Leita í fréttum mbl.is

Kosning stendur til kl. 17 í dag - Árna Pál í 1. sætið

Koma svo ... ekki klikka á að kjósa. Kjörstaðir eru opnir m.a. í Hamraborg 11 í Kópavogi og Þverholti 3 í Mosfellsbæ.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvers vegna vilt þú, og greinilega fleiri Árna Pál?!? Mér er það gjörsamlega óskiljanlegt!

Ég mun kjósa eitthvað annað en Samfylkingu fyrst hann vann prófkjörið.

Gunnar (IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 20:31

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll Gunnar,

í færslu hér á blogginu mínu taldi ég að það væri alveg ljóst að ég þarf ekki að réttlæta mitt val á frambjóðendum fyrir einum né neinum, þar með talið þér.

Að sama skapi þá kemur mér það ekki við hvað þú kýst 25. apríl. Við eigum ekkert annað en okkar eigin sannfæringu þegar gengið er að kjörborðinu og það er mín sannfæring að málstaður Samfylkingarinnar sé það sem ég samsvara mig helst við. Þú þarft að gera það upp við þig hvað þú vilt og ég mun virða þína ákvörðun. Gangi þér vel.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 14.3.2009 kl. 23:21

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Sko mína, þú ert svo sanngjörn og heil og ákveðin.

Helga Kristjánsdóttir, 15.3.2009 kl. 02:15

4 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Ingibjörg það er aldeilis upp á þér typpið þessa dagana uss þú ert svona eins og reiður afturhaldskommatittur ??? en flott hjá þér ég mun aldrei kjósa Samfó og þá segi ég aldrei og líklega mun ég bara aldrei kjósa aftur þetta er eins og sandkassa leikur með stærri tólum. En þér kemur það svo sem ekkert við heldur hvað ég kýs en eigðu góðar stundir með þinni sannfæringu í kjörklefanum ekki efa ég það að Árni sé ágætisnáungi en hann ber sína ábyrgð en axlar hana ekki frekar en nokkur annar hvar í flokki sem hann stendur. HK kveðja Þórarinn

Þórarinn M Friðgeirsson, 15.3.2009 kl. 16:29

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll kæri vinur, alltaf gaman að fá kveðju frá þér. Auðvitað ber Árni Páll sína ábyrgð eins og allir hinir þingmennirnir sem sátu á þingi í október sl. Hans ábyrgð er þó að mínu mati mun minni en t.d. ráðherranna sem voru í þáverandi ríkisstjórn, mun minni en stjórn Seðlabankans sem var og mun minni en fyrri stjórn Fjármálaeftirlitsins.

Það er alveg ljóst að við getum ekki kastað öllum á bálið, í prófkjörunum sem nú eru brátt yfirstaðin, hafa kjósendur fengið tækifæri til að vísa mönnum frá og endurnýja í sínum röðum. Kannski var ekki næg endurnýjun í mínum flokki en my oh my ... hvaða endurnýjun átti sér stað hjá Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum eða VG hér í kjördæminu?

Auðvitað kýst þú samkvæmt þinni sannfæringu og ég er klár á því að þá verður uppi á þér typpið rétt eins og það var í allan gærdag eftir leikinn! Gangi þér vel!

Blikakveðja, Ingó

Ingibjörg Hinriksdóttir, 15.3.2009 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 129491

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband