Leita í fréttum mbl.is

Frábær bókamarkaður í Perlunni

Í dag lét ég loks verða af því að fara í bókamarkaðinn í Perlunni. Var svo sem ekki með það í huga að fjárfesta í mörgum bókum, en hver veit hvað maður getur dottið ofan í þegar á staðin er komið. Ég keypti 24 bækur, flestar á innan við 1000 krónur og langflestar fyrir lesendur yngri en 10 ára.

Hér er bókalistinn (verðið í sviga fyrir aftan)

  1. Dalavísur, Ragnar Ingi Aðalsteinsson (190)
  2. Bestu vinir, Hulton Getty (490)
  3. Orð dagsins úr Biblíunni, Ólafur Skúlason valdi (490)
  4. Einfætti tindátinn, ævintýri (190)
  5. Aladdín og töfralampinn, ævintýri (190)
  6. Þrír grísir, ævintýri (190)
  7. Emil í Kattholti - stórbók, Astrid Lindgren (1.490)
  8. Elsku Míó minn, Astrid Lindgren (990)
  9. Lína Langsokkur - stórbók, Astrid Lindgren (1.490)
  10. Oliver Twist, Charles Dickens (790)
  11. Nú heitir hann bara Pétur, Guðrún Helgadóttir (390)
  12. Jón Oddur og Jón Bjarni, Guðrún Helgadóttir (990)
  13. Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna (990)
  14. Nýju fötin keisarans, H.C. Andersen (590)
  15. Litla stúlkan með eldspýturnar, H.C. Andersen (590)
  16. Töfraskórnir, Enid Blyton (390)
  17. Fríða, Disney (290)
  18. Veldissproti Ottókars konungs, Hergé (490)
  19. Skurðgoðið með skarð í eyra, Hergé (490)
  20. Vandræði ungfrú Valíu Veinólínó, Hergé (490)
  21. Krabbinn með gylltu klærnar, Hergé (490)
  22. Kolafarmurinn, Hergé (490)
  23. Leynivopnið, Hergé (490)
  24. Tinni í Tíbet, Hergé (490)

Hafir þú ekki þegar farið í bókamarkaðinn, þá hvet ég þig eindregið til að fara, sennilega getur þú þannig upplifað ódýrasta ferðalag sem þú hefur farið í.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég kíki á markaðinn fljótlega.

Hilmar Gunnlaugsson, 7.3.2009 kl. 16:35

2 Smámynd: TARA

Ég er algjör bókaormur Ingibjörg....ætla að fara á morgun í annan leiðangur í Perluna og hafa frænda þinn með mér

TARA, 7.3.2009 kl. 17:35

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Tara, góða skemmtun. Ég á svo marga frændur, hver þeirra fer með þér?

Ingibjörg Hinriksdóttir, 7.3.2009 kl. 18:41

4 Smámynd: TARA

Hehehe....það er mitt að vita, en þitt að finna út  Segi þér það seinna.

Ég verð að kaupa eitthvað af þessum bókum sem þú telur upp, handa ömmustrákunum mínum.

TARA, 7.3.2009 kl. 19:13

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Soffía ... þetta er ekki sanngjarnt! Mandy það er ekki gott að kvelja fólk svona á blogginu og Tara veistu hvað ég er forvitin?

Ingibjörg Hinriksdóttir, 7.3.2009 kl. 20:43

6 Smámynd: TARA

Heyrðu mig, Ingibjörg....þú ert sannarlega forvitin og sannarlega útsmogin og með ólíkindum snögg að verða þér út um upplýsingar og nú er ég alveg mát....þú skuldar mér kaffisopa út á þetta...hehehe, hvernig heimfærirðu það ??

  







TARA, 8.3.2009 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 129526

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband