Leita í fréttum mbl.is

Fylgiskönnun Plússins

Var að lesa frétt inná www.dv.is þar sem fram kemur að „Sjálfstæðisflokkurinn nýtur minna fylgis en nokkru sinni áður, eða 22 prósenta, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Plússins. Hins vegar segjast um 42 prósent styðja Samfylkinguna. Um 14 prósent styðja Vinstri græna. Aðrir flokkar fá minna fylgi.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar treystir einungis fimmti hver kjósandi samanlagt Ólafi F. Magnússyni og Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni til að gegna embætti borgarstjóra. Níu prósent segjast treysta Vilhjálmi best til að verða borgarstjóra. Núverandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon, nýtur ellefu prósenta fylgis. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, hlýtur aftur á móti stuðning 79 prósenta aðspurðra. Könnunin var gerð eftir Kastljósþáttinn fræga þar sem Vilhjálmur vísaði til þess að hann hefði ráðfært sig við borgarlögmann vegna umboðs síns í REI-málinu svokallaða.

Alls tóku rúmlega 4000 manns þátt í skoðanakönnuninni og voru þeir búsettir víðsvegar um landið. Taka verður mið af því að 72 prósent þátttakenda í könnuninni eru konur. Þá er einungis fimmtungur svarenda yfir fimmtugu.“

Þessi könnun verður að teljast marktækari en könnun Heims um daginn þar sem aðeins nokkur hundruð svöruðu.  Fyrirvarinn sem settur er aftast í könnunina bendir hins vegar til að sá sem skrifar fréttina vilji draga úr vægi hennar og tiltekur því kynjahlutfall og aldursbil þeirra sem svöruðu. Má þá draga þá ályktun að ungar konur styðji Samfylkinguna meira en aðra flokka og sé í sama mæli ekki eins hallar undir Sjálfstæðifslokkinn?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 129497

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband