Leita í fréttum mbl.is

Áreiðanleiki skoðanakannanna og ábyrgð fjölmiðlamanna

Nú rignir yfir þjóðina hinum ýmsu skoðanakönnunum með reglulegu millibil.  Því miður falla fjölmiðlamenn ítrekað á prófinu þegar kemur  til þess að meta áreiðanleika kannanna og túlka niðurstöður þeirra. Eitt það alvarlegasta er að fjölmiðlar - sumir hverjir - gera engan greinarmun á könnunum.

Sumir útvarpsmenn telja t.d. "kannanir" á vefnum eins og t.d. hjá Útvarpi Sögu og Bylgjunni þar sem hver getur setið við tölvuna og valið mörgu sinnum það sem honum líkar marktækar sem er náttúrulega af og frá.

Síðan eru kannanir fyrirtækja eins og MMR (http://www.mmr.is/) og Plúsinn (http://plusinn.is/) sem nota í úrtak sitt lokaðan viðhorfahóp og kannarnir unnar af Talnakönnun fyrir heimur.is sem birtast í blöðum eins og Frjálsri verslun og Viðskiptablaðinu sem eiga það sammerkt að virðast ekki gera miklar kröfur um svarhlutfall (birta á stundum niðurstöður sem byggja á fáum svörum og hafa því mikil vikmörk).

Kannanir frá þessum fyrirtækjum eru því marki brenndar að í þeim er ekki spurt ítrekað til þess að minnka hlutfall óákveðinna og þar með minnkað vægi Sjálfstæðisflokksins til þess að vinna gegn þeirri meginreglu að sjálfstæðismenn gefa sig fyrr upp í könnunum og þess vegna mælist flokkurinn ítrekað hærri í skoðanakönnunum en í kosningum.

Í gegnum tíðina hafa Fréttablaðið og Capacent gert þær kannanir sem komist hafa næst úrslitum kosninga - Fréttablaðið gerir kannanir með stórum úrtöku slembiúrtökum á skömmum tíma og Capacent blandar saman lokuðum viðhorfahópi sínum saman við slembiúrtök í gegnum síma og fær út stórt úrtak, t.d. 7000 nú í febrúar og birtir reglulega niðurstöður í Þjóðarpúlsi sínum sem fróðlegt er að skoða:

Þjóðarpúls frá því að meirihlutaríkistjórn Jóhönnu Sigurðadóttur tók við völdum:

Stuðningur við ríkisstjórnina:

  • Júní 09 49%
  • Júlí 09 48%
  • Ágúst 09 49%
  • September 09 47%
  • Október 09 48%
  • Nóvember 09 47%
  • Desember 09 46%
  • Janúar 10 50%
  • Febrúar 10 47%

Athygli vakti að sömu fréttamenn sem sögðu í gærkvöldi að stuðningur við ríkisstjórnina hefði minnkað um 3% höfðu ekki orð á því um síðustu mánaðarmót að stuðningur við ríkisstjórnina hefði aukist um 4%!

http://capacent.is/Frettir-og-frodleikur/Thjodarpulsinn/Thjodarpulsinn/2010/02/05/Rikisstjornin-nytur-aukins-studnings-kjosenda/

Það mætti með réttu telja að aukinn stuðningur við ríkisstjórnarinnar væri einnar fréttar virði, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að ríkisstjórnin stendur nú í einhverjum erfiðustu verkum lýðveldistímans.

Aðalfréttin er auðvitað sú að fylgi ríkisstjórnarinnar hefur lítið breyst þrátt fyrir gríðarleg verkefni og greinilegt er að almenningur hefur enn trú á henni þrátt fyrir stanslausan áróður um annað.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ingibjörg hvernig hefur mælingin á trausti til Jóhönnu þróast?

og vel á minns við inngöngu í ESB...

og líðan þjóðarinnar í skjaldborginni um heimilin?

Sigurður Þorsteinsson, 2.3.2010 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 129514

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband