Leita í fréttum mbl.is

Mikið óstjórnlega

finnst mér Agnes Bragadóttir leiðinleg.

Ég gerði heiðarlega tilraun til að hlusta á "rökræður" Agnesar og Marðar Árnasonar í morgunsárið. Geðheilsa mín leyfði ekki nema rúmar 90 sekúndur af sleggjudómum og nöldrinu í blaðakonunni og mikið óskaplega var ég fegin að fá ljúfa jólatóna í eyrun þegar ég skipti um stöð!

Ætli ég geti farið fram á það að það verði send út geðheilsuaðvörun á þriðjudagsmorgnum, áður en "rökræðurnar" hefjast?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er að heyra   þessi kona (Agnes) er sú besta matráðskona í pistla og þátta gerð .Hún getur smurt haugmygglað sjálfstæðisbrauð samber BB brauðið svo vel að allt mygglubragðið er horfið   jafnvel framsóknarmaddaman er gáttuð á þessari snilld og mun líklega fá hana til að smyrja yfir sína fortíð í sukki og stjórnmálum.

Jón (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 10:56

2 Smámynd: Jón Þorbjörnsson

Sammála þér.

Er það ekki rétt metið hjá mér að Mogga-mann séu á sömu skoðun og eru nástast búnir að setja hana út í horn.

Jón Þorbjörnsson, 22.12.2009 kl. 11:21

3 Smámynd: Eygló

Ég get ekki komist að því hvort hún er góð í sínu starfi; get ekki hlustað það lengi á hana.
Klár kella held ég en afskaplega þreytandi í háttum og þá sérstaklega talanda.

Eygló, 22.12.2009 kl. 15:38

4 Smámynd: Jens Guð

  Það er ástæðulaust að finnast Agnes leiðinleg.  Með smá lagni má hafa verulega gaman að geltinu í henni.  Sérlega var gaman að hlusta á spjall þeirra Marðar fyrir viku eða svo.  Þá gelti Agnes af ákafa sem aldrei fyrr.  Mörður komst varla að .  Hann er svo rólegur.

  Agnes bar stöðugt fyrir sig tilvitnun í útlent skjal.  Mörður óskaði eftir að fá að sjá þetta skjal.  Á meðan starfsmaður Bylgjunnar prentaði skjalið út hélt Agnes áfram geltinu.  

  Þegar Mörður fékk skjalið í hendur benti hann Agnesi á að hún hafði þýtt textann kolvitlaus.  Mörður sagði það koma sér á óvart að Agnes væri svona léleg í ensku.  Agnesi brá svo mikið við þetta að hún kom ekki upp einu orði lengi á eftir.  Var sem lömuð af skömm.  Fraus hreinlega.

   Þetta var risa fyndið.   

Jens Guð, 22.12.2009 kl. 19:29

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Ég verð að viðurkenna að ég var alls ekki viss um að þessi færsla mín fengi að standa! En mér sýnist á þessum athugasemdum sem eru komnar að einhverjir séu sammála mér, þó menn líti það mis háðuglegum augum. Lýsingin hjá þér Jens er náttúrulega bara snilld en "því miður" missti ég af þessum þætti, og ætli ég hefði ekki bara slökkt fyrst Mörður var svona prúður að bíða þegjandi eftir prentaða skjalinu.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 22.12.2009 kl. 20:12

6 Smámynd: Eygló

Já, Jens rétt hjá þér; það er hugarfarið.
Ætli maður að skemmta sér er það alveg hægt
Geri það ef fleiri eru í spjalli, eins og í því sem þú sást. Hefði viljað sjá þetta.

Eygló, 22.12.2009 kl. 21:39

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Agnes er mælsk,það er hreimurinn sem er kanski svolítið hvellur.  Nú þá verð ég að segja um Mörð að hann muldrar og talar of hratt fyrir minn smekk.  Fyrir mörgum árum fór ég á blaðamannanámskeið hjá móður hans,það var afbragðs skemmtileg kona.         Auðvitað skiptir mestu máli,hvað þau segja,falli manni það ekki,dæmist röddin afleit.    Eftirmennilegir stjórnmálagarpar frá fyrri öld, eru mér minnisstæðir,sökum raddar sinnar og beitingu hennar.

Helga Kristjánsdóttir, 23.12.2009 kl. 04:20

8 Smámynd: Eygló

Mörður bleddaður er nú ekki sá skýrmæltasti, alltaf gaman að hlusta á það sem hann SEGIR, ef maður nær því.

Annars eins og þú segir, skiptir það öllu máli HVAÐ fólk segir.  Það stendur bara uppá andskotann þegar talandinn skilst ekki. :)

En lof  og þökk fyrir Agnesi og alla aðra sem eru svolítið öðruvísi - annars dræpist maður úr því!

Eygló, 23.12.2009 kl. 04:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband