Leita í fréttum mbl.is

Sætustu afmæliskveðjurnar frá smáfólkinu

Já ég átti afmæli í gær, fagnaði 44 ára afmæli mínu með pompi og pragt. Fjórar tegundir af heimabökuðum kökum á boðstólum í vinnunni í gær fyrir vinnufélagana og lítið boð heima í gærkvöldi fyrir vini og fjölskyldu. Já og svo út að borða í hádeginu með Hrund og Sif.  Öllum þeim sem samfögnuðu með mér í gær og sendu mér kveðju þakka ég hlýhuginn, koss, koss!

Víst fékk ég margar fallegar og góðar gjafir en tvær þeirra standa þó uppúr. Hina fyrri fékk ég í hádeginu þegar Soffía kom með pakka frá sér, og líka pakka frá dóttur sinni, Dóru, sem er sjö (bráðum átta) ára skólastelpa. Hún pakkaði gjöfinni minni vandlega inn í mörg lög af pappír, límdi aftur með límbandi, túpulími og heftum ... en þar sem ég er eldri en tvævetra, opnaði ég hvert lag eins varlega og ég gat enda full viss um að innst inni í pakkanum leyndist einhver falleg gjöf. Það var líka alveg rétt, Dóra hafði útbúið skemtilegt jólaskraut á jólatré úr pappír, skreyttum með límmiðum og glimmer. Mjög flott ... svo bjó hún líka til fallegt kort þar sem hún óskaði mér til hamingju með afmælið og skrifaði undir: „Stelpan hennar Soffíu, þín Dóra.“  Þetta þótti mér mjög vænt um að fá.

Önnur gjöf, var eiginlega kveðja og persónulegur söngur frá Sigrúnu Birtu Sturludóttur fjögurra ára frænku minni sem býr vestur á Kársstöðum í Helgafellssveit. Hún hringdi í mig og óskaði mér til hamingju með afmælið. Þar sem við frænkurnar eigum afmæli heldur seint á árinu, hún er 27. nóvember, þá er það henni mikil huggun að vita til þess að ég á afmæli á eftir henni en þegar ég spurði hana hver ætti næst afmæli þá var hún ekki viss. Ég spurði hana hvort það væri ekki Jesúbarnið og hún var fljót að taka undir það. „Hann fær kannski Batmanköku!“ Við sammæltumst um það að það væri meira við hæfi að baka Batmanköku fyrir Jesúbarnið heldur en Prinsessuköku og í huga mínum kom mynd af Kolbrúnu Halldórsdóttur, alþingiskonu, súpandi hveljur af skömm yfir þessari umræðu okkar frænknanna. 

En Sigrún Birta vildi líka syngja fyrir mig, hún hefur ákaflega fallega söngrödd og ég tók því vitaskuld fagnandi þegar hún vildi syngja:

 - „Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á ... Ingó, hvað ertu gömul?“
 - ég er 44 ára
 - ertu fjögurra ára eins og ég? Spurði Sigrún Birta og ég sá í gegnum símann hvað það birti yfir minni!
 - já, ég er fjögurra ára ... (ekki laust við að samviskubit nagaði mig þegar ég var búin að segja þetta)
 - þá ætla ég að halda áfram að syngja: Hún er fjögurra ára hún Ingó, hún er fjögurra ára í dag!“

Þetta var sætasta kveðjan sem ég fékk í gær og um stundarsakir leið mér bara alveg eins og ég væri fjögurra ára.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 129489

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband