Leita í fréttum mbl.is

Ársþing KSÍ

Ársþing KSÍ var haldið í dag. Þingin eru vart svipur hjá sjón frá því sem áður var, í dag hófst þingið kl. 11:00, 30 mínútna hlé var gert um hádegisbil og var þinginu slitið skömmu fyrir kl. 15:00. Ég man eftir þingum sem voru í þrjá daga, hófust á föstudagseftirmiðdegi, voru allan laugardaginn og lauk um miðjan dag á sunnudegi. Þá tókust menn á um málefni og það var þjarkað um alla mögulega og ómögulega hluti. Í dag kom einn upp vegna ársreikninga, einn undir skýrslu stjórnar og einn undir liðnum önnur mál.

Það má þó segja að þingin séu orðin markvissari og málefnalegri en þau voru, þingfulltrúar eru að mörgu leyti betur undirbúnir en áður og ákvarðanir er varða knattspyrnuna á Íslandi eru teknar jafnt og þétt yfir allt árið. Það er gott.

Kosið var til nýrrar stjórnar, ég var í framboði og hlaut náð fyrir augum þingfulltrúa til tveggja ára setu til viðbótar. Fyrir það er ég bæði þakklát og stolt en nú er það ljóst að ég mun sitja í stjórn KSÍ í átta ár í það minnsta en ég var fyrst kosin í stjórn árið 2002.

2008
Stjórn KSÍ kosin á ársþingi í janúar 2008.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta bara ekki svo vel skipulagt hjá ykkur.  Það er nú alltaf þannig í grasrótarsamtökum að það þarf öfluga menn til þess að skipuleggja hagsmuni heildarinnnar. Þeimur betur sem það er gert því minni vandamál á þingum. Auðvitað eru margir sem að segja að þing eigi að taka minnst 3 daga en kannski er það arfleið gamalla tíma þar sem að samgöngur eru miklu betri. Einnig er vert að geta þess að samráð og samvinna í gegnum nefndarstörf er einnig meira heldur en verið hefur.

Meinhornið (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 18:22

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Kæra Meinhorn, þakka þér fyrir athugasemdina. Jú kannski má segja að skipulagið sé barasta nokkuð gott hjá KSÍ. Það þarf líka að vera það í svona stóru sérsambandi með gríðarlega mikið og öflugt starf. Það var nýjung á þinginu í dag að nokkrir sérfræðingar, starfsmenn KSÍ, fluttu erindi um það starf sem unnið hefur verið innan sambandsins. Mér fannst það vel til fundið, Magnús Jónsson dómarastjóri KSÍ flutti mjög fróðlegt erindi um dómaramál, menntun þeirra og kröfur og Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri flutti einnig fróðlegt erindi um fræðslumál, þjálfaramenntun og fleira.

Það er mitt mat að innlegg þessara starfsmanna sem og stjórnarmannanna Jóns Gunnlaugssonar og Lúðvíks S. Georgssonar um grasrótarstarf og mannvirkjamál hafi verið ákafaflega þörf og góð fyrir þingheim til að hlýða á. Fjölmiðlum hættir til að fjalla miklu meira og oftar um þau mál knattspyrnunnar sem eru neikvæð. Það var því mjög ánægjulegt að fá frá þessum herramönnum jákvæð og öflug innlegg um allt það mikla og góða starf sem unnið er innan knattspyrnusambandsins. Á bak við það starf liggur gríðarmikil vinna stjórnarmanna og nefndarmanna sem hafa lagt sig alla fram um að skila góðu starfi, knattspyrnunni á Íslandi til heilla.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 9.2.2008 kl. 23:40

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Þakka þér félagi Arnþór, dittó til baka til þín!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 12.2.2008 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 129497

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband