Leita í fréttum mbl.is

Í minningu vinar

Guðmundur Benediktsson, G. Ben. eins og hann var jafnan kallaður meðal okkar Blika, kvaddi  þennan heim sl. sunnudagsmorgun. Hann var eitilharður Bliki og ákaflega kappsfullur maður, aldrei sat hann á skoðunum sínum og skipti þá engu hvort hann ætti sér fjölda skoðanabræðra eða ekki. Hann ákvað að stofnun íþróttabandalags ætti að vera í mínum höndum. Í allt haust hefur hann komið til mín í tippkaffinu á laugardögum og ítrekað þessa skoðun sína við mig. Það hefur verið í fínasta lagi enda deilum við þessari skoðun og ég lofaði honum að ganga í málið af öllu mínu afli.

Síðast þegar ég hitti G. Ben, var í tippkaffinu fyrir hálfum mánuði, þá tók hann þéttingsfast í hönd mér og lét mig lofa sér að ég myndi ganga frá þessu máli. Ég horfði í augu hans og lofaði að gera allt sem í mínu valdi stendur til að íþróttabandalag verði stofnað í Kópavogi. Sagði ég honum að ég væri þegar búin að skrifa grein sem ætti að birtast í Kópavogi, málgangi Samfylkingarinnar, það kæmi bráðum. Því miður var Guðmundur allur þegar blaðið kom var borið til Kópavogsbúa á laugardagsmorgun, en ég mun fylgja þessu máli eftir, eins og ég hef lofað.

Blessuð sé minning Guðmundar Benediktssonar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jæja hann er þá farinn blessaður kallinn. Blessuð sé minning hans.

Helga Kristjánsdóttir, 15.11.2009 kl. 03:36

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Hef alltaf vilja skoða skipulagsbreytingar með opnum huga. Oft skoðað hvort skipta ætti UMSK upp. Hvaða rök hefur þú fyrir stofnun íþróttabandalags.

Sigurður Þorsteinsson, 15.11.2009 kl. 09:02

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Finnst það góð framtíðarsýn ef að Íþróttafélög í Kópavogi gætu sameinast í einhverju bandalagi sem væri vettvangur fyrir sameiginleg hagsmunamál þeirra. Það hljóta að vera mörg mál þar sem hagsmunir þeirra skerast og fara saman. Þannig t.d. eru þau að samnýta íþróttamannvirki. Það eru komin mörg ár síðan ég var virkur í Íþróttafélagi ( ÍK og HK) en ég man að þá var óþarfa rígur oft milli félaga og okkur í "litlu og ungu" félögunum fannst oft að þeim vegið.

Svona bandalög eru líka í flestum stærri Bæjarfélögum. Man eftir svona fyrirkomulagi í Reykjavík, Akureyri, Vestmanneyjum, Hafnarfirði og fleiri stöðum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.11.2009 kl. 12:46

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Helga, já hann kvaddi fyrir viku og verður jarðsettur á morgun.

Maggi, einmitt og það má bæta Reykjanesbæ á listann hjá þér.

Siggi, það er einmitt þetta sem Magnús nefnir og svo tel ég að það fari of mikill tími í það hjá bæjarapparatinu að semja við félögin og jafnvel einstaka deildir um allskyns verkefni og fjárhagslega styrki. Tökum sem dæmi úthlutun tíma í íþróttahúsin (sem hefur verið gríðarlega mikið deiluefni milli félaganna) þar á bærinn ekki að þurfa að eyða dýrmætum tíma og mannafla í að sætta sjónarmið. Félögin eiga að geta komið sér saman um þetta sjálf. Það sama á við gagnvart félögunum sem óneitanlega eru með mun sterkari stöðu sameinuð þegar sækja þarf á bæinn með ýmis mál, s.s. íþróttamannvirki og styrki.

Auk þess held ég að íþróttabandalag sé það eina sem getur dregið úr þeim hatrömmu deilum sem eru milli stærstu knattspyrnudeildanna. Deilur sem eru hreint fáránlegar og við höfum heilu kynslóðirnar sem allt að því hatast vegna þess að þeim hefur verið "kennt" það af "uppalendum" sínum innna félaganna. Þetta er óheilbrigt og hér í bæ eiga öll félög að geta komið fram sem ein heild þó það eigi að sjálfsögðu að vera heilbrigður rígur milli félaganna!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 15.11.2009 kl. 18:07

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ingibjörg breytt skipulag getur haft áhrif,en því miður held ég að íþróttabandalagshugmyndin hafi ekki þau áhrif sem þú heldur.

1. Það að eyða miklum tíma í að semja við félögin og ýmsar deildir um ýmis verkefni og fjárhagslega styrki er val pólitíkusanna. Koma að stefnumörkun íþróttamála í Mosfellsbæ fyrir nokkrum árum. Þar var þessi þáttur settur í farveg, sem hann hefur ekki verið settur í hér. Ef þessi þáttur yrði settur í fastan farveg þá væri þessi orkueyðsla úr sögunni. Þetta sama á við um skiptingu tíma.

2. Sameiginlegur vettvangur félaganna ætti að geta verið til staðar innan UMSK, eða sem sér vettvangur. Þegar ég hef spurt um kosti og galla þá hef ég alltaf fengið þau svör að ef til stofnunar íþróttabandalags yrði þá yrði ráðinn starfsmaður. Sem á að gera hvað? Það ætti að vera lítið mál fyrir íþróttafulltrúann í Kópavogi að boða þessi félög á sameiginlega fundi og ná samstöðu.

3. Það að íþróttabandalag leysi hatrammar deilur milli stærstu knattspyrnudeildanna held ég að starfi af einhverjum misskilningi. Þetta er mál sem leysa má á tiltölulega einfaldan hátt ef vilji er til. Því miður hef ég ekki fundið til mikils vilja til þess að lægja þessar öldur. Það að stofnun íþróttabandalags leysi þetta mál er jafn líklegt að að innganga í ESB muni leysa dæmið.

 Þegar skoða á skipulagsbreytingar þá er mikilvægt að skoða fyrirkomulag og niðurstöðu annarsstaðar. Íþróttabandalag Hafnafjarðar er afskaplega máttlítið batterí. Mér sýnist það nú ekki hafa leyst núning á milli FH og Hauka. Íþróttabandalag Akureyrar sömuleiðis.

 Er alltaf til í að skoða endurskipulagningu, en það verða að liggja fyrir kostir og gallar, og skoða leiðir í ljósi þess.

Sigurður Þorsteinsson, 15.11.2009 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Mér kemur allt við!

Lögin mín

- 14 Sil Suffisait d-aimer

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 129460

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband