Leita í fréttum mbl.is

„Þau eru súr“ sagði refurinn

Hádegismóar tala nú um nýjan skatt en ekki breytingar á lögum sem fela í sér lægri skatt af afskriftum.

Í því sambandi er rétt að benda á að afskriftir hafi ALLTAF verið skattskyldar.  Hér er ekki um nýjan skatt að ræða.  Heldur er verið að minnka hugsanlegan skatt sem fyrirtæki og einstaklingar geta lent í auk þess sem ákveðinn hluti verði skattfrjáls.

Sem sagt - aftur og til að undirstrika:

Afskriftir hafa ALLTAF verið skattskyldar.  Eftirgjöf skulda er alltaf skattskyld.

Ríkisstjórnin er með tillögum sínum að minnka þennan skatt sem hefur verið og er EKKI um nýjan skatt að ræða.  Eins og segir í fréttinni þá er talað um breytingar á skattlagningu afskrifta.

Mogginn hinsvegar setur þetta svona upp og það er athyglisvert.  Þar ræður sameiginlegt markmið Morgunblaðiðsins og Sjálfstæðisflokksins að koma stjórninni frá og tala niður aðgerðir ríkisstjórnarinnar.

Aðalatriðir er að í tillögum ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að hóflegar skuldbreytingar verði skattfrjálsar en stórfelldar niðurfellingar skattlagðar - kannski svíður síðara atriðið sárt einhverja þá sem að Mogganum standa?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Aðgerðarleysi og getuleysi Samfylkingarinnar í ríkisstjórn sér til þess að 17.000 eru atvinnulausir. Það bitnar verst á ungu fólki. Um leið og samráð er haft við Samfylkingin í Kópavogi varðandi fjárhagsáætlun kemur tillaga um sundskatt á eldra fólk. Þeir einu sem Samfylkingin virðist verja eru útrásarvíkingarnir, enda telja Baugsmiðlarnir Samfylkinguna vera aðal flokkinn.

Farðu að koma þér út úr skjaldborginni og horfast í augu við raunveruleikann.

Sigurður Þorsteinsson, 19.3.2010 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 129408

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband