Leita í fréttum mbl.is

Kópavogur bærinn minn - 3. kafli

Síðla árs 2005 tók ég ákvörðun um að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2006. Leitaði ég að samþykkis minna vinnuveitenda hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrir því og var það leyfi fúslega veitt, bæði af þáverandi framkvæmdastjóra Þórði Skúlasyni og þáverandi formanni Vilhjálmi Þ.Vilhjálmssyni. Skömmu síðar er ég sat við vinnu mína mætir þar bæjarstjóri Kópavogsbæjar og ávarpa ég hann kurteislega með orðunum „góðan daginn herra bæjarstjóri." Það stóð ekki á svörum hjá bæjarstjóranum sem rumdi út úr sér „Huh, maður talar ekki við svona kerlingar. Þær ættu bara að koma sér burtu úr bænum!"

Eins og við er að búast varð ég orðlaus við þessi viðbrögð og átti það sama við um félaga mína sem heyrðu til bæjarstjórans og er hætt við að þessi framkoma hans hafi orðið til þess að atkvæðum Sjálfstæðisflokksins fækkaði um a.m.k. eitt í Kópavoginum þá um vorið. Bæjarstjórinn varð sér síðan aftur til skammar þegar hann hreytti ónotum í mig þegar ég sinnti starfi mínu á launamálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin var í húsi Orkuveitu Reykjavíkur í ársbyrjun 2006. Leitaði ég þá óformlega til minna samstarfsmanna um það hvort þeim þætti þetta eðlileg framkoma sveitarstjórnarmanns í minn garð. Viðbrögðin voru þau að þetta væri sannarlega ekki eðlilegt, þar sem ég væri einungis að sinna mínu starfi og sérstaklega ekki þar sem ég hafi gætt þess í hvívetna að láta framboð mitt ekki hafa áhrif á þjónustu mína í þágu sveitarfélaganna á landinu.

Í raun hefði þetta viðmót bæjarstjórans ekki átt að koma mér á óvart. Mér er ákaflega minnisstæður framboðsfundur sem fór fram í Þinghólsskóla í aðdraganda bæjarstjórnarkosninganna 1990. Þar sá ég fyrst til verðandi bæjarstjóra, nýjan oddvita Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hann fór mikinn á fundinum, gagnrýndi skipulagsmál og gatnakerfi Kópavogs óspart og sagði eitthvað á þá leið að „helst mætti halda að íbúar Kópvogshælis hafi dregið upp gatnakerfið í bænum, svo vitlaust væri það." Ég brást ókvæða við orðum bæjarstjórans og benti honum á að okkur krökkunum sem ólumst upp í bænum var kennt að maður gerði ekki grín að íbúum Kópavogshælis og hann ætti að skammast sín fyrir þessi orð. Þarna varð ég vitni að því í fyrsta sinn að oddvitinn er þrátt fyrir allt breyskur maður og hann baðst afsökunar á orðum sínum, sagði að hann hafi ekki ætlað að meiða neinn. Þessa hlið hef ég ekki séð hjá bæjarstjóranum síðan.

Því miður reyndist þetta viðmót bæjarstjórans í minn garð í upphafi árs 2006 aðeins vera forsmekkurinn af því sem koma skyldi. Ég náði 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem hlaut 4 sæti í bæjarstjórn. Þar með varð ég 1. varabæjarfulltrúi flokksins og hef tekið virkan þátt í störfum bæjarstjórnar sem og bæjarráðs það sem af er kjörtímabilinu.  Þegar ég mætti á minn fyrsta fund hjá bæjarráði hreytti bæjarstjórinn í mig þeirri athugasemd hvort „Samfylkingin gæti ekki farið aftar á listann til að manna sín sæti í bæjarráði." Mér varð hugsað til þessara orða bæjarstjórans þegar ég hlýddi á fund bæjarstjórnar um áramót þegar síðari umræða var um fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2009. Þar sem ég hlustaði á útsendingu frá fundinum heyrði ég að meðal fundarmanna var Bragi nokkur Michaelson, en hann skipaði 11. sætið á lista Sjálfstæðismanna fyrir kosningarnar 2006. Velti ég því fyrir mér hvort Bragi hafi fengið sömu köldu kveðjuna frá bæjarstjóranum í upphafi bæjarstjórnarfundar og ég þegar ég mætti til fundar bæjarráðs haustið 2006.

Það er mín gæfa að hafa verið dugleg í ýmiskonar félagsstarfi auk þess sem ég skrifaði greinar um íþróttir kvenna í dagblöð um margra ára skeið. Þessi reynsla mín hefur fært mér heim sanninn um að maður á ekki að búast við því að fá þakkir fyrir störf sín. Hitt er algengara að fá gagnrýni fyrir hvaðeina en í engu er vikið að því sem vel er gert.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Ingibjörg þú kemur mér fyrir sjónir sem reiður ungur Röskvupiltur, gunnar stjórnar bænum okkar eins vel og D Oddman ofurhetja væri sjálfur við stjórnvölinn..... kV.

Þórarinn M Friðgeirsson, 17.2.2009 kl. 22:32

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Merkilegur og fræðandi pistill, aldrei hefði mér dottið í hug að maður sem býður sig fram til félagsstarfa, hvað þá sem bæjarstjóri, hagaði sér svona.  Afar fróðlegt verð ég að segja.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.2.2009 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband