Leita í fréttum mbl.is

Fréttatilkynning frá forsætisráðuneytinu

Áfram unnið að farsælli lausn Icesave-málsins

  • Fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni frá stofnun íslenska lýðveldisins lokið.
  • Fyrstu tölur benda ótvírætt til þess að lög Alþingis um breytingu á áður samþykktum Icesave lögum falli úr gildi. Eftir standa þá lög nr. 96/2009 eins og þau voru samþykkt frá Alþingi í lok ágúst 2009 og staðfest af forseta Íslands í byrjun september. Bretar og Hollendingar féllust hins vegar ekki skilyrði þeirra laga fyrir veitingu ríkisábyrgðar og geta því lánasamningarnir frá 5. júní sl. ekki öðlast gildi á grundvelli þeirra.
  • Samræður á milli ríkisstjórnanna þriggja um nýja lausn á Icesavemálinu hafa hins vegar þegar hafist. Undanfarnar þrjár vikur hafa samningamenn þeirra hittst í Lundúnum og hafa  samræður þeirra verið jákvæðar og hefur ríkisstjórnin fulla trú á að ásættanleg lausn fyrir alla deiluaðila geti náðst.
  • Allir stjórnmálaflokkar á Alþingi hafa lýst yfir stuðningi við lausn málsins sem felur í sér að íslensk stjórnvöld tryggi greiðslu innstæðna upp að lágmarki samkvæmt reglum um innstæðutryggingakerfi á Evrópska efnahagssvæðinu.

Íslensk stjórnvöld munu næstu daga áfram kappkosta að ná farsælli lausn í Icesave-málinu. Í dag fór fram fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan frá stofnun íslenska lýðveldisins. Kosið var um breytingu á hinum svokölluðu Icesave-lögum, þ.e. hvort lög nr. 1/2010 um breytingu á lögum nr. 96/2009 um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, að ábyrgjast lán til Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum lágmarksinnstæðutryggingar til innstæðueigenda á Icesave-reikninga Landsbanka Íslands hf. skuli halda gildi sínu.

Samkvæmt fyrstu tölum er niðurstaðan skýr og verði endanleg niðurstaða í samræmi við þetta munu lög nr. 1/2010 falla úr gildi skv. 26. grein stjórnarskrár íslenska lýðveldisins. Þjóðaratkvæðagreiðslan var haldin í kjölfar þess að forseti Íslands synjaði Icesave-lögunum staðfestingar 5. janúar síðastliðinn með vísan til 26. greinar stjórnarskrár íslenska lýðveldisins. Í framhaldi var frumvarp ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna samþykkt á Alþingi og kjördagur ákveðinn.

Þjóðaratkvæðagreiðslan var hins vegar sett í annað samhengi þegar ríkisstjórnin leitaði eftir og kom á samstöðu meðal allra stjórnmálaflokka um skipun nýrrar samninganefndar og nýjar samræður
við bresk og hollensk stjórnvöld um lausn málsins sem staðið hafa undanfarnar vikur.

Á undanförnum vikum hefur miðað jafnt og þétt í samkomulagsátt og hafa Bretar og Hollendingar sýnt vilja til þess að sættast á lausn sem felur í sér umtalsvert lægri kostnað fyrir Íslendinga en fyrri
samningur. Í viðræðunum hefur íslenska samninganefndin lagt fram tilboð sem felur í sér að Ísland tryggi greiðslu innstæðna upp að lágmarki því sem kveðið er á um í reglum Evrópska efnahagssvæðsins um tryggingar á bankainnstæðum.

Íslensk stjórnvöld munu áfram vinna að farsælli lausn Icesave-málsins á sömu forsendum. Þjóðirnar hafa einsett sér að halda viðræðum áfram og leita lausnar í málinu.

Reykjavík 6. mars 2010

Sjá hér: http://www.forsaetisraduneyti.is/frettir/nr/4157


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Jóhanna á að hafa vit á því að segja af sér. Vanhæf ríkisstjórn. Má ég biðja um  Ingibjörgu Sólrúnu til baka. Annars er baráttan um formannssætið komin á fullt, þó að þú fáir ekkert að vita af því, af því búðið er að setja þig af hér í Kópavoginum.

Sigurður Þorsteinsson, 7.3.2010 kl. 17:52

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Viltu vinsamlega rökstyðja þessa fullyrðingu þína Sigurður um að búið sé að setja mig af í Kópavogi!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 7.3.2010 kl. 19:11

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ingibjörg ég hitti góðan Samfylkingarmann í Kópavoginum. Hann sagði mér að til stæði kattarþvottur í Kópavoginum. Oddviti Samfylkingarinnar hefði aðeins fengið 60% fylgi stuðningsmanna Samfylkingarinnar í skoðanakönnun. Því yrði svarað með:

1. Flosi yrði tekinn af listanum, enda ekki mikill kærleikur með honum og oddvitanum.

2. Riddara hringborðsins yrði fórnað, enda hann talinn léttvægari en peð. Auk þess sem farangurinn sem hann ber er ekki talinn mjög atkvæðavænn.

3. Ingibjörgu yrði fórnað, þar sem þetta siðferðisreglutal innan KSÍ, gæti verið yfirfært yfir á bæjarfulltrúana í Kópavogi. Elfur Logadóttir yrði sett inn í staðinn, þætti þægari og ljósmyndavænni.

4. Árshátíð starfsmanna Kópavogskaupstaðar yrði lögð af, til þess að minnka líkur á kollsteypum.

5. Auk þessa sagði hann mér að þú myndir aldrei koma með greinargerð um sukkið í Kórnum, þar sem slíkt hentaði oddvitanum ekki. Ég viðurkenni að ég minnist þess ekki fyrr að þú hefðir ekki kjark til þess að fjalla um mál.

Ingibjörg allt þetta hefur nú gengið eftir. Þó að það sé erfitt fyrir þig að hafa fengið sparkið, þá segja mér vinir mínir úr nágrannabyggðarlagi okkar að það ætti frekar að vera léttir fyrir þig.

Sigurður Þorsteinsson, 7.3.2010 kl. 21:37

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Siggi ég segi það enn og aftur hvað kom fyrir þig, þú sem varst einu sinni svo fallegur, gáfaður og skynsamur drengur?

Hver er þessi góði Samfylkingarmaður sem þú hittir?

Hversu oft þarf ég að segja þér að ég hef ekki nægar upplýsingar um byggingu Kórsins, en það ætti ekki að fara framhjá neinum sæmilega vel læsum einstaklingi að þar hef ég haft ýmislegt til málanna að leggja.

Það er enginn léttir fyrir mig að hætta í bæjarpólitíkinni í Kópavogi. Síður en svo, og þér til upplýsingar þá vildi oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi endilega hafa mig með á listanum en oddviti annars flokks í Kópavogi kom í veg fyrir það með undirlægju hætti og leiðindum. Honum hef ég nú fyrirgefið en hann ætti þó að vita - líkt og þú - að það er betra að vera vinur minn en fjandvinur.

Ætli það sé ekki sundlaugamálið fræga sem er að þvælast fyrir þér. Þú telur að það hafi verið Samfylkingin sem kom í veg fyrir að Sundlaug Kópavogs væri færð þér og þínum fylgisveinum á silfurfati. Þér til upplýsingar þá hefur Samfylkingin verið í minnihluta í bæjarstjórn þetta kjörtímabil og hafði því lítið um þetta mál að segja. Þú ert því að hengja bakara fyrir smið Siggi - en kannski er sú staðreynd ekki að þvælast neitt fyrir þér!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 8.3.2010 kl. 08:25

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ingibjörg þú ert varabæjarfulltrúi í Kópavogi, það ætti að vera létt verk fyrir þig að fá allar upplýsingar um Kórinn ef það væri vilji þinn. Ef þú hefur verið sett í upplýsingaleitarbann af oddvita þínum þá væri miklu heiðarlegra að segja okkur frá því.

Mér er kunnugt um að vilji þinn var að halda áfram í bæjarstjórnarstörfum í Kópavogi og það var því þér þungbært að vera sett úr.  Ég held að það væri fengur í því að hafa fólk með meiri félagsþroska í Bæjarstjórn Kópavogs.

Mér finnst það afar áhugaverð skýring há þér að ástæða þess að þú færir ekki fram væri að oddviti einhvers annars flokks tæki ákvarðanir um framboð í Samfylkingunni. Út á við getur þú haft þessar skýringar, ef þér líður betur með þær. Lýðræðið virkar þannig að það ef oddviti í flokki eins og Samfylkingunni í Kópavogi vill einhvern út. Þá kemst það til skila.

Ég tek sérstaklega eftir því hvað það virðist vera þér erfitt að taka á ,,siðferðisbrotum" í þínu liði. Vilt skauta létt fram hjá því.

Nú skora ég á þig sem varabæjarstjórnarmann okkar í Kópavogi að leita upplýsinga um tapið á viðskiptum Kópavogsbæjar við einn bæjarstjórnarmann Samfylkingarinnar í Kópavogi, en eins og þú veist þá var þetta innlegg aðal skrautfjöður Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir síðustu kosningar.

Sundlaugarmálið skulum við síðan taka upp í framhaldi.

Annars er það afar merkilegt að jafn félsgsreynd manneskja eins og þú, teljir að ef kjósendur veita kjörnum fulltrúum aðhald, sé það af einhverjum illum hvötum.

Sigurður Þorsteinsson, 8.3.2010 kl. 09:39

6 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sigurður,

ég hef margar upplýsingar um Kórinn og rekstur hans. Nú stendur til að bærinn kaupi bygginguna, það getur þú lesið í fundargerðum á vefsíðu bæjarins. Allar ákvarðanir um Kórinn hafa verið teknar af núverandi meirihluta og við mismikla hrifningu fulltrúa Samfylkingarinnar. Hafir þú eitthvað út á samstarf eigenda Kórsins við bæinn að setja, þarftu fyrst og fremst að eiga það við eigendur hússins annars vegar og meirihluta bæjarstjórnar hins vegar.

Varðandi framboð mitt þá stendur það sem ég sagði áðan. Oddviti Samfylkingarinnar vildi gjarnan hafa mig með í liði en sökum ómerkilegst framgangs oddvita annars stjórnmálaflokks í Kópavogi var mér gert ómögulegt að fara aftur fram. Þessar skýringar eru ekki bara útá við þær má líka finna hér á blogginu mínu og er ég sannast sagna steinhissa á því að minn eini "tryggi" lesandi skuli ekki hafa lesið þá sögu og lagt hana á minnið. Enn og aftur og þetta er í síðasta sinn sem ég segi þér þetta, þá vildi oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi hafa mig með sér í liði og hefur hvergi borið skugga á okkar samstarf síðustu fjögur ár! Við munum halda áfram að vinna saman að góðum verkum í Kópavogi - hvort sem það er þér þóknanlegt eða ekki.

Hættu að tala í gátum maður, segðu hlutina eins og þeir eru. Hvaða tap ertu að tala um og hvaða Samfylkingarmann ertu að ræða um? 

Af hverju viltu ekki taka sundlaugamálið upp núna - er eitthvað þar sem þú ert að fela?

Það sem þú kallar aðhald fer bráðlega að flokkast undir einelti og hrein og tær leiðindi. Þér hef ég svarað hreint og beint og veitt þær upplýsingar sem þú biður um. En rógburði og illmælgi er erfitt að svara, þar verður þú að ræða við manninn í speglinum.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 8.3.2010 kl. 12:40

7 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ingibjörg fyrir alllöngu síðan sagðir þú hér á blogginu að þú ætlaðir að fara yfir málefni Kórsins. Ég bíð enn eftir þeirri færslu. Þú segir hér að allar ákvarðanir varðandi Kórinn hafi verið teknar af meirihlutanum. Þú veist að þú ferð þar með rangt mál. Bið þig um að fara og lesa kosningablað Samfylkingarinnar frá því fyrir síðustu kosningar. Þar kemur skýrt fram að Jón Júlíusson íþróttafulltrúi og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar átti allan "heiðurinn" af samningum  við Knattspyrnuakademíuna. Það þarf alls ekki að vera  gagnrýnisvert að gera samning um úthýsingu verkefna en þessi samningur var með slíkum endemum að full ástæða er að fjalla um málið fyrir bæjarbúa. Það að bæjarfulltrúinn vogi sér síðan að hoppa hinum megin við borðið er nægilegt til þess að a.m.k. hann hefði sagt af sér. Aðrir bæjarfulltrúar studdu síðan þennan samning.

Þú segir að ákvarðanir hafi tekið ákvarðanir mið mismikilli hrifningu. Það þýðir sennilega að Jón Júlíusson hafi orði ofsakátur, enda samningurinn á hans ábyrgð. 

Ég er að verða sannfærður um að þú munir ekki hafa kjark til þess að fjalla um þetta mál hér á blogginu, eða eins og mér var sagt hafi verið bannað að svara. Mun því taka málið upp á öðrum vettvangi. 

Sigurður Þorsteinsson, 8.3.2010 kl. 13:41

8 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Óttalega ætlar þetta að vera erfitt að skilja málið. En til að einfalda hlutina þá skilur þú kannski Gunnar Birgisson þegar hann segir:

Kórinn er rekinn af Knattspyrnuakademíu Íslands en fyrir liggur samstarfs- og rekstrasamningur milli Kópavogsbæjar og þess fyrirtækis. Kópavogsbær byggði Kórinn og Knattspyrnakademían byggði tvöfalt íþróttahús sem er tengt við Kórinn og hugsunin var að Kópavogsbær myndi leigja íþróttahúsið af Knattspyrnuakademíunni og á móti myndi akademían leigja ákveðinn tímafjölda í Kórnum.

Þá hef ég tekið saman megnið af því sem bókað hefur verið um umrætt knatthús frá árinu 2004 og máli skiptir varðandi rekstur hússins. Ég var ekki að tína til upplýsingar um útboð á húsinu.

ÍTK 28.10.2004
Knattspyrnuakademía Íslands
Íþróttafulltrúi greindi frá fyrirspurnum fulltrúa akademíunnar um hver væri afstaða ÍTK til umsóknar fyrirtækisins um lóð undir knatthús í Vatnsendahverfi.
Nokkrar umræður urðu innan ráðsins um skipulag íþróttamála í Vatnsenda- og Salahverfi.
ÍTK leggur áherslu á, meðal annars í ljósi ofangreindrar óskar íþróttafélags úr öðru sveitarfélagi, að brýnt sé að taka ákvörðun um hvert framtíðarskipulag íþrótta- og æskulýðsmála eigi að vera í Sala- og Vatnsendahverfi.

Bæjarráð 13.07.2007 
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að leigusamningi milli Kópavogsbæjar, kt. 700169-3759 f.h. Knatthúss í Vallakór annars vegar og Olympus Sport ehf., kt. 660706-0460 hins vegar um húsnæði í þjónustusal Knatthússins.
Bæjarráð lítur jákvætt á drögin og felur bæjarrita að ganga frá samningnum.
Tveir fulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.  Guðríður Arnardóttir óskaði fært til bókar að hún sæti hjá við afgreiðsluna.

Bæjarráð 16.08.2007
Frá bæjarstjóra, dags. 14/8, undirritaður leigusamningur milli Kópavogsbæjar, f.h. Knatthúss í Vallarkór, annars vegar og Olympus Sport ehf., kt. 660706-0460, hins vegar, vegna reksturs heilsuræktarstöðvar. 
Bæjarráð staðfestir samninginn.

07.02.2008
Frá bæjarstjóra, samkomulag Kópavogsbæjar og Knattspyrnusambands Íslands um afnot og aðstöðu í Knatthúsi Kópavogsbæjar og á grasæfingavöllum í Vallakór, dags. 23/1.
Bæjarráð vísar afgreiðslu samkomulagsins til bæjarstjórnar.

12.02.2008
Forseti bar undir fundinn lið 2.a., samkomulag Kópavogsbæjar og Knattspyrnusambands Íslands um afnot og aðstöðu í Knatthúsi Kópavogsbæjar og á grasæfingavöllum í Vallakór, dags. 23/1, sem vísað var til afgreiðslu bæjarstjórnar frá bæjarráði.  Bæjarstjórn samþykkti samninginn einróma.  Jón Júlíusson vék sæti við afgreiðslu málsins.

Hér getur þú séð, ef þú vilt sjá það á annað borð, hver aðkoma bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar hefur verið í þessu máli. Allt er þetta lagt fram af bæjarstjóra, og mikið held ég að þú lesir þann ágæta mann vitlaust ef þú trúir því að hann fari að hygla Jóni Júlíussyni eða öðrum fulltrúum Samfylkingarinnar sérstaklega.

Aðdróttanir þínar um annað er markleysa og ekkert annað en markleysa. Ég hef skoðað málið Sigurður og sé ekkert, ég endurtek ekkert, sem getur orkað tvímælis í meðferð Samfylkingarinnar varðandi knatthúsið. Persónulega hef ég ítrekað haldið því fram að það sé alltof mikið fyrir eitt sveitarfélaga sem hefur 30 þúsund sálir að hafa tvö knatthús af fullri stærð. Ég hafði alvarlegar efasemdir um byggingu Kórsins og þær efasemdir hafa ekki minnkað eftir að húsið komst í fulla notkun.

Húsið er hins vegar risið og það þarf að sinna því almennilega og sjá til þess að það verði okkur íbúum Kópavogs til sóma.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 8.3.2010 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband