Leita í fréttum mbl.is

Hvar hef ég verið?

Það er ekki nema von að spurt sé. Ekkert bloggað í tvær vikur og sumir bloggvinir farnir að óttast þó ekki hafi þeir haft fyrir því að senda manni fyrirspurn um fjarveruna. Hvað um það. Ætli mín hafi ekki bara verið í landinu helga, Ísrael, þar sem hún fetaði í fótspor Jesú Krists og lærisveinanna.

Tilgangur ferðarinnar var þó alls ekki sá að boða fagnaðarerindið en það tókst þó engu að síður þar sem það kom í minn hlut að fræða ungar knattspyrnustúlkur um kristinsögu og rifja upp fyrir þær helstu kraftaverk sem um er getið í Biblíunni. Tían sem ég fékk reglulega í kristinfræðum í Digranesskóla í gamla daga skilaði sér sem sagt fyrir rest!

Annars var það skemmtilegt að fræða stelpurnar um þá staði sem við heimsóttum, m.a. sáum við heimabyggð Símons Péturs Jónassonar, sem Jesús gerði að leiðtoga kirkjunnar.

Hann spyr: En þér, hvern segið þér mig vera?

Símon Pétur svarar: Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.

Þá segir Jesús við hann: Sæll ert þú, Símon Jónasson! Hold og blóð hefur ekki opinberað þér þetta, heldur faðir minn á himnum. Og ég segi þér: Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast. Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum.

Eftir að ég hafði rifjað upp þessa sögu með knattspyrnustúlkunum ungu spurði ég þær hvort þeim þætti þetta ekki merkilegt, að vera á þessum stað? Og það stóð ekki á svari: „Nei, þetta er hundleiðinlegt!“ - Það olli mér þó engum áhyggjum, þær munu meta þetta síðar!

Ekki má gleyma því að Jesús gekk á Galileu vatni og hann lægði storm sem gerði fiskimönnum þar lífið leitt. María magðalena átti heima við Galileu vatn og við vatnið eru líka Gólanhæðir sem eiga sér örlítið yngri sögu í huga okkar, en Ísraelar hernámu þær af Sýrlendingum árið 1967, í sex daga stríðinu.

Meðal þeirra staða sem við heimsóttum var kirkja hinna fátæku en á leið okkar að henni rákumst við á ritninguna: "Sælir eru fátækir í anda því þeirra er himnaríki." Myndin hér að neðan er einmitt tekin við þá kirkju, þarna sér yfir Galileu vatn en niðri við vatnið hægra megin við mig er talinn vera bústaður Maríu magðalenu.

U19 Israel 123

U19 Israel 124
Kirkja hinna fátæku við Galileu-vatn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Mikið er gott að fá þig heim.Já varstu í Israel. Nr.hvað er boðorðið "þú skalt ekki ljúga"  ,það gerði ég óvart þegar ég sagði þig í Frakklandi,ætlaði að spyrja kirkjunnar menn næst þegar ég hitti þá,hvort til sé "hvít"lygi.    Að spyrjast ekki fyrir um þig, nei vissi að þú varst ekki týnd sá að þú tilkynntir komu þína 1.des. Svo velkomin mín kæra.     Salom.

Helga Kristjánsdóttir, 3.10.2008 kl. 17:05

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

nei, 1okt. (málsbætur:var í símanum meðan ég gerði þetta)

Helga Kristjánsdóttir, 4.10.2008 kl. 02:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 129510

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband