Leita í fréttum mbl.is

Stúdentsafmæli

Mér var nokkuð brugðið þegar vinkona mín og skólasystir úr MK hringdi í mig fyrir um 6 vikum og minnti mig á að við ættum 25 ára stúdentsafmæli í vor. Það gat ekki verið að það séu 25 ár liðin síðan við útskrifuðumst úr MK, við höfum í fyrsta lagi ekki elst nema um kannski 4 ár og svo lítum við miklu betur út í dag en við gerum í þá gömlu góðu!

Dagatalið og almanakið lýgur víst ekki frekar en tíminn sjálfur og við hófum þegar undirbúning að almennilegu hófi þeirra 45 stúdenta sem útskrifuðumst úr MK þann 20. maí 1983. Leit að netföngum og uppsetning vefsíðu féll í minn hlut. Vefsíðan var ekkert mál, http://mk1983.blogcentral.is og málið er dautt. Skannaði inn nokkrar myndir, laug og bullaði öðru hvoru í dagbókinni og samstúdentar mínir upplifðu síðustu 6 vikur eins og ég hafi fundið upp hjólið, öreindirnar og amömbur. Á föstudagskvöld hittumst við svo í Rúgbrauðsgerðinni og þvílíkir fagnaðarfundir. Sjaldan eða aldrei hef ég skemmt mér jafn vel og þarna, magnað að hitta allt þetta lið uppá nýtt, mætingin var bara mjög góð, þrír af þeim 45 sem útskrifuðust eru látnir og allnokkrir eru búsettir erlendis og áttu ekki heimangengt. Nokkrir höfðu ekki áhuga á að hitta okkur en með mökum og nokkrum sérvöldum kennurum mættu 42 einstaklingar í hófið og skemmtu sér hreint konunglega.

Ef einhver þeirra skyldu rekast inná þessa síðu þá færi ég þeim bestu þakkir fyrir kvöldið. Við erum ótrúlega flott, eiginlega langflottust, eins og sjá má af myndunum af fimmmenningaklíkunni þar sem myndin til vinstri er tekin árið 1983 og í fyrradag stilltum við okkur aftur upp í sömu röð. Flottar dömur finnst þér ekki?

1983   IMG_3609
1983                          2008


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

til hamingju frænka með stúdenstafmælið  :)

Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 02:26

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Til hamingju með 25 ára stúdentsafmælið þitt.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.5.2008 kl. 23:21

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Takk fyrir kveðjuna báðar tvær

Ingibjörg Hinriksdóttir, 19.5.2008 kl. 00:06

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Takk fyrir kveðjuna Arnþór, ég skil þetta ekki heldur, hélt að við hefðum verið að mynda sama fólkið. Greinilega einhver misskilingur á ferðinni!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 19.5.2008 kl. 00:46

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Þetta kallar þú SMÁ leiðindi!!  Reyndar má þakka förðunardömunni sem fékk það verkefni að gera okkur jafn fagrar og við vorum fyrir 25 árum. En viti menn ... við urðum miklu fallegri! Svo ástæðan fyrir því að þú hélst fyrst að þetta væru ekki sömu konurnar er að við erum mikið fegurri í dag en þá!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 19.5.2008 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband