju og þakkir á RÚV fyrir framtak þeirra en þar sem margir leikjanna eru á hefðbundnum vinnutíma þá er ekki úr vegi að geta þess að margir leikir eru einnig í beinni útsendingu á netinu í gegnum vefinn www.fifa.com.
ps. staðan í leik Þýskalands og Argentínu er núna 10:0 sem er mesti munur sem orðið hefur á liðum í úrslitakeppni kvenna frá upphafi. Ég tel ekki að það sýni endilega veikleika Argentínska liðins heldur mikið frekar yfirburði Þýskalands (sem ég spái heimsmeistaratitli) og reyndar Evrópu í kvennaknattspyrnunni.
![]() |
Þýskaland með ellefu mörk í opnunarleiknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lögin mín
Eldri færslur
- Júní 2012
- Febrúar 2012
- Apríl 2011
- Desember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndasíða
Heimasíðan mín
- www.ingibjorg.net
- Völvuspá Dollýar 2011 Spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2011
- Lystauki - Veisluþjónusta Besta veisluþjónusta landsins. Fersk og framandi en þó hefðbundin. Mjög gott.
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bragi Sigurðsson
- Elfur Logadóttir
- Eygló
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jón Svavarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Margrét Júlía Rafnsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Samfylkingin í Kópavogi
- Sigurður Elvar Þórólfsson
- Sigurður Haukur Gíslason
- Sigurður Sigurðsson
- Smári Jökull Jónsson
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- TARA
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Veiðifélagið
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
Athugasemdir
Jú, gott mál að þessir leikir sjáist á Íslandi. Þetta hjálpar áreiðanlega íslenskri kvennaknattspyrnu þegar fram líða stundir.
En svona hrikalegt rótburst er nú varla til að auka áhugann. Jú, Evrópa og Bandaríkin hafa verið sterkust, en Brasilía er einnig með mjög gott lið og Norður-Kórea var ekki langt frá því að komast í 8-liða úrslitin á síðasta HM. Það skemmir fyrir keppninni í heild sinni ef Þjóðverjar ætla að vera með algjöra yfirburði. Argentína er víst númer 29 á heimslistanum. Sýnir bara skort á breidd í kvennafótboltanum enn sem komið er.
Kristján Magnús Arason, 11.9.2007 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.