Leita í fréttum mbl.is

Hefnd ættarinnar

Þegar ég sá Morgunblaðið í morgun velti ég því fljótlega fyrir mér hvort nú væri ættarveldið í Sjálfstæðisflokknum að fórna Guðlaugi Þór á altari sjálfsupphafningarinnar sem hefur verið svo áberandi  innan flokksins undanfarna áratugi.

falki_826539Fréttirnar af framlögum FL group og Landsbankans eru sannarlega alvarlegar, en það hreinlega hlaut að vera að "flokkur atvinnulífsins" hefði einhver slík stórfyrirtæki á bak við sig, sama hvað hver sagði. Í kjölfar fréttanna af framlagi FL kemur yfirlýsing frá Geir Haarde að hann einn hafi safnað peningunum, sótt þá og eytt. Því trúði náttúrulega ekki nokkur maður og því var fundið fórnarlamb, hugmyndasmiður Morgunblaðsins sendur af stað og fréttin um Guðlaug Þór varpaði nýju ljósi á páskafríið hjá mörgum í morgun.

En af hverju Guðlaugur Þór? Hann harðneitaði því í gær að vita nokkuð um þennan styrk og því er Morgunblaðið ekki aðeins að varpa ábyrgðinni á Guðlaug Þór heldur einnig að gera hann að lygara. Í kjölfar landsfundar Sjálfstæðisflokksins komust ýmsar gróusögur á kreik um að stuðningsmenn hans í Reykjavík hafi farið mikinn á fundinum til að afla stuðnings við Kristján Þór Júlíusson. Í flokki eins og Sjálfstæðisflokknum er slíkt ekki látið óátalið.  Guðlaugur Þór lá því vel við höggi og honum var hent fyrir ljónin.

Mér dettur ekki í hug að bera blak af Guðlaugi Þór eða nokkrum öðrum í Sjálfstæðisflokknum vegna þessa máls. En ég er þeirrar skoðunar að miklu, miklu fleiri hafa vitað um styrkina. Ekki láta neinn segja þér annað!

slagord


mbl.is Guðlaugur Þór: Ég óskaði ekki eftir styrk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Sæl Steinunn Rósa -

ekki hef ég heyrt neinar raddir sem vilja bola Gulla út - hann er jú leiðtogi flokksins í suðurkjördæmi hér í Reykjavík og vel að því kominn. Ég er líka sammála því að hann gerði góða hluti sem Heilbrigðisráðherra - hluti sem Ögmundur Jónasson er ýmist að eigna sér eða rífa niður með þátttöku ábyrgðarlausra fjölmiðla.

Einhver kerling af Vefaraætt gaspraði um hlutina vegna beiðni Gulla til flokksfélaga að koma að fjársöfnun fyrir flokkinn - slíkt er alltaf í gangi og það hjá öllum flokkum. Kerling þessi kennir sig við Guðfræði og segist starfa sem djákni.

Í góðri bók sem ég lít stundum í segir - þú skalr bera sannleikanum vitni - Þú skalt ekki ljóga. Hún á sennilega öðruvísi Biblíu en ég.

Hvað varðar fjársafnanir fyrir Sjálfstæðisflokkinn þá ---

Þetta er góð ákvörðun - vonandi sýnir Samfylkingin sitt bókhald með öllu t.d. Baugsgreiðslum sem og Jóns Ólafssonar "framlögin".

ÁSKORUN TIL SJÁLFSTÆÐISMANNA - TÖKUM HÖNDUM SAMAN OG GREIÐUM HVERT UM SIG            KR. 5.000.- Í STYRKTARMANNAKERFIÐ - TIL VIÐBÓTAR ÞVÍ SEM VIÐ GREIÐUM VENJULEGA.

LÍKA ÞIÐ SEM ERUÐ EKKI INNI Í STYRKTARMANNAKERFINU NÚ ÞEGAR.

10.000 MANNS - 50 MILLJÓNIR - MÁLIÐ LEYST.

20.000 MANNS - 100 MILLJÓNIR - OG ALLT Í GÓÐUM GÍR.

Baráttukveðjur til Sjálfstæðismanna.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.4.2009 kl. 16:10

2 identicon

Niður með Sjálfstæðisflokkinn, þetta krabbamein í íslensku samfélagi! Svo elskaði Geir Sjálfstæðisflokkinn að hann gaf æruna svo flokkurinn fengi eilíft líf.

Valsól (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 16:14

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Enn verið að grafa í rústunum.

Helga Kristjánsdóttir, 9.4.2009 kl. 21:06

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Eins og mér leiðist að svara sjálfstæðismönnum sem hafa þörf fyrir að tjá sig hér á blogginu mínu þá get ég ekki látið hjá líðast að hlægja opinberlega að auglýsingu Ólafs Inga Hrólfssonar hér að ofan.

Ég vissi að FLokkurinn væri djúps sokkinn N1 sinni en ekki datt mér í hug að hann myndi leggjast svo lágt að auglýsa eftir styrkjum á bloggsíðum flokksbundins fólks í öðrum stjórnmálaflokkum. Nú eru menn djúpt sokknir í eigin eymd og volæði.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 9.4.2009 kl. 22:55

5 Smámynd: Gunni Tryggva

Eitthvað segir mér að Guðlaugur Þór viti meira um þetta mál en hann lætur uppi. Allavega þá var hann ekki sannfærandi. Í pólitík, þá er engin annars bróðir og ef hægt er að koma sökinni á sannfærandi hátt yfir á hann, þá er það í lagi. Guðlaugur hlýtur að geta tekið því, hann er tilbúinn að gera allt fyrir flokkinn og skiptir þá einu hvort það er á gráu svæði eður ei.

Gunni Tryggva, 10.4.2009 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 129479

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband