Leita í fréttum mbl.is

1. maí - til hamingju með daginn!

Það var mikil og góð stemming í kröfugöngunni í dag.  Hygg ég að langt sé síðan svo margir tóku þátt í göngunni. Tilefni til kröfugöngu á Íslandi í dag er ærið, og veðrið í Reykjavík bauð uppá fjölmenna göngu.

Í ávarpi á Ingólfstorgi sagði formaður SFR að misskiptingin í íslensku þjóðfélagi væri orðin slík að ekki væri nokkur leið til þess að sætta sig við hana. Orð hans um 2.500 fjölskyldur sem þurfa að þiggja matargjafir fyrir jólin og einkaþotuliðið sem héldi uppá afmælið sitt fyrir 100 milljónir eru orð í tíma töluð. Þetta er ekki það þjóðfélag sem ég vil búa í. Undanfarin ár hafa ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks (sem í einu nafni gæti kallast Sjálfsóknarflokkur) búið í haginn fyrir einkaþotuliðið og þeir sem þar ráða hafa skarað rækilegan eld að eigin köku. Veisluborð Sjálfsóknar er uppurið og nú haga þeir sér eins og þeir hafi alls ekki tekið þátt í veisluhöldunum!

Þau verk sem nú bíða ríkisstjórnar Íslands eru ekki líklegt til mikilla vinsælda. Það mun kosta fórnir að brjóta verðbólgudrauginn á bak aftur og koma hjólum atvinnulífsins aftur á gott skrið. Það er krafa dagsins að jöfnuður í íslensku samfélagi verði meiri og að sú gegndarlausa misskipting sem er arfleið Sjálfsóknarflokksins verði stöðvuð hratt og örugglega. Þar mun Samfylkingin gegna lykilhlutverki.

Vinnandi fólki til lands og sjávar færi ég hamingjuóskir í tilefni dagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll Arnþór, þú skuldar mér bara eina göngu! Ræðumaðurinn talaði ekki um fórnir, það eru mín orð.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 1.5.2008 kl. 17:10

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Ræðan var fín. Þessi orð hans um misskiptinguna hvöttu mig til að skrifa það sem ég lét flakka hér að ofan. En til að svara fyrri spurningum þínum um fórnirnar og hver ætti að færa þær þá bendi ég á að smælingjarnir munu sjálfsagt færa stærri fórnir en bankarnir og það má líka benda á að ef bankarnir munu blæða þá munu smælingjarnir blæða.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 1.5.2008 kl. 17:29

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Og til að bæta við þetta þá mætti leggja út frá orðum skáldsins:

Stjórnmálamönnunum og einkaþotuliðinu er aldrei kastað neitt
Þeir skilja illa þrengingar almúgans
Enda er gullfiskaminni þjóðarinnar algert

Ingibjörg Hinriksdóttir, 1.5.2008 kl. 17:32

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Flottur pistill hjá þér Ingibjörg!  Og alveg sammála Arnþóri, þetta er helv. vel mælt hjá þér.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 3.5.2008 kl. 00:58

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Takk fyrir það Lilja. Það er nú reyndar ekki skrýtið að Arnþóri þyki þetta vel mælt! Hann orti þessar línur, en ég vissulega setti kirsuberið á ísinn með því að bæta einkaþotuliðinu í vísuna (sem ég fékk reyndar lánað frá formanni SFR)!  Þar sem ég vil ekki vera dæmd fyrir þjófnað þá má því segja að þetta sé vel mælt hjá okkur öllum

Ingibjörg Hinriksdóttir, 3.5.2008 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 129483

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband