Leita í fréttum mbl.is

Viðskiptavinir horfa á í forundran

Undanfarna daga hef ég reynt að fylgjast með störfum Alþingis. Bæði er að ég hef áhuga á stjórnmálum og svo hef ég líka áhuga á að fylgjast með hvernig menn standa sig nú í aðdraganda Alþingiskosninga. Frammistaða þingmanna mun sjálfsagt ekki ráða miklu um það hvað ég kýs í komandi þingkosningum, það er þegar ákveðið af minni hálfu. Hitt er að vera Sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu er ný fyrir mig enda hefur þessi flokkur verið í ríkisstjórn síðustu ... hvað 18 ár? og ég hef fylgst af áhuga með því hvernig þeim líður í því hlutverki.

Ef ég á að draga ályktun af því sem ég hef séð á vef Alþingis síðustu daga þá verð ég að segja að Sjálfstæðismönnum líður MJÖG ILLA í stjórnarandstöðu. Sjálf hef ég nokkra reynslu af því að vera í minnihluta, hef í raun verið það sem kona allt mitt líf, svo held ég með Breiðabliki og þó stelpunum þar í fótboltanum, körfunni og frjálsum, hafi um tíma verið stórkostlegur, þá er það þó þannig að almenningur (þ.e. þeir sem ekki eru Blikar) dæma félagið oftar en ekki út frá frammistöðu karlanna. Ég er Íslendingur og sem slík hef ég gjarnan verið í minnihluta og jafnvel minnimáttar, og kannski aldrei eins og nú. Fyrir hönd Samfylkingarinnar er ég í minnihluta í bæjarstjórn Kópavogs.

Þrátt fyrir alla þessa minnihluta þá er ég engu að síður ákaflega stolt. Ég er stolt kona, stoltur Bliki, stoltur Íslendingur og ég er stolt af því að vera í Samfylkingunni. Ég hef gert mér grein fyrir því að á meðan ég er í minnihluta þá fæ ég ekki öllu mínu framgengt. Ég hef mótmælt og ég hef barist fyrir mínu en iðulega geri ég mér grein fyrir því að minn tími mun koma (eins og Jóhanna Sigurðardóttir orðaði það svo frábærlega hér fyrir nokkru). Miðað við frammistöðu Sjálfstæðismanna á Alþingi þá held ég að þeim líði illa í stjórnarandstöðu og þeir eru síður en svo stoltir af stöðu sinni þar. Þeir eru í stöðugu andsvari við sjálfa sig og ræða fundarstjórn forseta eins og þeir hafi aldrei haft þá stöðu í þinginu.

Þegar þeir komast síðan að því að þeir ráða ekki dagskrá þingsins haga þeir sér eins og óþekkir krakkar fyrir framan sælgætisrekkann í stórversluninni. Við viljum, ég vil, gefðu mér, mig langar, Aaaarrrrrgggghhhh! VIÐ VILJUM EKKI RÆÐA STJÓRNSKIPUNARLÖG!!!!

Sjálfstæðismönnum bendi ég á að aðrir "viðskiptavinir búðarinnar" horfa á í forundran!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já elskan mín hvar eru foreldrarnir?

Helga Kristjánsdóttir, 2.4.2009 kl. 20:25

2 Smámynd: Hlédís

Ekki tek ég foreldrahlutverkið að mér. Minni á sanna sögu um tilsvör prestekkjunnar, sem gift hafði verið, nauðug, mjög breiskum presti. Lést prestur á fremur óvirðulegan hátt - og fræddi einhver gæðakonan ekkjuna við erfidrykkjuna um, að allir hefðu brugðist honum, bæði skyldir og vandalausir.   " Ekki tek ég það til mín! Hvorki var ég skyld honum né vandalaus" - var svarið.    Ekki að sagan komi pistlinum beint við - en góð er hún

Hlédís, 3.4.2009 kl. 18:34

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sælar báðar, foreldrahlutverki hef ég ekki sinnt nema í hjáverkum hingað til og mun klárlega ekki fóstra þennan skríl.

Hlédís, sagan er frábær ... ekki var ég skyld honum né vandalaus! Góð!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 3.4.2009 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 129484

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband