Leita í fréttum mbl.is

Kostnaður Kópavogsbæjar við Kórinn á fjórða milljarð

Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs í gær lá fyrir fundinum svar framkvæmda- og tæknisviðs um kostnað við byggingu knattspyrnuhallarinnar Kórsins, þ.e. þann hluta sem Kópavogsbær hefur átt frá upphafi.

Hér er rétt að taka það strax fram að um er að ræða knatthúsið sjálft og búningsklefa en ekki íþróttahúsið og sundlaugina sem búið er að byggja við húsið.

Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmda- og tæknisviði er kostnaður bæjarins fram til dagsins í dag:

  • Kórinn, knatthús 1.705.128.986
  • Íþróttavellir við Kórinn, 187.345.582

Þessar tölur sem hér eru hafa verið skv. mínum upplýsingum uppreiknaðar til dagsins í dag en bygging hússins hófst að mig minnir á árinu 2005 eða 2006.

Nú er fyrirliggjandi samningur milli Knattspyrnuakademíu Íslands og Kópavogsbæjar um að kaupa íþróttahúsið, sundlaugina, móttökuna, veitingaaðstöðuna og stækkun veitingastaðarins á svæðinu fyrir samtals 1.650.000.000 krónur. Áhvílandi á þessum eignum eru veðbönd að fjárhæð 820.000.000 króna.

Samtals gerir þetta kostnað uppá 3.542.474.568 krónur eða rúmlega þrjá og hálfan milljarð króna.

Eftir á að hyggja hefði örugglega mátt ráðstafa skattpeningum Kópavogsbúa betur en í þetta verkefni en við verðum að sættast við húsið og það sem þar er og sameinast um að finna því sem mest gagn til framtíðar.

 


Það þarf ekki alltaf 30 silfurpeninga

Sumir eru þannig gerðir að þeir selja æru sína fyrir 30 silfurpeninga.

Þannig virðist það vera með oddvita Framsóknarflokksins í Kópavogi, þann sama og var svo ósköp sár út í fv. bæjarstjóra eftir að lífeyrismálið svokallaða kom upp. Hann var svo sár að hann krafðist þess (eftir löng fundahöld í Framsóknarflokknum) að samstarf flokkanna yrði tekið upp þegar og ef fv. bæjarstjóri sneri aftur úr leyfi.

Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi segir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins muni samþykja skilyrði framsóknarmanna um að meirihlutasamstarf þeirra verði tekið til endurskoðunar ákveði Gunnar Birgisson, fráfarandi bæjarstjóri, að snúa aftur úr leyfi sem bæjarfulltrúi - visir.is 24. júní 2009.

Oddviti Framsóknarflokksins hamaðist við það á sumarmánuðum 2009 að sannfæra Kópavogsbúa um að hann væri ákaflega hneykslaður á framferði fv. formanns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar og reyndi allt til að skera á tengsl þeirra fóstbræðra.

Til að toppa allt þá fór allt í loft upp í prófkjöri Framsóknarflokksins í síðasta mánuði þegar Ómar upplýsti að dætur Gunnars Birgissonar og hans helsti stuðningsmaður væru gengnir í Framsóknarflokkinn. Ekki taldi Ómar það vera til að hjálpa honum, nei síður en svo.

„Ekki er ég að fara grenja yfir því, heldur fagna ég þessum nýju félögum. Því ég veit að þau eru að gera þetta að góðum hug fyrir Einar Kristján. Hugsanlega gæti Frjáls miðlun unnið "pro bono" fyrir hann eitthvert kynningarefni," skrifar Ómar á heimasíðu sína en mikill styr var um fyrirtækið Frjálsa miðlun á síðasta ári en það er í eigu dóttur Gunnars, sem nú er gengin í Framsókn. - visir.is 23. febrúar 2010.

Til að toppa allt ákvað oddviti Framsóknarflokksins að breyta færslu á heimasíðu sinni eftir að fjölmiðlar sögðu fréttir af skrifum hans.

Málið er ósköp einfalt. Gunnar Ingi Birgisson helsti stuðningsmaður Einars Kristjáns, kom á Pressan.is og fullyrti að hundruðir Framsóknarmanna hefðu gengið í Sjálfstæðisflokkinn til þess að fella hann. Það er auðvitað kjaftæði hann sá um það sjálfur.

Prófkjör ganga á vissan hátt út að fjölga í flokkum. Enginn hefur verið betri í því í Kópavogi en einmitt Gunnar Ingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Nú hinsvegar er hann búinn að vera smala í Framsóknarflokkinn fyrir Einar Kristján, það er ekkert ólöglegt við það. Ég bara vinn út frá því. Hér fyrir neðan er því breytt færsla, svona eins og bjór auglýsing er bara auglýsing um léttöl.  - http://blogg.visir.is/omar/

Ómar veit jú allt um það hvað sjálfstæðismenn eru duglegir við að skrá sig í aðra flokka, telji þeir að þeir njóti góðs af því. Það er frægt að heilu bílfarmarnir voru sendir úr höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins þegar Ómar var í framboði gegn hinum öfluga Samúel Erni Erlingssyni fyrir fjórum árum. Þá fúlsaði Ómar ekki við stuðningnum enda átti hann vísa bitlinga frá fóstbróður sínum Gunnari Birgissyni. 

Eftir yfirlýsingar oddvita Framsóknar eftir Lífeyrissjóðsmálið og prófkjörið kom því ekki á óvart að margir höfðu áhuga á fyrsta bæjarstjórnarfundi sem fv. bæjarstjóri mætti á eftir veikindaleyfi. Ljóst var að ætlaði Ómar að standa við stóru orðin þá myndi hann ekki starfa með Gunnari. En oddvitinn var ekki meiri bógur en svo að hann sendi varamann sinn, umræddan Samúel Örn, á fyrsta fund bæjarstjórnar sem Gunnar mætti á.

Í dag var bæjarstjórnarfundur þar sem Gunnar Birgisson lýsti því yfir að hann ætlar ekki í sérframboð. Eftir yfirlýsinguna var kosið í nefndir, Gunnar kemur aftur inní bæjarráð en til að svo mátti verða fékk Ómar einn koparpening og formennsku í Félagsmálaráði.

Það þarf ekki alltaf 30 silfurpeninga.

Ps. til gamans bendi ég á ansi skemmtilegt blogg Halldórs Jónssonar, Framsóknarmanns.


„Þau eru súr“ sagði refurinn

Hádegismóar tala nú um nýjan skatt en ekki breytingar á lögum sem fela í sér lægri skatt af afskriftum.

Í því sambandi er rétt að benda á að afskriftir hafi ALLTAF verið skattskyldar.  Hér er ekki um nýjan skatt að ræða.  Heldur er verið að minnka hugsanlegan skatt sem fyrirtæki og einstaklingar geta lent í auk þess sem ákveðinn hluti verði skattfrjáls.

Sem sagt - aftur og til að undirstrika:

Afskriftir hafa ALLTAF verið skattskyldar.  Eftirgjöf skulda er alltaf skattskyld.

Ríkisstjórnin er með tillögum sínum að minnka þennan skatt sem hefur verið og er EKKI um nýjan skatt að ræða.  Eins og segir í fréttinni þá er talað um breytingar á skattlagningu afskrifta.

Mogginn hinsvegar setur þetta svona upp og það er athyglisvert.  Þar ræður sameiginlegt markmið Morgunblaðiðsins og Sjálfstæðisflokksins að koma stjórninni frá og tala niður aðgerðir ríkisstjórnarinnar.

Aðalatriðir er að í tillögum ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að hóflegar skuldbreytingar verði skattfrjálsar en stórfelldar niðurfellingar skattlagðar - kannski svíður síðara atriðið sárt einhverja þá sem að Mogganum standa?

 


150 ungir atvinnuleitendur til starfa hjá ÍSÍ

Vinnumálastofnun hefur samið við Íþróttasamband Íslands um að skipuleggja og stjórna sjálfboðaliðastarfi fyrir um 150 unga atvinnuleitendur á á þessu ári. Samningurinn er hluti af átaki félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, Ungt fólk til athafna, sem miðar að því að koma á fót um 2.200 menntunar- og starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum fyrir unga atvinnuleitendur á þessu ári. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar og Ólafur E. Rafnsson, forseti ÍSÍ undirrituðu samninginn í dag.

Samningurinn við Íþróttasamband Íslands tekur til ungmenna á aldrinum 18-24 ára sem eru tryggð innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Miðað er við að hver sjálfboðaliði sinni verkefnum að lágmarki 15 stundir á viku. Ráðnir verða allt að fjórir verkefnisstjórar til að annast fræðslu fyrir sjálfboðaliðana, aðstoða við val á verkefnum og hafa eftirlit með þátttöku og ástundun. Vinnumálastofnun greiðir fyrir störf verkefnisstjóranna. Íþróttasambandið sér til þess að sjálfboðaliðarnir séu tryggðir við störf sín en Vinnumálastofnun stendur straum af kostnaði vegna þess.

Áratuga reynsla er af sjálfboðaliðastörfum innan íþróttahreyfinganna í landinu og hefur verið áætlað að framlag sjálfboðaliða í starfi hreyfinganna jafngildi nærri 1.000 ársverkum.

Það samstarf sem efnt hefur verið til milli stjórnvalda og félagasamtaka hér á landi til þess að takast á við atvinnuleysi ungs fólk með fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum er einstakt og ég veit til þess að aðrar Evrópuþjóðir eru farnar að horfa til Íslands sem fyrirmyndar í þessum efnum" sagði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra við undirritun samningsins í dag.

Um 2.000 ungmenni hafa þegar verið virkjuð í fjölbreyttum úrræðum á þessu ári

Á þessu ári hefur Vinnumálastofnun tryggt um 2.000 ungmennum fjölbreytt náms- og starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá símenntunar- og fræðslumiðstöðvum, í framhaldsskólum í sjálfboðaliðastörfum hjá Rauða krossi Íslands og Íþróttasambandi Íslands og nú hjá Íþróttasambandi Íslands. Alls er ráðgert að koma á fót 2.200 úrræðum af þessu tagi á árinu.

Nýlega var opnuð miðstöð átaksins Ungt fólk til athafna við Suðurlandsbraut þar sem ráðgjafar Vinnumálastofnunar taka á móti ungum atvinnuleitendum og kynna þeim þau fjölmörgu vinnumarkaðsúrræði sem nú standa til boða. Þegar hefur verið tekið á móti fjölda ungmenna sem ýmist eru að hefja þátttöku í fjölbreyttum náms- og virkniúrræðum þessa dagana eða eru þegar byrjuð.


Á annan tug aðgerða til að draga úr skuldavanda heimilanna

Ríkisstjórnin kynnti í dag nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna, vel á annan tug nýrra úrræða sem m.a. styrkja samingsaðstöðu lántakenda gagnvart lánadrottnum. Meðal þess helsta er stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp sem veitir fleirum rétt á greiðsluaðlögun og stofnun sérstaks embættis umboðsmanns skuldara sem verður talsmaður lántakenda gagnvart lánardrottnum.

Frá upphafi banka- og gjaldmiðilshrunsins í október 2008 hefur ríkisvaldið gripið til viðamikilla aðgerða til að bæta erfiða stöðu skuldsettra heimila. Aðgerðirnar eru einhverjar þær umfangsmestu sem gripið hefur til vegna skuldavanda sem steðjar að heimilum. Þetta eru almennar aðgerðir sem nýtast öllum og sértækar aðgerðir sem beinast að þeim sem verst standa.

Nú þegar hafa um 60-80 þúsund manns notið úrræðanna og áður en árið er liðið er reiknað með að hækkaðar vaxtabætur og útborganir séreignarsparnaðar vegna úrræða ríkisstjórnarinnar nemi um 40 milljörðum króna.

Fjölmargir aðilar hafa lagt hönd á plóg við endurskoðun þeirra aðgerða sem þegar hefur verið gripið til, bæði hagsmunasamtök, fjármálastofnanir, stofnanir ríkisins og einstaklingar.

Meðal þess helsta sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar er annars vegar stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp, sem eftirleiðis verður félagslegt úrræði en ekki „vægara" form gjaldþrots. Fleiri munu hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt.

Samhliða nýju greiðsluaðlögunarfrumvarpi verður sett á fót embætti umboðsmanns skuldara sem byggt verður á traustum grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Umboðsmaðurinn verður talsmaður lántakenda gagnvart lánardrottnum og er ekki hlutlaus.

Ríkisstjórnin kynnir nú fjölmargar nýjungar sem bætir stöðu lántakenda enn frekar. Meðal þess helsta eru:

  • Sérstök úrræði fyrir þá sem eru tekjulágir eða hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli
  • Úrræði fyrir fólk með tvær eignir
  • Enn lægra hámark á dráttarvexti
  • Við nauðungarsölur verður markaðsvirði eigna dregið frá kröfu
  • Fólki gert kleift að búa í húsnæði í 12 mánuði þrátt fyrir nauðungarsölu/gjaldþrot
  • Hámarksfjárhæðir innheimtukostnaðar takmarkaðar enn frekar
  • Reglur um niðurfellingu skattkrafna endurskoðaðar
  • Hóflegar skuldbreytingar skattfrjálsar
  • Stórfelldar niðurfellingar skattlagðar
  • Dregið úr vægi verðtryggingar

Við þær sviptingar sem orðið hafa á lána- og húsnæðismarkaði er ljóst að horfa verður til framtíðar. Því mun verða lögð fram heildstæð húsnæðisstefna til framtíðar á vormánuðum, sem byggir á þremur stoðum: eigna-, búseturéttar- og leiguleið.

  • Nýju kaupleigukerfi verður komið á fót hjá Íbúðalánasjóði vegna eigna sem hann á nú þegar - örugg leiga og kaupréttur.
  • Bætt lög um húsnæðissamvinnufélög.
  • Húsnæðisbætur í stað vaxta- og húsaleigubóta.

Sjá frétt hér: http://www.samfylkingin.is/Fr%C3%A9ttir/articleType/ArticleView/articleId/1184/PageID/1184/Umfangsmiklar_agerir_vegna_skuldavanda_heimilana

Hér má finna gott yfirlit yfir það sem gert hefur verið og það sem gera á: http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir/adgerdir-vegna-skuldavanda-heimilanna.pdf

Glærur með helstu atriðum má sjá hér:

http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir/adgerdir-vegna-skuldavanda-heimilanna-glaerur.pdf


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 129558

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband