Leita í fréttum mbl.is

Þetta er náttúrulega óþolandi að ekki sé talað um ólöglegt og siðlaust!

Lára Hanna, bloggvinkona mín, er snilldarbloggari. Hún er óþreytandi að safna saman fréttum af siðspilltum og siðblindum bankamönnum, auðmönnum og stjórnmálamönnum sem aldrei virðist hafa verið kennt að skammast sín eða bera ábyrgð á nokkrum hlut. Í gær skrifaði Lára Hanna um tölvupóst sem gengið hefur eins og eldur í sinu um netheima þar sem sagt er frá ótrúlegum viðskiptum æðstu stjórnenda Kaupþings í aðdraganda falls bankanna. Þá sögu ætla ég ekki að rekja hér, það gerir Lára Hanna best allra og vísa ég á hennar síðu (http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/697952/).

Hitt er annað að Kaupþing er viðskiptabankinn minn. Þetta er bankinn sem ég hef treyst fyrir mínum fjármálum frá því ég hætti með reikningsviðskipti við Útvegsbankann uppúr 1977 og lagði fermingarpeningana mína inní Búnaðarbankann. Allar götur síðan hef ég haldið tryggð við bankann, hvað nafni sem hann hefur nefnst. Ég viðurkenni að ég var stolt af bankanum mínum þegar í ljós kom að hann virtist ætla að standa af sér kreppuna. Ég var sárreið út í æðstu stjórnendur í Bretlandi sem felldu bankann (þó hann hefði kannski fallið hvort eð er) og ég var einhvernvegin örugg um að útgreiðsluhlutfall úr peningamarkaðssjóðum Kaupþings yrði hærra heldur en hjá hinum bönkunum, sem það og varð!

Fréttir dagsins í dag segja mér hins vegar að ekki var allt með felldu í þessum banka frekar en öðrum. Siðspillingin og siðblindan sem þar ræður ríkjum virðist vera algjör og í dag sýður á mér. Hvurslags viðskiptasiðferði er þetta eiginlega? Bankinn hefur af mér pening, sem ég hef nurlað saman í gegnum tíðina og lagt inná peningamarkaðssjóð. Bankinn fékk verðbréfagutta til að telja mér trú um að hætta við að selja í peningamarkaðssjóðnum 18. september sl. og ég beit eins og asni á agnið. Það kostar mig slatta af peningum. Enga milljarða þó!

En þeir sem töldu verðbréfaguttanum trú um að blekkja mig til að halda aurunum mínum inní bankanum, þeir eru klipptir úr snörunni eins og ekkert sé. Þeir geta fært lántökur sínar uppá hundruðir og jafnvel þúsundir milljóna á hlutafélag korteri áður en bankinn er þjóðnýttur og þetta er leyft vegna þess að það er ekki hægt að finna nægilega HÆFA stjórnendur!!! Halló ... halló ... mennirnir tóku milljarða lán út á andlitið á sér!  Halló ... halló, það var einhver sem lánaði þeim MÍNA peninga út á veð í sjálfum sér! Það á að halda áfram að treysta ÞESSUM mönnum til að stjórna bankanum.

Er enginn heima?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Addi minn tapaði aðeins 600,þúsund hugðist nota það upp í bíl.

Helga Kristjánsdóttir, 4.11.2008 kl. 00:29

2 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Daunin leggur um þjóðfélagið og hann versnar bara og versnar eftir eftir því sem meira er flett ofan af haugnum. Feginn núna að ég hef ekki tekið lán í 20 ár...en ég á svo sem ekki margt heldur nema góða vini og gítarinn minn

Georg P Sveinbjörnsson, 4.11.2008 kl. 01:53

3 Smámynd: Kristján Þór Gunnarsson

Reiði þín er meira en réttlát. Ætli verðbréfaguttinn sem taldi þér trú um að selja ekki úr peningamarkaðssjóðnum sé ekki sjálfsagt sá eini sem hefur eitthvað samviskubit og líði illa ? Hann hefur sjálfsagt verið matreiddur með upplýsingum " að ofan " og verið í " góðri trú ".  Topparnir; ef þetta er allt rétt; á að setja í gapastokk á Lækjartorgi !

Kristján Þór Gunnarsson, 4.11.2008 kl. 18:25

4 Smámynd: Heidi Strand


Georg þú ert ríkur maður í dag.

Heidi Strand, 4.11.2008 kl. 22:33

5 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Það má segja það, en það tók mig líka obbann af þessum 20 árum að borga upp öll lán sem ég hafði tekið áður, rétt kominn á núllið þegar spilaborgin hrundi með látum. Það sem kom vitinu fyrir mig var þessi bók.

Georg P Sveinbjörnsson, 4.11.2008 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 129513

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband