Leita í fréttum mbl.is

Og enn er EKKERT gert

Í nýlegri fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneyti er greint frá stöðu fjárfestingarverkefna sem tengd eru orkufrekum iðnaði og raforkukerfinu. Þar kemur fram að fjárfestingar sem tengjast orkufrekum iðnaði og raforkukerfinu eru áætlaðar samtals um 400 milljarðar til ársins 2017, þar af um 265 milljarðar í ár og næstu þrjú ár. Óvissa og erfiðar aðstæður til fjármögnunar hafa tafið ákvarðanir en samantekið er staða þessara verkefna eftirfarandi:

Búðarhálsvirkjun og stækkun í Straumsvík
Bygging Búðarhálsvirkjunar og stækkun álversins í Straumsvík Landvirkjun hefur nýlega tekið ákvörðun um að bjóða út undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Kostnaðaráætlun vegna þessara framkvæmda er um 600-800 millj. kr. og gert er ráð fyrir 30-40 störfum við framkvæmdirnar. Viðræður standa yfir um sölu á orku frá Búðarhálsvirkjunar til stækkunnar á álverinu í Straumsvík.

Verne Holding
Bygging gagnavers Verne Holding í Reykjanesbæ Fjárfestingarsamningur og frumvarp til heimildarlaga vegna byggingar gagnavers  Verne Holding ehf. er til umfjöllunar á Alþingi. Þá hefur náðst samkomulag um að stjórnvöld beiti sér fyrir því að meðferð virðisaukaskatt á tækjabúnaði til  gagnavera á Íslandi verði sambærileg við það sem gildir innan Evrópusambandsins. Forsvarmenn Verne Holding eru bjartsýnir á að hægt verði að hefja rekstur í gagnaverinu á árinu 2010.

Munið að þetta heitir að gera EKKERT!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dante

Sorglegt að sjá hversu blint sumt fólk getur verið .

Ef það er verið að gera svona gríðarlega mikið, eins og þú segir, afhverju eykst þá atvinnuleysið?

Dante, 4.3.2010 kl. 17:27

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Dante ... bentu mér á hvar það stendur blogginu mínu að það sé verið að gera svona "gríðarlega mikið" ... Það er mikill munur á því að gera margt og þþví að gera EKKERT ...

Talandi um blindu!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 4.3.2010 kl. 21:42

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Fjöldi ungs fólks fær nú ekki vinnu vegna aðgerðarleysir, vanhæfrar ríkisstjórnar. Í stað þess að hvetja ríkisstjórnina til þess að segja af sér, þá vilt þú verja þetta ástand. Það er þitt val.

Sigurður Þorsteinsson, 4.3.2010 kl. 22:51

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ingibjörg, ég hvet þig til þess að segja af þér starfi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og búa við óöryggi á almennum markaði. Síaðan skaltu skrifa varnarskrif gagnvart þessari handónýtu ríkisstjórn. Þá gæti verið að ég gæti tekið meira mark á þér. Hitti einn góðan vin okkar úr Breiðablik, smiður, hann sagðist hafa lesið skrif þín og kallaði þau blaðurskjóðuskrif.

Sigurður Þorsteinsson, 5.3.2010 kl. 21:01

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Siggi

mikið ertu bitur maður. Hvað kom fyrir þig?

Ingibjörg Hinriksdóttir, 6.3.2010 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 129481

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband