Leita í fréttum mbl.is

Tímamótarćđa Sigurrósar

Sigurrós Ţorgrímsdóttir, forseti bćjarstjórnar Kópavogs, flutti tímamótarćđu á málţingi Jafnréttisnefndar Kópavogs sem haldin var í Gerđarsafni í gćr. Málţingiđ var haldiđ í tilefni af ţví ađ 50 ár eru nú liđin frá ţví ađ fyrsta konan á Íslandi varđ bćjarstjóri; Hulda Jakobsdóttir í Kópavogi. Yfirskrift málţingsins var Ég ţori get og vil! en orđ Huldu sjálfrar Ég get gert allt sem karlmenn geta gert – og flest betur voru flestum ţeirra sem tóku til máls innblástur í erindum sínum.

Eftir ađ Gunnar Birgisson, bćjarstjóri Kópavogs, hafđi sett málţingiđ og ţau Hulda Dóra Styrmisdóttir, Auđur Styrkásdóttir og Halldór Halldórsson flutt erindi í tilefni af ţessum tímamótum komu nokkrar málsmetandi sveitarstjórnarkonur í pallborđ ţar sem ţćr töluđu af miklum innblćstri.  Međal ţeira var umrćdd Sigurrós Ţorgrímsdóttir. Viđ skulum hafa ţađ á hreinu ađ Sigurrós er sjálfstćđiskona (ţó hún hafi upplýst ţađ á málţinginu ađ amma hennar hafi setiđ í bćjarstjórn Reykjavikur á sínum tíma fyrir sósíalista) og hefur setiđ í bćjarstjórn í tvö kjörtímabil auk ţess sem hún sat á ţingi á síđasta kjörtímabili.

Sigurrós fór eins og ađrir frambjóđendur Sjálfstćđisflokksins í alţingiskosningunum í vor í prófkjör síđla árs 2006 og ţar mátti hún sćtta sig viđ ţađ ađ missa af einu af sex efstu sćtum listans. Sérstaklega er ţetta athyglisvert ţegar á ţađ er litiđ ađ hún var á ţeim tíma sitjandi alţingismađur flokksins. Í fjórum efstu sćtum listans fyrir ţingkosningarnar voru ţrír karlar sem röđuđust eftir varaformanni flokksins, Ţorgerđi Katrínu Gunnarsdóttur.

Í pallborđsumrćđunum sagđi Sigurrós ađ ţegar hún hefđi undirbúiđ sig fyrir málţingiđ hafi hún m.a. skođađ grein sem hún skrifađi áriđ 1990 og fjallađi um jafnréttismál. Ţá hafi hún lýst sig andvíga kynjakvótum og hinum svoköluđu fléttulistum. En ţegar hún liti yfir farinn veg, nú 17 árum síđar, og gerđi sér grein fyrir ţví hversu lítiđ hafi í raun áunnist ţá gćti hún ekki lengur litiđ framhjá ţví ađ nú vćri kominn tími til ađ taka upp fléttulista og kynjakvóta hvort heldur sem um vćri ađ rćđa frambođ til sveitarstjórna eđa alţingis eđa setu í hinum ýmsu opinberu nefndum.

Ţetta verđa ađ teljast tímamót hjá konu sem samsvarar sig viđ Sjálfstćđisflokkinn sem hingađ til, a.m.k., hefur ekki viljađ heyra á ţađ minnst ađ setja inn kynjakvóta eđa hafa fléttulista á frambođum sínum.  Hlaut Sigurrós ađ launum mikiđ klapp frá fundargestum sem voru fjölmargir.  Ég sá ţađ samt ekki hvort Gunnar bćjarstjóri klappađi, ef einhver hefur séđ til hans ţá vćri gaman ađ fá af ţví fregnir.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 129405

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband