Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, janúar 2009

Fésbók

Undanfarna daga hefur mikiđ veriđ fjallađ um Fésbókina (Facebook). Atriđiđ í áramótaskaupinu var bráđfyndiđ og kannski eins og sumir upplifa Fésbókina. Fyrir nokkrum mánuđum datt ég inn í ţetta og hef nú sankađ ađ mér fullt af fólki sem ég ţekkti hér einu sinni eđa hitti á einhverjum tímapunkti í lífi mínu. Í gćr fann ég t.d. frćndfólk mitt í Ástralíu sem ég sá síđast fyrir nokkrum árum. 

Um helgina fann ég líka minningarsíđu um vinkonu mína sem lést á sviplegan hátt áriđ 1988 en sonur hennar stofnađi minningarsíđu um móđur sína á Fésbók. Hann var ađeins 7 ára, held ég, ţegar móđir hans lést og ţví tel ég ađ Fésbók geti veriđ honum mikilvćgur upplýsingamiđill til ţess ađ kynnast móđur sinni betur í gegnum gamla vini hennar og skólafélaga. Ţessar upplýsingar hefđi veriđ óhugsandi fyrir hann ađ safna saman fyrir örfáum árum, en ég sé ađ í dag hafa margir gamlir skólafélagar og vinir móđur hans haft samband og vonandi verđur ţađ til ţess ađ hann fái ljósari mynd af móđur sinni í framhaldinu.

Hitt er svo annađ ađ sumar ţćr upplýsingar sem birtar eru á Fésbók eiga takmarkađ erindi ţangađ, einnig eru ýmiskonar leikir og skođanakannanir tengdar inná bókina og í fyrir ekki löngu síđan heyrđust fréttir af ţví ađ tölvuvírusar smituđust međ ýmsum skrám á Fésbók. Ţađ er miđur en mín niđurstađa er engu ađ síđur sú ađ Fésbók sé mikilvćg viđbót viđ ţá möguleika sem veraldarvefurinn býđur uppá og ég tek bókinni fagnandi.


Hálsinn er ađ fyllast!

Stađan er ţannig núna, ađ ég er kominn međ uppí háls af ađgerđarleysi stjórnvalda gagnvart ţeim tímum sem viđ stöndum nú frammi fyrir. Ok, látum ţađ liggja milli hluta ađ benda á sökudólga, en elskulegu samflokksmenn og íhaldsfólk fariđ nú ađ bera PÓLITÍSKA ÁBYRGĐ. Ef ţiđ beriđ ekki persónulega ábyrgđ á ástandinu, axliđ ţá pólitíska ábyrgđ, bankarnir féllu á ykkar vakt. Víkiđ úr stólum ykkar og leyfiđ öđrum ađ sýna fram á hverjir bera persónulega ábyrgđ, ef ţađ voruđ ekki ţiđ ţá hafiđ ţiđ ekkert ađ óttast!

Eiginlega er ég orđin svo reiđ og sár á ađgerđarleysinu ađ ég kem ekki hugsunum mínum á blađ. Ég les hins vegar reglulega bloggiđ hjá Jenný Önnu og Láru Hönnu sem tekst međ ólíkum hćtti ađ orđa vonbrigđi mín gagnvart mínum flokksmönnum og ţeirri ríkisstjórn sem ég var svo ánćgđ međ voriđ 2007.

Austurvöllur á á eftir, mótmćli fá vonandi ríkjandi stjórnvöld á endanum til ţess ađ axla ábyrgđ, til ađ byrja međ pólitíska ábyrgđ. Sökudólgana getum viđ fundiđ ţegar um hćgist.


Ofbeldi er aldrei réttlćtanlegt

Um ţađ leyti sem íslenska efnahagsundriđ riđađi til falls varđ ég ţeirrar gćfu ađnjótandi ađ fara í nokkurra daga ferđ til Ísrael. Lengst af dvaldi ég í hafnarborginni Haifa í norđurhluta landsins en einnig átti ég ţess kost ađ fara í skođunarferđ til Nazareth og Galileu vatns. Skemmst er frá ţví ađ segja ađ landiđ heillađi mig mjög og er ég stađráđin í ađ gera mér ađra ferđ til Ísrael ef ţess er nokkur kostur.

Fréttir síđustu daga af átökum á Gaza hafa valdiđ mér miklum áhyggjum. Ofbeldi, af hvađa rótum sem ţađ er runniđ, á í mínum huga aldrei rétt á sér. Loftárásir á almenna borgara eru skelfilegar og ég get ekki hugsađ ţá hugsun til enda ađ nýtt stríđ brjótist út fyrir botni Miđjarđarhafs, eins og líkur eru á nú um stundir. Ţá daga sem ég dvaldi í Ísrael gafst mér kostur á ađ rćđa viđ heimamenn um ástandiđ og hvernig heimamenn líta á ţćr deilur sem nú virđast vera ađ komast á alvarlegra stig en ţćr voru ţegar ég dvaldi ţarna. Ţćr samrćđur ćtla ég ekki ađ rekja hér. Niđurstađa ţeirra samrćđna var hins vegar sú, í mínum huga, ađ sjaldan valdi einn ţá tveir deila.

Bćnir mínar beinast ađ ţví ađ ţessir tveir ađilar muni sjá ljós í öllum ţessum hörmungum og ađ ţeir finni leiđ til ţess ađ lifa á ţessu landsvćđi í sćmilegri sátt og samlyndi. Annađ gengur ekki upp.


Áramótaskaupiđ

Einn er sá sjónvarpsţáttur sem langflestir, ef ekki allir, landsmenn horfa á. Ţađ er áramótaskaupiđ. Undir lok hvers árs byrja vangaveltur um hvernig skaupiđ muni verđa og á gamlárskvöld fáum viđ svariđ. Auđvitađ sýnist sitt hverjum um skaupiđ. Bestu skaupin voru ađ mínu viti uppúr 1980 ţegar Flosi, Edda Björgvins og Gísli Rúnar stýrđu skaupinu.

Skaupiđ núna fannst mér ágćtt, mörg atriđin voru óborganleg og karaktersköpunin var mögnuđ. Sérstaklega var ég hrifin af leik Ilmar Kristjánsdóttur ţegar hún var Gísli Marteinn. En eftir ađ hafa horft aftur á skaupiđ ţá koma sketsar eins og af ríkisstjórnarfundinum međ ísbirninum og ţátturinn á ÍNN sterkir inn. Jón Gnarr sem Páll Óskar fannst mér brilljant og símsvarinn hjá stofnununum fannst mér lýsa ástandinu eins og margir sjá ţađ. Enginn heima! Sakbendingin hjá löggunni, bent á alla réttu sökudólgana, en nei ... viđ skulum ekki benda á neina sökudólga, ekki horfa í baksýnisspegilinn!

"Erum viđ ţá komin af öpum eftir allt saman, sagđi sveitt ţingkonan og löđrungađi hundinn sinn!" Hverjum dettur ţetta í hug!

Ţađ fór ţó verulega í taugarnar á mér innlegg Hugleiks Dagssonar. Ći, ekki fyrir minn smekk.

Ég gef skaupinu fína einkunn, ţrjár og hálfa til fjórar stjörnur af fimm.


« Fyrri síđa

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband